Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011
19
I
íslandsmót öldunga í blaki í Vestmannaeyjum
Von á eitt þúsund keppendum
- Held að mótið verði lyftistöng og efli blakáhugann í Eyjum, segir Sigurlaugur Ingólfsson, formaður
blakdeildar Þróttar sem heldur mótið í samstarfi við ÍBV-íþróttafélag.
Blaksamband íslands hcldur ís-
landsmót öldunga í Vestmanna-
eyjum um helgina. IBV og blak-
deild Þróttar í Reykjavík hafa
umsjón með mótinu en það er nú
haldið í fyrsta skipti í Vest-
mannaeyjum. Um 1000 keppend-
ur eru skráðir til leiks og koma
örugglega til með að setja svip á
bæinn en keppt er í tveimur
aldursflokkum á mótinu, 30 til 50
ára og 50 ára og eldri.
Sigurlaugur Ingólfsson, formaður
Blakdeildar Þróttar, sagði að
upphaflega hafi 126 lið verið skráð
til keppni á mótið í Eyjum en eitt
þeirra hafi hætt við og nú væru 125
lið skráð til leiks. Það eru jafnmörg
lið og kepptu á mótinu í fyrra en þá
var metfjöldi á mótinu og yfir 1000
keppendur," sagði Sigurlaugur en
þegar hann var spurður um ástæðu
þess að mótið er haldið í Eyjum
nefndi hann þijár meginástæður.
„Okkur fannst spennandi að vera
með mót á stað þar sem keppendur
geta haldið saman auk þess sem
íþróttaaðstaða í Eyjum er frábær. Við
þurfum a.m.k. tíu blakvelli og þeir
eru allir í kringum Iþróttamið-
stöðina, í u.þ.b. fimm mínútna
göngufæri frá hvor öðrum. Svo
viljum við Þróttarar líka benda á
eigið aðstöðuleysi með því að vekja
athygli á Eyjum og aðstöðunni þar,“
sagði Sigurlaugur og tók fram að
: Sigurgeir Jónasson
j %
Mynd
rt'ww.sigurgeir.is
U.‘
' t - * * “
BLAKLIÐ EYJAMANNA 1978. Efri röð frá vinstri: Ólafur Einarsson, Sigmar Þröstur Óskarsson, Jón
Haukur Daníelsson, Björgvin Eyjólfsson, Baldvin Kristjánsson, Ingi Tómas Björnsson, Haraldur Geir
Hlöðversson. Fremri röð: Helgi Már Reynisson, Guðni Valtýsson, Leifur Georgsson, Þórarinn Þórhallsson.
menn legðu mikið á sig til að fá
þessi mót enda mjög góð fjáröflum.
„Þróttur og ÍBV höfðu samstarf um
að sækja um og félögin höfðu sótt
þrisvar um þegar við fengum mótið.
Um 1000 keppendur verða á mótinu
og eflaust makar og fylgdarlið líka
þannig að þetta er fjöldi manns. Það
má búast við að meirihluti keppenda
og mótsgesta komi á miðviku-
deginum til Eyja þar sem mótið hefst
á fimmtudagsmorgun og það verður
keppt frá 09.00 til 19.00 fimmtudag,
föstudag og laugardag og mótinu
lýkur með lokahófí á laugar-
dagskvöld.
Kvenkeppendur erufleiri en karlar á
mótinu, er einhver skýring á því?
„Eg veit ekki hvað skýrir það en
liðin koma frá hefðbundnum
íþróttafélögum og virinustöðum,
Lansinn er t.d. skipað liði frá
Landspítalanum o.s.frv. Þetta er
blanda af fólki sem æfði á yngri
árum og þeim sem byrja seinna. Það
eru til dæmis tólf deildir kvenna en
karladeildimar eru átta og skipt eftir
styrkleika og meiri keppni í efri
deildum en í þeim neðri þar sem
reynsluminni keppendur eru. Eg
held að mótið verði lyftistöng og efli
áhuga fyrir blaki í Eyjum og það er
ekki verra. Vestmannaeyingar áttu
mjög gott blaklið upp úr 1980 og
nokkrir þeirra, þar á meðal Haraldur
Geir Hlöðversson, spilaði með
landsliðinu. Arið 1982 drógu þeir sig
út úr deildarkeppninni vegna ferða-
kostnaðar en spiluðu úrslitaleik við
Þrótt í bikamum. Fjórir af þeim leik-
mönnum ætla að keppa núna og mér
skilst að þeir hafi varla snert blak-
bolta síðan, en þeir ætla að rifja upp
gamla takta um helgina," sagði
Sigurlaugur og á auðvitað von á
skemmtilegu og líflegu móti um
helgina.
I
Pepsídeild karla: ÍBV - Fram 1:0
Dramatískt sigurmark
Markaskorarinn Tryggvi Guðmundsson hefur engu gleymt, með sigurmark í upp-
bótartíma - ÍBV spilar þrjá leiki á tíu dögum í upphafi íslandsmótsins
Það er óhætt að segja að
Eyjamenn hafi farið vel af stað í
Islandsmótinu í knattspyrnu sem
hófst með leik ÍBV og Fram á
Hásteinsvellinum. Þetta var
þriðja árið í röð sem þessi lið
mætast í fyrstu umferðinni. Til
þessa höfðu liðin spilað á
Laugardalsvelli og höfðu Fram-
arar í bæði skiptin haft betur, 2:0.
