Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Page 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011
Fræðslu og
menningarráð:
Kennslustofa
verður
þjónustuhús
Fræðslu- og menningarráð gerir
ekki athugasemdir við samþykkt
bæjarráðs vegna flutnings á
annarri af tveimur lausum skóla-
stofum við Barnaskólann. í fund-
argerð segir að það muni ekki
hafa stórfelld áhrif á skólastarf
GRV. Bæjarráð hafði áður fallist á
álit tæknideildar Vestmannaeyja-
bæjar um að þjónustuhús í
Herjólfsdal (gamli golfskálinn)
væri ónýtt og ekki verjandi að
leggja fé til endurbóta. Lagt var til
að húsið yrði rifið og jafnframt
bent á þann möguleika að flytja
lausar kennslustofur sem í dag eru
við Bamaskólann og nýta í
Herjólfsdal.
Úthlutun
kennslu-
stunda til
skólastarfs
Fjöldi nemenda við Grannskóla
Vestmannaeyja skólaárið 2011-
2012 er 581 sem er nánast sami
fjöldi og á núverandi skólaári.
Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og
fræðslusviðs lagði fram tillögu að
úthlutun kennslustunda fyrir
skólaárið á síðasta fundi fræðslu-
og menningarráðs. Lagt var til að
heildarfjöldi kennslustunda yrði
1241 stund sem er sami kennslu-
stundafjöldi og á núverandi skóla-
ári að frádregnum 20 kennslu-
stundum sem var úthlutað tíma-
bundið í ár vegna gæðastarfs í
skóla. Til viðbótar er úthlutun til
bókasafnsstarfa samtals 52,3
dagvinnustundir á viku og 26
yfirvinnustundir vegna gæslu í
frímínútum og hádegishléi. Til-
lagan hafði verið lögð fyrir
skólastjóra GRV sem er sam-
þykkur henni. Fræðslu- og menn-
ingarráð samþykkti ofangreinda
tillögu.
Sextán börn
á biðlista
Sextán böm, sem verða orðin 18
mánaða og eldri fyrir 1. septem-
ber 2011, eru á biðlista eftir leik-
skólaplássi. Þetta kom fram á
síðasta fundi fræðslu- og menn-
ingarráðs en á þessu ári hefur 42
börnum verið úthlutað leik-
skólaplássi. I fundargerð segir að
stefnt sé að því að skoða næstu
úthlutun í maí/júní en ráðið telur
mikilvægt að finna öllum börnum,
sem ná 18 mánaða aldurs-
mörkunum fyrir 1. september nk.,
pláss á leikskóla. Framkvæmda-
stjóra og fræðslufulltrúa, ásamt
leikskólastjórum, var falið að taka
saman hugsanlegar leiðir í þeim
efnum.
Fjölga þarf
dagforeldrum
Fjölga þarf dagforeldrum þar sem
fjórir af sjö starfandi dagforeldr-
um munu hætta störfum. I fund-
argerð fræðslu- og menningarráðs
kemur fram að nú era sjö dag-
foreldrar starfandi með samanlagt
31 bam en þegar þessir fjórir
hætta störfum standa eftir pláss
fyrir einungis 15 börn. Ráðið telur
mikilvægt að íjölga dagforeldram
til að mæta þeirri þörf sem skapast
og hefur þegar verið auglýst eftir
dagforeldram.
Tómas Þór sem fæddist heilum 14 vikum fyrir tímann en braggast vel:
Eyjapeyinn í sinni fyrstu
heimsókn til Vestmannaeyja
Tómas Þór, sonur Þórdísar
Þórðardóttur og Harðar Más
Þorvaldssonar vó aðeins rétt
rúmar þrjár merkur við fæðingu
en hann fæddist 14 vikum fyrir
tímann, þann 7. september 2010.
Tómas Þór býr ásamt foreldrum
sínum og systrum, Auði Kristu og
Andreu Hrönn, í Þýskalandi en
fjölskyldan var nýlega í heimsókn
á Islandi.
Tómas Þór, sem var í sinni fyrstu
Islandsferð, kom auðvitað til Eyja
enda búa afi og amma á staðnum.
