Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 21
Fréttir / Fimmtudagur 8. desember 2011 21 sins - Starfar í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn: fyrirtæki landsins tusra hótana stjórnvalda Það var mikið um dýrðir í Akóges þar sem ísfélag Vestmannaeyja minntist þess að 110 ár voru frá stofnun félagsins, fimmtudaginn 1. desember sl. fsfélagið, sem er elsta starfandi hlutafélag landsins, var stofnað 1. desember árið 1901. Var það og er eitt af stærstu fyrir- tækjum landsins í sjávarútvegi í dag. Við þetta tækifæri voru starfs- menn heiðraðir fyrir langan starfs- aldur hjá félaginu og 21 félag og stofnanir fengu styrki í tilefni afmælisins. „Við erum um þessar mundir að fagna einstökum atburði, sem er að félagið okkar, Isfélag Vestmanna- eyja varðl 10 ára þann 1. desember sí. Ekkert íslenskt hlutafélag hefur náð slíkum aldri sem gerir okkur einstök," sagði Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri þegar hann ávarpaði starfsfólk og gesti í afmælishófinu. „Það er reyndar vel við eigandi að það félag sem nær þessum árangri fyrst íslenskra hlutafélaga skuli starfa í sjávarútvegi og vera auk þess upprunnið í Vestmannaeyjum og það skuli kenna sig við Vestmannaeyjar eins og Isfélagið hefur ávallt gert,“ bætti Stefán við. ísfélagið starfar einnig á Þórshöfn þar sem boðið var til veislu á sjálf- an afmælisdaginn. „Þar buðum við bæjarbúum til kaffisamsætis. Sýndist okkur að um 220 manns væru þar mættir í hátíðarskapi eða tæplega 60% bæjarbúa. Töldu heimamenn að ekki hefði verið haldin á Þórshöfn fjölmennari samkoma. Þótti mér sérstaklega vænt um að varaformaður og framkvæmdastjóri verkalýðsfélagsins, Krístín Kristjánsdóttir, skyldi stíga á stokk og færa ísfélaginu sérstakar þakkir. Ég átti að skila til Vestmannaeyja hennar bestu kveðjum og þökkum fyrir aðkomu ísfélagsins að at- vinnuuppbyggingu á Þórshöfn og skal það hér með gert. Færði hún félaginu auk þess gjafir verkalýðs- félagsins." Þegar ísfélagið var stofnað fyrir 110 árum var meginverkefnið rekstur frosthúss til varðveislu beitu, en línuveiðum höfðu þá nýverið vestmanneyskir sjómenn kynnst á Austfjörðum. „Síðan eru liðin 110 ár og ísfélaginu hefur vaxið ásmegin. Félagið er nú sýnist mér þriðja stærsta sjávar- útvegsfyrirtæki á íslandi, sé tekið tillit til fjárhagslegrar getu og styrks. Félagið hefur aldrei í sögu sinni verið öflugra en einmitt nú og væri tilbúið til enn frekari sóknar og stækkunar ef aðstæður leyfðu. Við hins vegar þurfum að þola hömlulausar hótanir stjómvalda um að rekstrargrundvellinum verði kippt undan okkur í einu vetfangi en allur okkar rekstur og allar okkar fjárfestingar byggjast vita- skuld á því lagaumhverfi sem stjómvöld á hverjum tíma hafa skapað okkur,“ sagði Stefán og hvatti fólk þrátt fyrir þetta til að horfa bjartsýnt til framtíðar. „Eigendur og stjómendur Isfélagsins ætla sér ekki annað en félagið verði áfram burðarás í atvinnulífi Vestmannaeyja. Við höfum notið þess að starfsfólk Isfélagsins hefur sýnt félaginu mikla trúfestu. Það munum við sjá á eftir þegar við afhendum góðum hópi fólks þakklætisvott fyrir lang- an starfsaldur,“ sagði Stefán. Eftir að Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson, stjómarformaður, hafði ávarpað gesti var boðið upp á veitingar sem Líknarkonur höfðu veg og vanda af. Stórsveit Tónlistarskólans lék nokkur lög. og það gerðu líka Védís Guðmundsdóttir og Ásta María Harðardóttir sem léku á þverflautur. Ennfremur fengu forráðamenn félaga og samtaka gjafabréf sem hljóða upp á styrki Isfélagsins þeim til handa í tilefni tímamótanna. ÁSTA MARÍA og Védís Iéku á þverflautur. HÖRÐUR og Martin Eyjólfsson. ÞRJÁTÍU ÁRA starfsmenn, Almar Hjarðar, Tómas Jóhannesson og Haraldur Halldórsson sem tók við viðurkenningunni f.h. föður síns, Halldórs Haraldssonar. FJÖLMENNI var í afmælisveislu ísfélagsins á Þórshöfn. Tuttugu og einn hlaut styrk -Fimmtán í Eyjum og sex á Þórshöfn Vestmannaeyjar: Krabbavöm Vestmannaeyjum Björgunarfélag Vestmannaeyja Slysvamadeildin Eykyndill Kvenfélagið Líkn Vestmannaeyjadeild RKÍ Hjálparstarf kirkjunnar í Vestm.eyjum Þroskahjálp Vestmannaeyjum íþróttafélagið Ægir Big Band Vestmannaeyja Skólalúðrasveit Vestmannaeyja Lúðrasveit Vestmannaeyja Leikfélag Vestmannaeyja Sambýlið við Vestmannabraut Hjartaheill Vestmannaeyjum Gmnnskóli Vestmannaeyja Þórshöfn: Björgunarsveitin Hafliði Heislugæslan Þórshöfn v/tækjakaupa Rauðakrossdeild Þórshafnar Kvenfélagið Hvöt Tónlistarskóli Þórshafnar Kvenfélag Þistilfjarðar KRISTINN og Þórarinn á léttu spjalli. STÓRSVEITIN skemmti gestum. FJÖLMARGIr gestir mættu í afmælishófið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.