Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 17
Frcttir / Fimmtudagur 8. desember 2011 17 Atli Gíslason skrifar: Er óeining vinstri manna einum ráð- herra að kenna? Ráðherra sjávarútvegsmála hefur látið vinna drög að frumvarpi til nýrra laga um fiskveiðistjómun. í stað þess að hefja málefnalega um- ræðu um þær tillögur hefur umræð- an beinst að því hvort ráðherra hafi umboð til þeirra starfa. Málið var yfir 100 vikur í samráðsferli ríkis- stjómarflokkanna án þess að árang- ur næðist. Nú hefur ráðuneytið tekið sér 7 vikur til að greiða úr þeirri umræðu og leggja fram vinnuskjöl og er þá sakað um seinagang. Vanstillt og vanhugsuð viðbrögð vegna málsins vekja upp spumingar sem undirritaður reifar hér í pistli. Þriðjudaginn 22. nóvember sl. lagði Jón Bjamason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fram í ríkisstjóminni vinnuskjöl, þ.e. drög að fmmvarpi til breytinga á fisk- veiðistjómunarlögunum ásamt greinargerð og þijú fylgiskjöl. Einnig var fjallað um málið á ríkisstjómarfundi 25. nóvember sl. Þessi vinnuskjöl vom lögð fram sem umræðugrundvöllur, jafnt í ríkisstjóm sem og í þingflokkum stjómarflokkanna, með þeim ein- læga ásetningi að leita sátta í mál- inu. Jón Bjamason kynnti auk þess ætlun sína að kynna þessi gögn á netinu til að leita eftir athugasemd- um og ábendingum hagsmunaaðila og almennings. Það var gert í anda samstarfsyfirlýsingar ríkisstjómar- innar um að beita sér fyrir opinni stjómsýslu, auknu gagnsæi og lýð- ræðisumbótum. Dómgreindarleysi Eins og kunnugt er fór forsætisráð- herra á límingunni og brást ókvæða við með stóryrðum í garð Jóns Bjamasonar um „vinnubrögð" hans. Fleiri fylgdu í fótspor hennar, þar með talinn þingflokksformaður VG, Björn Valur Gíslason. Þessi vanstilltu og vanhugsuðu viðbrögð sýna dómgreindarleysi. Ég satt best að segja reiknaði með að forsætisráðherra og aðrir spor- göngumenn hennar hefðu látið svo lítið að kynna sér efnisatriði vinnu- skjalanna áður en þau létu gamm- inn geisa um meint óboðleg vinnu- brögð. Að þau tjáðu sig um efni málsins en létu ekki reiði vegna afstöðu Jóns Bjamasonar í ESB málinu ráða för og villa sér sýn. Ég spyr. Var það óboðlegt að skipa sáttanefnd undir forystu Guðbjarts Hannessonar og Björns Vals Gísla- sonar sem skiluðu af sér skýrslu í september 2010 eftir rúmlega árs vinnu? Var það óboðlegt af Jóni Bjamasyni að láta starfsmenn ráðuneytis síns vinna drög að fmm- varpi um ný fískveiðistjórnunarlög í anda skýrslu sáttanefndarinnar í samráði við sex þingmenn stjómar- flokkanna? Þau vom Helgi Hjörvar, Ólína Þorvarðardóttir og Róbert Marshall frá Samfylkingunni og Atli Gíslason, Bjöm Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir frá VG. Þetta frumvarp leit dagsins ljós í lok febrúar 2011. Og ég spyr enn. Var það óboðlegt af Jóni Bjamasyni að samþykkja að sömu þingmenn auk ráðherranna Jóhönnu Sigurðar- dóttur, Jóns Bjamasonar, Stein- gríms J. Sigfússonar og síðar Guð- bjarts Hannessonar fæm yfir þessi fmmvarpsdrög og legðu fram endanlegt fmmvarp? Bilið milli Björns Vals og Ólínu Er það á ábyrgð Jóns Bjamasonar að bullandi ágreiningur var um fmmvarpið innan stjómarflokk- anna? Er við Jón Bjamason að sakast að fmmvarpið varð ekki að lögum meðan það var í meðfömm Alþingis allt fram í september sl.? Verður Jóni Bjamasyni kennt um að himinn og haf em milli skoðana Ólínu Þorvarðardóttur og Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur annars vegar og Bjöms Vals Gfslasonar, talsmanns Steingríms J. Sigfússon- ar, og Kristjáns Möller hins vegar um fiskveiðistjómunarfrumvarpið svo einhver nöfn séu nefnd? Em það óboðleg vinnubrögð Jóns Bjamasonar að skipa starfshóp til að vinna úr umsögnum um hið óbrúklega maífmmvarp og leggja fram vinnuskjöl með tillögum til umræðu innan ríkisstjómar og þingflokka og meðal hagsmuna- aðila og almennings aðeins sjö vikum eftir að hann fékk málið aftur í fangið frá þinginu? Dæmi nú hver um sig. ESB málið ræður för Ég velkist ekki í vafa eftir að hafa verið þátttakandi í þessu leikriti, reyndar í aukahlutverki frá því 21. mars 2011, hvað sé óboðlegt í mál- inu. Yfirlýsingar Jóhönnu Sigurð- ardóttur gagnvart Jóni Bjamasyni em lýðræðislega óboðlegar. Þær eru aumt og ódrengilegt yfirklór. Þar ræður för óbeisiuð og upp- söfnuð reiði í garð Jóns Bjama- sonar fyrir heiðarlega afstöðu hans gagnvart ESB-umsókninni. Jón Bjamason hefur verið lagður í ein- elti af Samfylkingunni svo miss- emm skiptir og það án þess að for- maður VG lyfti Íitla fingri honum til vamar. Em Jóhanna Sigurðar- dóttir og Steingrímur J. Sigfússon búin að gleyma samstarfsyfirlýs- ingu ríkisstjómarinnar þar sem segir orðrétt: „Flokkamir em sammála um að virða ólíkar áherslur hvors um sig gagnvart aðild að Evrópusamband- inu og rétt þeirra til málflutnings og baráttu úti í samfélaginu í sam- ræmi við afstöðu sína og hafa fyrir- vara um samningsniðurstöðuna líkt og var í Noregi á sínum tíma.“ Framganga Jóhönnu Sigurðar- dóttur gagnvart Jóni Bjamasyni og reyndar einnig Ögmundi Jónassyni vegna Grímsstaðamálsins og fyrri uppákomur vekja upp áleitnar spumingar. Höfundur er alþingismaður Líknarkaffið markar upphafið að jólaföstu Arlegt Fyrsta deskaffí og basar Kven- félagsins Líknar var í Höllinni á fimmtu- daginn og mætti fjölmenni eins og alltaf. Borðin svignuðu undan kræsingunum sem Líknakonur höfðu útbúið. Óskar Pétur, Ijós- myndari var mættur og sagði hann fólk hal'a verið mjög ánægt. Það er ekki bara að fólk mæti í Höllina til að fá sér smakk, mörg fyrirtæki fá lertur og kiikur sent á vinnustaðinn til að bjóða starfs- fólkinu. A basarnum voru mest hlutir tengdir jólunum. allt forkunnarfagurt og seldist vel. Líknarkaffið er skemmtileg hel'ð í upphafi jólaföstu og einn af föstu punktunum í bæjarlífinu í desember. Og í hugum margra er þetla upphafið að aðventunni. Mvndirnar tók Óskar Pétur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.