Litli strákurinn er nú allur að bragg-
ast en fyrstu mánuðirnir voru
honum erfiðir þar sem hann þurfti
að dvelja á sjúkrahúsi og gangast
undir stórar læknisaðgerðir. Þórdís
var í viðtali við Fréttir þann 17.
febrúar sl. en þá var Tómas Þór á
leið í aðgerð og því forvitnilegt að
vita hvemig gengið hefur síðan.
„Það hefur ekkert komið upp eftir
síðustu aðgerðina sem fór fram 23.
febrúar en þá var hann búinn að vera
rúma viku á sjúkrahúsi. Hann fékk
sýkingu í þarma og þeir gengu út og
hann þurfti þar af leiðandi að fara á
sýklalyf áður en aðgerðin gat farið
MYNDARLEGUR EYJAPEYI. Þórdís og Tómas Þór saman í Eyjum
á dögunum.
fram. Hann var í fimm vikur á spít-
ala en eftir það hefur þetta komið
hægt og rólega og gengur alveg
þokkalega. Tómas Þór er farinn að
borða mat, það hefur orðið alveg
eðlileg þyngdaraukning og hann
hefur bætt á sig tveimur kílóum eftir
að aðgerðin var gerð og er nú orðinn
4,8 kíló. Þannig að þetta lítur allt vel
út,“ sagði Þórdís enda er Tómas Þór
athugull, fylgist vel með og brosir
sínu breiðasta.
Var ekki gott að komast heim?
„Jú það var alveg frábært og gott að
komast aðeins til Eyja. Fjölskyldan
var í fríi í tvær vikur, veðrið var ekki
upp á það besta og brjáluð snjókoma
þegar við fórum til baka til
Þýskalands á sunnudag. Andrea
Hrönn var heldur óheppin og datt á
skíðum fyrir norðan og er í gifsi og
lætur mömmu sína hafa svolítið
fyrir sér. En hér er blíðuveður og við
bara bjartsýn á framhaldið,“sagði
Þórdís þegar Fréttir náðu tali af
henni þar sem hún sinnti búi og
bömum í Þýskalandi.
Innanfélagsmót SJOVE á laugardaginn:
Vel heppnað mót í ágætu veðri
Sjóve var með innanfélagsmót á
laugardag og mótið tókst vel í
ágætis veðri. Aflahæsti bátur
mótsins var Mardís VE með 328.80
kfló og meðalafli á stöng 109,6 kfló.
Sigurður Einar Gíslason var
aflahæsti karl með 124,45 kfló og
aflahæsta kona var Sonja Andrés-
dóttir með 41,70 kíló. Einar Birgir
Einarsson veiddi flesta fiska en þeir
vora 66 og Sigurður Einar Gíslason
var með flestar tegundir eða 6.
Sigtryggur Þrastarson veiddi
stærsta fiskinn sem var þorskur og
vó 13,9 kíló. Ríkharður Jón
Stefánsson var með stærstu ýsuna,
2,05 kfló, Hallur Einarsson stærsta
ufsann 2,0 kfló og Ævar Þórisson
var með stærsta karfann, 1,55 kíló
og stærstu lönguna 3,65 kíló.
Sigurður Einar Gíslason var með
stærsta steinbítinn 1,15 kfló, Einar
Birgir Einarsson stærstu keiluna
5.05 kíló, Sonja Andrésdóttir
stærstu lýsuna 0,60 kfló og Ríkarður
Jón Stefánsson með var með stærsta
Jóhann og Sigtryggur skoða KÁTIR VORU KARLAR. Pétur Eyjólfsson, Ríkharður Stefánsson og
aflann. Ævar Þórisson kátir eftir daginn.
Gáfu Sjúkra-
húsinu málverk
Ættingar, börn og barnabörn
Láru Kristínar og Björns
Finnbogasonar frá Kirkjulandi
gáfu Sjókrahósinu á dögunum
málverk eftir Engilbert Gíslason.
Gjöfin er gefin til minningar um
Láru og Björn. Á myndinni eru
þau Alda Jóhanna Jóhannsdóttir
og Jóhann Ingi Óskarsson ásamt
Gunnari Kr. Gunnarssyni, fram-
kvæmdastjóra Sjókrahóssins,
sem veitti gjöfinni viðtöku.