Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Síða 1
Viðgerðir
og smurstöð
(Íí -Sími 481 3235
BRAGGINN Réttingar
og sprautun
Bílaverkstæði - Flötum 20 - Sími 48 i 1535
38. árg. I 49. tbl. I Vestmannaeyjum 8. desember 2011 I Verð kr. 350 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
SNJÓR hefur legið yfir í tæpan hálfan mánuð og frostið farið upp í fimm gráður. Þetta kunna krakkarnir að meta og fjölmenna á Stakkó.
Skandia fékk gat á stefnið
- Hélt áfram að dæla - Gert við gatið í Skipalyftunni - Dæling eilífðar-
verkefni, segir skipstjórinn - Þekkir vel aðstæður við Suðurströndina
Skandia lenti í hremmingum þegar
hún var við dýpkun í Landeyjarhöfn
á laugardagsmorgun. Skipið var á
leið inn í höfnina þegar það fékk á
sig brot bakborðsmegin með þeim
afleiðingum að það kastaðist á hafn-
argarðinn og gat kom á stefni
skipsins, stjómborðsmegin.
Guðmundur Kr. Guðmundsson,
skipstjóri, hefur verið um borð í
Skandiu síðan í ágúst en hefur mikla
reynslu af sjómennsku. Hann byrj-
aði til sjós 1962 og réri frá Homa-
firði og þekkir því suðurströndina
vel. „Það er viðbúið að eitthvað
svona gerist þegar allt er reynt til að
opna höfnina,11 sagði Guðmundur
þegar hann var spurður út í atvikið
en viðgerð á Skandiu fór fram á
sunnudag og mánudag. „Við vomm
búnir að vera að alla nóttina og
vomm að dæla inni í höfninni þegar
við fengum brotið á okkar og hún
kastaðist austur undan brotinu og
upp á utanverðan garðinn. Við
náðum ekki að bakka en höggið sem
við fengum á okkur var ekki mikið,“
sagði Guðmundur og þegar hann var
spurður út í veðrið sagði hann það
hafa verið þokkalegt. „Það vom 2,8
metrar á duflinu en það er ekkert að
marka því það getur brotið á við
höfnina þó það sé lítil alda.“
Eruð þið að setja ykkur í stórhœttu?
„Við teljum svo ekki vera en við
vitum ekki fyrr en brotin koma og
það er ekki neinn fyrirvari á þeim.
Við vomm að lóna okkur inn þegar
það komu þrjú brot í röð og við lent-
um uppi í garðinum."
Er mikil pressa á ykkur?
„Nei, við reynum að gera þetta
með skynsemi að leiðarljósi, það
þýðir ekkert annað.“
Það hafði gengið ágœtlega að
dœla?
„Við vomm við dælingu mestallan
fimmtudaginn en fómm aðeins inn í
Eyjum vegna smávægilegrar bilun-
ar. Við vomm svo að allan föstu-
daginn en svo gerðist þetta klukkan
07.00 á laugardagsmorgun. Þá
vomm við búnir að dæla alla nóttina
en í heildina vomm við búnir að
dæla um 17.000 rúmmetmm. Við
héldum svo áfram fram yfir hádegi á
laugardag," sagði Guðmundur og
þegar kom til tals að þá væri lítið
eftir af 20 þúsund rúmmetrum
sagðist hann telja að magnið væri
miklu meira.
30.000 til 40.000 rúmmetrar
„Ég held að þetta séu á milli 30 og
40 þúsund rúmmetrar eins og ég sló
á þetta. Svo ef það kemur kvika þá
kemur þetta eins og skot aftur.
Dýpið var orðið ágætt um tíma og
við sáum fram á að geta opnað en þá
gerði brælu og höfnin lokaðist. Það
var allt við innsiglinguna en fínt
fyrir innan. Við fómm út í það að
dæla utan frá og grafa okkur inn en
sandurinn er á fullri ferð og hefst
ekki undan ef það gerir veður,“
sagði Guðmundur og var því næst
spurður hvort gosefni úr Eyjafalla-
jökli settu enn strik í reikninginn.
„Þetta er bara sandur og nóg af
honum, öll Suðurströndin frá
Homafirði til Þorlákshafnar. Það
þarf að finna einhverja betri lausn en
þetta. Um leið og gerir sunnanátt og
brælir þá lokast höfnin," sagði Guð-
mundur og ekki annað að heyra á
honum en þetta væri eilífðarverk-
efni.
Sjá myndir á bls. 6.
^jærra veiðigjald:
Utgerðir
í Eyjum
borga
mest
Veiðigjald á næsta fiskveiðiári
verður um 9,1 milljarður króna og
hækkar úr 9,46 krónum á þorsk-
ígildiskíló í 19,21 krónu.
Þetta kom fram í svari Jóns
Bjamasonar, sjávarútvegsráðherra
við fyrirspurn Einars K. Guð-
finnssonar á Alþingi á föstudag.
Morgunblaðið fjallaði um málið á
mánudag og þar kemur fram að
hlutfall af reiknaðri framlegð
hækki úr 13,3% f 27%.
Samkvæmt svari ráðherrans var
veiðigjaldið á síðasta yfirstand-
andi fiskveiðiári rúmlega þrír
milljarðar en verður rúmir níu
milljarðar
í svari sjávarútvegsráðherra kom
fram að útgerðir í Vestmanna-
eyjum greiða hæsta veiðigjaldið á
yfirstandandi fiskveiðiári eða
rúmlega 423 milljónir króna. I
öðm sæti er Reykjavík með tæp-
lega 389 milljónir og útgerðir í
Grindavík greiða 221 milljón
króna.
Haft er eftir Einari K. Guðfmns-
syni að í raun sé veiðigjaldið
landsbyggðarskattur og eðlileg
krafa sé að það skili sér aftur til
landsbyggðarinnar með einhverj-
um hætti.
Mælt á föstudag
Herjólfur siglir samkvæmt áætlun
til Þorlákshafnar fram til
mánudags. Ekki hefur verið siglt
þangað síðan mánudaginn 7.
nóvember.
„Núna eru Skandia og Perlan við
dýpkun og róið að því öllum
árum að opna höfnina á næstu
dögum,“ sagði Gunnlaugur
Grettisson, rekstarstjóri Eimskips.
„Mæling á dýpi í og við höfnina
fer fram á föstudag og þá kemur í
ljós hvort hægt er að opna höfn-
ina. Um leið og það er hægt
verður áætlun Herjólfs færð til
Landeyjahafnar."
Veðurspá er hagstæð fyrir
Landeyjahöfn.
OC EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR
jólapBkkunum tTl skila
| www.flytjandi.is | slmi 525 7090 |
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
TOYOTA í EYJUM
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BILAVIÐGEÐIR VIÐ ERUM A MOTI STRAUMI...!
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
FLATIR21 S. 481 -1216 GSM.864-4616
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m
og hámarksþyngd 45 kg.
EIMSKIP