Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Blaðsíða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 8. desember 2011 Eldvarnavika: Börnin frædd um hættuna Eins og undanfarin ár stóð Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna, fyrir eldvamaviku í gmnnskólum landsins. Sérstök áhersla var lögð á kynningu brunavarna fyrir 8 ára börn og fengu þau sérstakt heimaverkefni til úrlausnar með foreldrum sínum. Lausnir verða síðan metnar, dregið úr réttum lausnum og veg- leg verðlaun veitt. í tilefni vik- unnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöð- ina, þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins. Þá var sýndur búnaður reykkafara og hvernig hann er undirbúinn fyrir reykköfun, einnig var kenn- arinn látinn slökkva eld með eldvamateppi. Öll fá bömin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga, en í henni em líka góðir fróðleiksmolar fyrir börnin um eldvarnir. í framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðs- menn hvetja íbúa í Eyjum að yfir- fara eftirfarandi: Reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur upp á. Við slökkviliðsmenn óskum bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum alla velvild í okkar garð. • • Orn á Brekku finnur annað flöskuskeyti Vigri Bergþórsson, 12 ára, henti út flöskuskeytum af frystitogar- anum Hrafni GK 111 í júní sl. Var hann þá á veiðum í Kolluál, 64,29°Norður og 26,06°Vestur Vigri býr að Glæsivöllum 8 í Grindavík. Öm Einarsson á Brekku fann eitt flöskuskeytið í Prestafjöm í síðari hluta nóvember. Hefur hann haft samband við Vigra og pabba hans. Vigri henti út fleiri flöskuskeytum og var þetta það fyrsta sem hann frétti af. Það gladdi hann mjög að sögn Amar. Fyrr í haust fann Öm flösku- skeyti í Prestafjöru og kom það frá Færeyjum. Hefur hann haft samband við sendanda. r* 7To1T4 6?7 1 r iSSs* BALDURSHAGI setur skemmtilegan svip á miðbæinn nú þegar jólin nálgast. Baldurshagi - Sameinast um jolafjör Verslanir og fyrirtæki í Baldurshaga ætla að brydda upp á nýjung og vera með Jól í Baldurshaga í dag, fimmtudaginn 8. desember. „Við ætlum að vera með sérstaka dagskrá frá kl. 19.00 til 22.00 og Vinaminni verður með opið lengur eða til 23.30,“ sagði Gréta H. Grétarsdóttir, kaupmaður í Baldurshaga þegar hún var spurð út í dagskrána. „Við verðum með tískusýningu og kynningar og hvert og eitt fyrirtæki verður með sérstakt tilboð fyrir viðskiptavini. Asta Steinunn Ast- þórsdóttir ætlar að vera veislustjóri og boðið verður upp á söngatriði og happdrætti. Við vonumst til að viðskiptavinir okkar geti átt ánægjulega kvöldstund með okkur enda býður húsnæðið upp á ýmsa möguleika. Ekki skemmir fyrir að fólk getur sest niður á flottum veitingastað og fengið sér eitthvað spennandi,“ sagði Gréta og vonast til að sjá sem flesta í Baldurshaga á fimmtudagskvöld. Mandal gefur út disk - Átta lög við texta Jóns Þorsteinssonar: Þessir sálmar hafa snert við mér -Helga Jónsdóttir - Sýna lífið í Eyjum á 17. öld - Tónleikar á laugardag MANDAL Chris, Bára, Helga og Arnór. Mandal verður með útgáfutónleika í Vinaminni næsta laugardag, 10. desember. Mandal er skipað þeim Helgu Jónsdóttur, Arnóri Her- mannssyni, Báru Grímsdóttur og Chris Foster og á diskinum eru átta lög við texta Jóns Þorsteinssonar, þar af sex sem tengjast jólum. „Þetta er afrakstur af fjögurra ára samstarfi sem má rekja til þess að Kári Bjamason kallaði okkur til og bað okkur um, fyrir hönd Söguset- ursins, að skoða sálma Jóns Þor- steinssonar og útsetningar sem til voru. Jón orti þessi andlegu ljóð og sálma oft við svokallaða lagboða og síðan stóð til að halda eina tón- leika og gefa út disk með þessari tónlist," sagði Helga en Mandal stendur sjálft að útgáfu disksins. „Samstarf okkar í Mandal hófst í apríl 2008 en til að einfalda þetta verk var ákveðið að við skoðuðum jóla- og nýárssálma Jóns. Nú erum við með átta sálma sem við höfum samið og útsett lög við og erum að gefa út,“ sagði Helga en tónleik- amir urðu heldur fleiri en upphaf- lega var áætlað því á laugardag eru níundu tónleikamir. „Þessir sálmar hafa snert við mér og úr þeim er hægt að lesa hvemig lífið var á þeim tíma sem þeir vom samdir. Mér finnst líka svo sérstætt hvemig ég er alltaf komin í byggðina undir hrauninu. Jón sat á Kirkju- bæjum og samdi þessa sálma og á þeim tíma var húsakostur oft lélegur og ég var að leika mér í Rauðahelli þar sem talið er að Jón hafi verið hálshöggvinn. Textamir em auðskiljanlegir og enginn ósnortinn af þeim. Við höfum fengið mikil viðbrögð eftir tónleika og einn tónleikagesta sagði mér að hann hafi öðlast bamatrúna aftur og annar kom til mín og sagði að við hefðum fært honum jólin eins og þau vom þegar hann var lítill." Helga segir að það hafi verið ein- stakt að vinna með Báru og Chris sem væru snillingar. Eg er ekki viss um að fólk geri sér grein fyrir hvað Chris er í miklum metum úti í heimi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Það em engin landamæri til hjá þeim. Við notum langspilið og finnsku kjöltuhörpuna, Bouz- ouki og gítar og ég fæ að leika á trommu sem heitir Bodhran. Mér finnst mikill heiður að taka þátt í að koma menningararfi Jóns Þor- steinssonar og Vestmannaeyja á framfæri. Með diskinum fylgir textabók ásamt upplýsingum um tilurð Mandals og upplýsingum um list sem hægt er að rekja til ársins 1600,“ sagði Helga og þess ber að geta að tónleikamir em í Vinaminni á laugardag og hefjast klukkan 21.00. Talsverðar skemmdir á Skandia þegar skipið fékk á sig brot í Landeyjahöfn SOÐIÐ í GATIÐ Gat kom á stefnið á Skandía þar sem skipið var að dæla í Landeyjahöfn um helgina. Gert var við gatið í Skipalyftunni. Þröstur Jóhannsson og Bryngeir Sigfússon, starfsmenn Skipalyftunnar, gera við gatið á Skandia en stefni hennar var rennt inn í lyftuna. GATIÐ Höggið virðist hafa verið mikið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.