Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 Hvergi betra að búa en í Eyjum - segir Hörður Orri Grettisson, sérfræðingur hjá ísfélaginu sem flutti aftur heim með fjölskylduna FJÖLSKYLDAN SAMANKOMIN f EYJUM. Hörður Orri, ásamt eiginkonu sinni Ernu Dögg og dætrunum Emblu, 5 ára sem heldur á litlu sys- tir sinni, Tönju sem fæddist í desember á síðasta ári.. Hörður Orri Grettisson, Eyja- maður, tók við fjölbreyttu starfi hjá ísfélaginu sem felst m.a. í framlegðarútreikningum, kostn- aðareftirliti, áætlanagerð, frá- vikagreiningum og upplýsinga- tæknimálum. Hörður Orri er 28 ára gamall, sonur Hrannar Harðardóttur og Grettis Inga Guðmundssonar. Hann er kvænt- ur Ernu Dögg Sigurjónsdóttur, verðandi leikskólakennara og saman eiga þau tvær dætur, yndislegar prinsessur eins og Hörður Orri segir, Emblu sem er að verða fimm ára og Tönju, sem er fædd á aðfangadag 2010 og er þar af leiðandi fjögurra mánaða. Hörður segist á sínum tíma hafa flutt frá Eyjum til að mennta sig. „Ég útskrifaðist með B.Sc í viðskipta- fræði af markaðsfræðisviði í janúar 2008 frá Háskólanum í Reykjavík. Við bjuggum í Kópavoginum og líkaði okkur það bara vel þó við höfum alltaf haldið sterkum tengsl- um við Eyjarnar með tíðum heim- sóknum ásamt því að við komum alltaf heim á sumrin til að vinna. Margir af mínum bestu vinum fluttu einnig í bæinn á svipuðum tíma til að mennta sig og auðvitað héldum við allir góðu sambandi. Síðan þegar þessu námi lauk byrjaði ég að vinna í Byr Sparisjóði en hafði alltaf stefnt á það að mennta mig meira og var þá með hugann við að fara erlendis í framhaldsnám. Ég lét verða af því þarna strax um haustið efir að ég komst inn í mastersnám í Danmörku og fluttum við til Aarhus í ágúst 2008. Þar áttum við frábæra tíma og fengum nýja lífsreynslu í samfélagi sem hægt er að læra mikið af. Tengingin heim var svipuð og áður, við fórum heim á sumrin og á jólunum og með hjálp nútímatækni var lítið mál að halda góðu sambandi við heimahagana." Átti ekki von á að fá starf við hæfi í Eyjum Hörður Orri segir að þegar síga fór á seinni hlutann á náminu hafi hann farið að líta í kringum sig með vinnu. „Það voru allir möguleikar opnir í þeim efnum, bæði að vera áfram úti eða fara til íslands og þá bæði að fara aftur til Reykjavíkur eða koma alla leið heim til Eyja. Við erum bæði miklir Eyjamenn og höfum alltaf talað um að flytja heim á einhverjum tímapunkti en í hrein- skilni sagt var maður ekkert mjög bjartsýnn á að fá góða vinnu við sitt hæfi heima í Eyjum. Svo þegar það kom upp að manni stóð til boða að koma og vinna hjá jafn stóru og sterku fyrirtæki eins og Isfélagið er, kom ekkert annað til greina. Það er hvergi betra að búa en í Eyjum og auðvitað toguðu margir þættir í okkur að flytja heim eins og fjöl- skyldan. En grundvöllur þess að raunhæft var að flytja heim var fyrst og fremst sú að hægt var að fá at- vinnu við sitthæfi. Enda hafa marg- ir verið að koma aftur heim núna upp á síðkastið því hér hefur verið hægt að fá vinnu, sem segir okkur að samfélagið í Eyjum er á uppleið og kreppan hefur ekki bitið okkur eins fast og á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa bærinn, fyrirtæki og ein- staklingar verið í stórframkvæmd- um og fasteignamarkaðurinn er á uppleið sem er vísbendingar um að þetta samfélag hér er á uppleið. Komin til að vera Hvernig fannst ykkur bœjar- bragurinn þegar þið fluttuð aftur heim? Funduð þið fyrir breytingum í ykkar heimabœ? „Þegar við íluttum heim vissi maður að hverju maður var að ganga enda hefur bæjarbragurinn ekki mikið breyst þó svo að mér finnist fólk núna mun jákvæðara en áður og fleiri jákvæðar fréttir sem koma frá Eyjum núna en áður en við fluttum í burtu. En hingað erum við komin til að setjast að til frambúðar og búin að koma okkur vel fyrir á Hólagötunni. Núna þarf maður ekki að vera lengur í Reykjavík en hálfan dag