En nú var komið að sigri hjá IBV
en langsóttur var hann. Loka-
tölur urðu 1:0 og skoraði Tryggvi
Guðmundsson sigurmarkið þegar
uppbótartíminn var við það að
renna út.
Eyjamenn léku ágætlega í leiknum,
sérstaklega í síðari hálfleik. Sterkur
vindurinn hafði þó allt of mikil áhrif
á leikinn til að hægt sé að dæma
getu liðanna. En það þarf að sýna
baráttu og kraft til að vinna svona
vorleiki og þar var ekki komið að
tómum kofanum hjá Eyjamönnum.
Fremstur í flokki fór aldurs-
forsetinn, Tryggvi Guðmundsson
sem enn á ný sýndi að markanefið er
í góðu lagi þegar hann þefaði uppi
nánast vonlaust markfæri í blálokin
og skilaði boltanum auðvitað á sinn
stað í markið.
Næsti leikur verður ekki síður
erfiður en á laugardaginn klukkan
16:00 taka Eyjamenn á móti Fylki.
Fylkismenn fóru illa að ráði sínu í
fyrstu umferðinni gegn Grind-
víkingum þegar þeir töpuðu 2:3 eftir
að hafa komist í 2:0. Grindvíkingar
skoruðu einmitt sigurmarkið í upp-
bótartíma og því má búast við
Arbæingum sem grenjandi ljónum á
laugardaginn. Eftir það er svo
útileikur gegn Val næstkomandi
miðvikudag þannig að ekki gefst
GLEÐII LEIKSLOK. Heimir Hallgrímsson, þjálfari IBV og daninn
geðugi Rasmus Christiansen brostu út að eyrum eftir sigurinn gegn Fram.
mikill tími á milli leikja til að jafna
sig.
Lið ÍBV: Albert Sævarsson, Amór
Eyvar Ólafsson, Eiður Aron Sigur-
björnsson, Rasmus Christiansen,
Matt Garner, Ian Jeffs, Tonny
Mawejje, Andri Ólafsson, Þórarinn
Ingi Valdimarsson, Tryggvi Guð-
mundsson og Denis Sytnik.
Varamenn: Abel Dhaira, Brynjar
Gauti Guðjónsson, Finnur Ólafsson,
Yngvi Magnús Borgþórsson,
Guðmundur Þórarinsson (kom inn á
fyrir Jeffs á 83.), Jordan Connerton
(kom inn á fyrir Sytnik á 69.),
Kelvin Mellor (kom inn á fyrir
Amór á 80.)
Mark ÍBV: Tryggvi Guðmundsson
á 93. mínútu.
Pepsídeild karla
Eyjastúlkur unnu B-deildina
Kvennalið ÍBV vann B-deiId
lengjubikarnsins nokkuð sann-
færandi en liðið lék síðasta
leikinn um síðustu helgi. Þá
spiluðu stelpurnar gegn Þrótti á
gervigrasinu í Laugardal en fyrir
leikinn hafði IBV unnið alla fjóra
leiki sína í keppninni. Lokatölur
gegn Þrótti urðu hins vegar 2:2.
IBV endaði í efsta sæti deildar-
innar með 13 stig en Þróttur varð
í öðru sæti með 8.
KFS áfram í bikarkeppninni
KFS lék opnunarleik knatt-
spyrnutímabilsins þegar þeir
sóttu Alftanes heim í Valitor
bikarkeppninni. Þetta var fyrsti
leikur í deild og bikar en
Eyjamenn fögnuðu að sjálfsögðu
sigri, 0:2 og eru komnir áfram í
2. umferð. Þar taka þeir á móti
Árborg á Helgafellsvelli en
leikurinn er á sunnudaginn
klukkan 14:00.
Framundan
Laugardagur 7. maí
Kl. 16:00 IBV-Fylkir
Kl. 13:00 FH-IBV
3. flokkur kvenna
Keflavík 1 1 0 0 4-2 3 Pepsídeiid karla. Kl. 13:00 Grindavík-IBV
Víkingur 1 1 0 0 2-0 3 Kl. 11:00 ÍA2-ÍBV2 4. flokkur kvenna.
Grindavík 1 1 0 0 3-2 3 5. flokkur karla, A- og B-lið. Kl. 14:00 Haukar-ÍBV
KR 1 1 0 0 3-2 3 Kl. 14:00 Afturelding-ÍBV2 5. flokkur karla, ABCD.
ÍBV 1 1 0 0 1-0 3 3. flokkur kvenna, A-lið. Kl. 9:00 ÍA2-ÍBV
Valur 1 1 0 0 1-0 3 Kl. 14:00 Víðir-ÍBV 5. flokkur kvenna, C-lið
Breiðablik 1 0 0 1 2-3 0 5. flokkur kvenna A-lið. Kl. 9:00 Álftanes-ÍBV
Fylkir 1 0 0 1 2-3 0 Kl. 16:00 Breiðablik-ÍBV 5. flokkur kvenna, AB.
FH 1 0 0 1 0-1 0 3. flokkur karla, A- og B-lið. Miðvikudagur 11. maí
Fram 1 0 0 1 0-1 0 Sunnudagur 8. maí Kl. 20:00 Valur-ÍBV
Stjaman 1 0 0 1 2-4 0 Kl. 14:00 KFS-Árborg Pepsídeild karla.
Þór 1 0 0 1 0-2 0 Valitor-bikarkeppni karla.