Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 19
Frcttir / Fimmtudagur 8. desember 2011 19 Bjartur Bjartmar á gamalkunnum slóðum Einn með gítarinn náði Bjartmar Guðlaugsson að fylla Alþýðuhúsið og gott betur eitt laugardagskvöldið fyrir skömmu. Og stemmningin var í anda áranna þegar Alþýðuhúsið var helsta vígi framsækinnar tón- listar í landinu. Var ekki sú hljóm- sveit sem vildi láta taka sig alvar- lega sem ekki hafði látið ljós sitt skína þar í þá gömlu góðu. Þetta upplifði Bjartmar ungur og í Alþýðuhúsinu fékk hann það í fyrsta skipti, það upplýsti hann á tónleikunum. Það var eins og mátti reikna með, talsvert af fólki, sam- ferðamönnum Bjartmars í aldri, sem fæddur er 1952 en það sem vakti athygli er hvað mikið af ungu fólki var á tónleikunum. Það má hann örugglega þakka nýjustu plötu sinni, Skrýtin veröld, sem hann gaf út með hljómsveit sinni, Bergris- unum, í fyrra. En lög og ljóð Bjartmars eru líka tímalaus sem hver Islendingur, sem vill kalla sig því nafni, á að þekkja. Og hver þekMr ekki sjálfan sig eða einhvem úr vinahópnum í lögum eins og Súrmjólk í hádeginu og cheerios á kvöldin, Týnda kynslóð- in, Fimmtán ára á föstu og Sum- arliði er fullur. Allt með því besta sem gert hefur verið í íslenskri tón- list og ljóðum þar sem Bjartmar nær svo listilega að segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru. Og Bjartmar brást ekki sínu fólki í Alþýðuhúsinu þetta kvöld, söng af ótrúlegum krafti og þegar best lét tók salurinn undir. Þetta kryddaði hann með mergjuðum sögum af sjálfum sér og öðrum, flestar frá árunum í Vestmannaeyjum. Þetta kunnu gestir að meta og Bjartmar var ekki síður ánægður með sitt fólk og skemmti sér frábærlega. Sem sagt frábærir tónleikar þar sem troðfullt Alþýðuhúsið gekk í endumýjun lífdaga. Omar Garðarsson. EKKERT KYNSLÓÐABIL Fólk á öllum aldri mætti á tónleikana og allir skemmtu sér jafn vel. TEKIÐ Á ÞVÍ. Bjartmar átti auðvelt með að fá gesti til að taka undir með sér enda þekkja allir lögin hans og textana frábæru. Hrund og Ágústa létu ekki sitt eftir liggja í söngnum. Kvenfélag Landakirkju: Góðgæti fyrir munn og maga og líka andann Kvenfélag Landakirkju var með sitt árlega aðventukaffi og hlutaveltu og basar síðasta sunnudag sem var fyrsti sunnudagur í aðventu. Var kirkjugestum boðið í kaffi í Safnaðarheimilinu að lokinni messu þar sem séra Kristján Bjömsson predikaði. Kitty Kovács, organisti og kórstjóri er farin að setja mark sitt á tónlistarflutning í kirkjunni og ekki skemmir þegar eiginmaðurinn, Balázs Stankowsky, bregður boganum á fiðlustrengina. Litlir Lærisveinar glöddu kirkjugesti með söng sínum. Á eftir var farið í Safnaðarheimilið þar sem kaffi og rjómavöfflur biðu gesta. Á basamum voru jólakort, smákökur, brauð, kökubotnar og heitir brauðréttir. Ágóðinn rennur til kirkjunnar, Hraunbúða, Sjúkrahússins og einstaklinga. — -/- m GIRNILEGT Rjómavöfflurnar voru vinsælar eins og venjulega. KAREN umkringd góðgæti sem konurnar höfðu útbúið. SÖLUKONUR Fríða og Björg seldu miða og líka Ijóðabók með Ijóðum sr. Þorsteins Lúthers og diskinn með Litlu lærisveinunum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.