til að átta sig á því að það var hárrétt ákvörðun." Eins og áður sagði er starf Harðar Orra fjölbreytt en sjálfur segist hann hafa haft grunnþekkingu á sjávar- útvegi, þótt starfsreynslan haft ekki verið mikil. „Hjá ísfélaginu starfa ég með titilinn sérfræðingur, starfið er mjög fjölþætt en í stuttu máli hef ég verið mikið í ýmsum útreikningum fyrir mismunandi deildir fyrirtækisins, framlegðarútreikningum, kostn- aðareftirliti, áætlanagerð, frávika- greiningum og upplýsingatækni- málum. Ég hafði ekki mikla starfs- reynslu þegar ég byrjaði hjá ísfélaginu enda að koma úr fimm ára háskólanámi en hef þó unnið bæði í frystihúsi frá því að ég var peyi og var svo á sjó þegar ég gat eftir að ég fór í Háskólann. Ur þeirri vinnu hef ég því ákveðna grunn- þekkingu á hvað svona fyrirtæki eins og ísfélagið gerir. Því í grunn- inn snýst þetta um veiðar og vinnslu á fiski. En héma hjá ísfélaginu vinnur líka frábært starfsfólk með mikla starfsreynslu og hafa þau gert mér auðvelt fyrir að koma mér inn í hlutina." Þarf að skapa stöðugleika Hörður Orri segist ekkert hafa velt því fyrir sér að hugsanlega yrðu gerðar breytingar á fiskveiðistjóm- unarkerfmu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir fyrirtæki eins og Isfélagið, þegar hann tók við starfmu hjá fyrirtækinu. „Þegar ég kom heim til að vinna hjá ísfélaginu vissi ég svo sem af því að til stæði að breyta fiskveiðistjómunarkerfmu en hafði svo sem ekkert pælt í því neitt nánar. En menn þurfa svo sem ekkert að sökkva sér djúpt ofan í þessar hugmyndir til að sjá hversu miklum skaða þær geta valdið svona sjávarplássi eins og Vestmanna- eyjum. An þess að fara eitthvað djúpt ofan í þessar hugmyndir þarf fyrst og fremst að fara að skapa ein- hvem stöðugleika í þessum málum og hann þarf að sjálfsögðu að vera í sátt og í samstarfi við hagsmuna- aðila,“ sagði Hörður Orri að lokum. Er ekki alltaf logn í Eyjum? Mig rámar í það -spyr Örvar Guðni Arnarson, Eyjamaður sem tekur við starfi íjármálastjóra ísfélagsins Örvar Guðni Amarson tekur við sem fjármálastjóri Isfélagsins á næstu vikum en Örvar er borinn og bamfæddur Eyjamaður, sonur Arnar Ólafssonar eða „Amar í SÍS“ og Hrefnu Hilmisdóttur. Örvar flutti á unglingsárunum frá Eyjum en snýr nú aftur með fjölskyldu sína, eiginkonuna Hörpu Theodórs- dóttur, sem er einnig fædd og uppalin í Eyjum. Saman eiga þau þrjú börn, Sölku 10 ára, Klöm 6 ára og Högna 1 árs. Örvar segist hafa flutt á sínum tíma frá Eyjum til að hefja nám í framhaldsskóla. „Ég hóf nám í Iðnskólanum í Reykjavík og ári síðar í Verzlunarskólanum. Það var í sjálfu sér ekkert sem dró mig upp á land, hugsanlega smááhugi á því að læra tölvunarfræði en það risti ekki djúpt. Ég og vinur minn, Björn Friðriksson, ræddum mikið um að fara upp á land að læra. Okkur fannst þetta eflaust stórt skref að byrja í framhaldsskóla. Ég ÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA er elsta hlutafélag landsins en fyrirtækið er stofnað 1901 hef því verið á höfuðborgarsvæðinu í 20 ár. Ég fór á undan flestum upp á land, flestir vinir mínir klámðu Framhaldsskólann í Vestmanna- eyjum áður en þeir fluttu upp á land. En allir áttum við það sam- eiginlegt að vilja flytja aftur heim.“ Hvernig líkaði þér að búa á höfuðborgarsvceðinu? „Ég hef búið bæði í Kópavogi og Reykjavík en flutti í ársbyrjun 2007 á Alftanesið. Ætli maður venjist því ekki eftir 20 ár og öll viðmið em því gagnslaus. Okkur hefur liðið mjög vel á Álftanesi. Það verður spennandi að sjá hvemig lífið gengur í Eyjum.“ Hvað var það sem dró þig aftur heim? Starfið eða voru það fleiri þœttir? „Vill maður ekki bara kornast heim? Flestir ættingjamir em þama, flestir vinir em frá Eyjum þannig að heimsóknir verða eflaust tíðar, vegalengdir em styttri, fal- legra útsýni. Er ekki líka alltaf logn í Eyjum? Mig rámar í það.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.