Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 12
12 Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011 ízsýmng-'^g^Fimmtudagur 5. maí kl. 20:00 73.sýning // Laugardagur 7. maí kl. 15:00 u.sýning u Laugardagur 7. maí kl. 20:00 75.sýning n Sunnudagur 8. maí kl. 15:00 Athugið að þetta eru síðustu sýningarnar. Miðapantanir í síma 892-1285. Miðasala opnuð 1 og 1/2 klst fyrir sýningu. Ósóttir miðar seldir hálftíma fyrir sýningu. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi Karl Jónsson Lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 1. maí sl. Útforin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 7. apríl kl. 14.00 Fyrir hönd fjölskyldunnar Guðfinna (Stella) Eyvindsdóttir ír1 Elskulegur bróðir og frændi Hallgrímur Þorgrímsson frá Vestmannaeyjum, síðast Frostafold 32, Reykjavík Lést á líknardeild Landakots þriðjudaginn 3. maí. Útförin verður auglýst síðar. Fjölskylda og vinir U1 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Guðmundur H. Tegeder lést á Borgarspítala Reykjavíkur þriðjudaginn 12. apríl sl. Útförin fór fram miðvikudaginn 20. apríl í kyrrþey. Jólína Bjamason Sverrir Þór Guðmundsson Guðrún Linda Atladóttir Jónína Sigríður Guðmundsdóttir John Norðbúð Tomsen Gerhard Guðmundsson Sigurást Þóranna Guðmundsdóttir Haukur Hauksson Poula María Guðmundsdóttir Sumarstörf fyrir námsmenn fædda 1994 og eldri Sumarstarf hjá Vestmannaeyjabæ felst aðallega í störfum hjá Þjónustumiðstöð en einnig í flokkstjórastöðu við Vinnuskóla, starfi á gæsluvelli, aðstoð við sumarúrræði vegna fatlaðra barna og önnur þau störf sem til falla hjá Vestmannaeyjabæ. Laun skv. kjarasamningi STAVEY og Vestmannaeyjabæjar. Ráðningartími er frá 1. júní til 20. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Sumarstarfsfólk þarf að vinna á Goslokahátíð og Þjóðhátíð eins og aðrir starfsmenn Vestmannaeyjabæjar eftir fyrirmælum yfirmanns. Athugið að einungis þeir sem lögheimili eiga í Vestmannaeyjum koma til greina í sumar- vinnu hjá Vestmannaeyjabæ. Hægt er að sækja um störfin rafrænt á www.vestmannaeviar.is. Einungis er tekið við umsóknum á vefnum. Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar í síma 488-2530. Bæjarstjórnarfundur Almennur fundur verður haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja fimmtudaginn 5. maí kl. 12.00 í fundarsal Ráðhúss. Útvarpað verður frá fundinum á ÚV FM 1104,0 Bæjarstjóri. Sumarúrræði fyrir börn Vestmannaeyjabær auglýsir eftir aðilum sem áhuga f áhuga hafa að aldrinum 6-12 ára Vestmannaeyjabær auglýsir bjóða upp á sumarúrræði fyrir börn á sumarið 2011. Þeir aðilar sem ætla að reka almenn sumarúrræði fyrir börn sumarið 2011 geta sótt um styrk til Vestmannaeyjabæjar til að auðvelda börnum með sérþarfir aðgang og þátttöku í úrræðinu. Um er að ræða fjárhagsstyrk og viðbótar starfskraft í sam- ræmi við þarfir barnanna sem sækja um þátttöku. Skilyrði fyrir styrk er: • Fjöldi barna á námskeiði sé ekki undir 10 • Námskeiðstími fari ekki undir sex vikur • Að tryggt sé að fötluð börn eigi kost á að nýta sér að hluta eða öllu leyti umrædda þjónustu • Þess sé gætt að fjöldi starfsmanna sé nægilegur • Að alls öryggis sé gætt • Að farið sé eftir ákvæðum æskulýðslaga nr 70/2007 • Að börn með sérþarfir hljóti forgang Umsóknum ásamt dagskrá og upplýsingum um væntan- legt fyrirkomulag, skipulag og stjórnun skal skila til Jóns Péturssonar, framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslu- sviðs. Vinnuskólinn 2011 Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumar- mánuðina frá 6. júní til og með 19. ágúst 2011. Allir unglingar úr 8., 9. og 10. bekkjum grunnskólans með lögheimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku. Unglingarnir hefja ekki allir störf í byrjun júní. Þetta er gert til þess að halda úti nokkuðjöfnu vinnuafli alla sumarmánuðina. Boðið verður upp á 5 vikna starfstíma (25 vinnudaga) fyrir unglinga í 8. og 9. bekk en 6 vikur (30 vinnudaga) fyrir ung- linga í 10. bekk. Vinnutími frá 8.30- 11.30 og frá 13-16. Á næstu dögum verður nánari upplýsingum um Vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2011 dreift til barna í 8. - 10. bekk ásamt umsóknareyðublaði. Umsóknum á að skila til afgreiðslu Ráðhúss eða til Félagsheimilisins Rauðagerðis. Umsóknarfrestur verður til 18. maí 2011. Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar Deildarstjórastaða við GRV Vegna fæðingarorlofs er staða deildarstjóra, eldri deildar Grunnskóla Vestmannaeyja, laus til umsóknar, skólaárið 2011-2012. Stjórnunarreynsla, skilvirkni og markviss vinnubrögð, kennsluréttindi, hæfni og lipurð í samskiptum, drifkraftur og áhugi á að gera góðan skóla enn betri, nauðsynlegir þættir. Frekari menntun í uppeldis- og kennslufræðum og/eða stjórn- un menntastofnana æskileg. í Grunnskóla Vestmannaeyja eru um 580 nemendur. Skólinn starfar eftir Olweusaráætluninni og er að innleiða Uppeldi til ábyrgðar. Laun eru greidd skv. kjarasamningi KÍ og LN. Umsóknarfrestur er til 20. maí. nk. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs- reynslu skulu sendar í Ráðhús Vestmannaeyjabæjar eða á netfang Fanneyjar Ásgeirsdóttur skólastjóra, fanney@grv.is. Hún veitir jafnframt nánari upplýsingar um starfið í síma 488-2300 og 846-4797. íbúð óskast yfir þjóðhátíð 2011 Við erum 10 krakkar á aldrinum 22-25 ára. Við höfum leigt af sama aðila síðustu 2 hátíðir en það hús er því miður ekki laust í þetta skiptið og vantar því nýjan stað til að vera á. Við höfum alltaf skilað húsinu í frábæru standi og gengið vel um og ætlum að halda því áfram. Áhugasamir geta verið í sambandi í sfma 696-7649 eða sent á johnbond@hafnarfjordur.is íbúð til leigu Góð 3ja herbergja íbúð til leigu. laus 1. júní. Uppl. í s. 862-2521 Ibúð / hús óskast 4 herb. íbúð eða hús óskast til leigu sem fyrst á góðum stað í bænum. Öruggum greiðslum heitið. Langtímaleiga. Uppl. í s. 848-3559. Óskast keypt Er einhver sem vill selja mér sól- stóla / sólbekki, má vera plast. Uppl. í s. 551 -0492 eða 862-1021, Sigrún. Róðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159, sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.