Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Page 17
Frcttir / Fimmtudagur 8. desember 2011
17
Atli Gíslason skrifar:
Er óeining vinstri manna einum ráð-
herra að kenna?
Ráðherra sjávarútvegsmála hefur
látið vinna drög að frumvarpi til
nýrra laga um fiskveiðistjómun. í
stað þess að hefja málefnalega um-
ræðu um þær tillögur hefur umræð-
an beinst að því hvort ráðherra hafi
umboð til þeirra starfa. Málið var
yfir 100 vikur í samráðsferli ríkis-
stjómarflokkanna án þess að árang-
ur næðist. Nú hefur ráðuneytið
tekið sér 7 vikur til að greiða úr
þeirri umræðu og leggja fram
vinnuskjöl og er þá sakað um
seinagang.
Vanstillt og vanhugsuð viðbrögð
vegna málsins vekja upp spumingar
sem undirritaður reifar hér í pistli.
Þriðjudaginn 22. nóvember sl.
lagði Jón Bjamason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, fram í
ríkisstjóminni vinnuskjöl, þ.e. drög
að fmmvarpi til breytinga á fisk-
veiðistjómunarlögunum ásamt
greinargerð og þijú fylgiskjöl.
Einnig var fjallað um málið á
ríkisstjómarfundi 25. nóvember sl.
Þessi vinnuskjöl vom lögð fram
sem umræðugrundvöllur, jafnt í
ríkisstjóm sem og í þingflokkum
stjómarflokkanna, með þeim ein-
læga ásetningi að leita sátta í mál-
inu. Jón Bjamason kynnti auk þess
ætlun sína að kynna þessi gögn á
netinu til að leita eftir athugasemd-
um og ábendingum hagsmunaaðila
og almennings. Það var gert í anda
samstarfsyfirlýsingar ríkisstjómar-
innar um að beita sér fyrir opinni
stjómsýslu, auknu gagnsæi og lýð-
ræðisumbótum.
Dómgreindarleysi
Eins og kunnugt er fór forsætisráð-
herra á límingunni og brást ókvæða
við með stóryrðum í garð Jóns
Bjamasonar um „vinnubrögð"
hans. Fleiri fylgdu í fótspor hennar,
þar með talinn þingflokksformaður
VG, Björn Valur Gíslason.
Þessi vanstilltu og vanhugsuðu
viðbrögð sýna dómgreindarleysi.
Ég satt best að segja reiknaði með
að forsætisráðherra og aðrir spor-
göngumenn hennar hefðu látið svo
lítið að kynna sér efnisatriði vinnu-
skjalanna áður en þau létu gamm-
inn geisa um meint óboðleg vinnu-
brögð. Að þau tjáðu sig um efni
málsins en létu ekki reiði vegna
afstöðu Jóns Bjamasonar í ESB
málinu ráða för og villa sér sýn.
Ég spyr. Var það óboðlegt að skipa
sáttanefnd undir forystu Guðbjarts
Hannessonar og Björns Vals Gísla-
sonar sem skiluðu af sér skýrslu í
september 2010 eftir rúmlega árs
vinnu? Var það óboðlegt af Jóni
Bjamasyni að láta starfsmenn
ráðuneytis síns vinna drög að fmm-
varpi um ný fískveiðistjórnunarlög
í anda skýrslu sáttanefndarinnar í
samráði við sex þingmenn stjómar-
flokkanna? Þau vom Helgi Hjörvar,
Ólína Þorvarðardóttir og Róbert
Marshall frá Samfylkingunni og
Atli Gíslason, Bjöm Valur Gíslason
og Lilja Rafney Magnúsdóttir frá
VG. Þetta frumvarp leit dagsins ljós
í lok febrúar 2011. Og ég spyr enn.
Var það óboðlegt af Jóni Bjamasyni
að samþykkja að sömu þingmenn
auk ráðherranna Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, Jóns Bjamasonar, Stein-
gríms J. Sigfússonar og síðar Guð-
bjarts Hannessonar fæm yfir þessi
fmmvarpsdrög og legðu fram
endanlegt fmmvarp?
Bilið milli Björns Vals og Ólínu
Er það á ábyrgð Jóns Bjamasonar
að bullandi ágreiningur var um
fmmvarpið innan stjómarflokk-
anna? Er við Jón Bjamason að
sakast að fmmvarpið varð ekki að
lögum meðan það var í meðfömm
Alþingis allt fram í september sl.?
Verður Jóni Bjamasyni kennt um
að himinn og haf em milli skoðana
Ólínu Þorvarðardóttur og Lilju
Rafneyjar Magnúsdóttur annars
vegar og Bjöms Vals Gfslasonar,
talsmanns Steingríms J. Sigfússon-
ar, og Kristjáns Möller hins vegar
um fiskveiðistjómunarfrumvarpið
svo einhver nöfn séu nefnd?
Em það óboðleg vinnubrögð Jóns
Bjamasonar að skipa starfshóp til
að vinna úr umsögnum um hið
óbrúklega maífmmvarp og leggja
fram vinnuskjöl með tillögum til
umræðu innan ríkisstjómar og
þingflokka og meðal hagsmuna-
aðila og almennings aðeins sjö
vikum eftir að hann fékk málið
aftur í fangið frá þinginu? Dæmi nú
hver um sig.
ESB málið ræður för
Ég velkist ekki í vafa eftir að hafa
verið þátttakandi í þessu leikriti,
reyndar í aukahlutverki frá því 21.
mars 2011, hvað sé óboðlegt í mál-
inu. Yfirlýsingar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur gagnvart Jóni Bjamasyni
em lýðræðislega óboðlegar. Þær eru
aumt og ódrengilegt yfirklór.
Þar ræður för óbeisiuð og upp-
söfnuð reiði í garð Jóns Bjama-
sonar fyrir heiðarlega afstöðu hans
gagnvart ESB-umsókninni. Jón
Bjamason hefur verið lagður í ein-
elti af Samfylkingunni svo miss-
emm skiptir og það án þess að for-
maður VG lyfti Íitla fingri honum
til vamar. Em Jóhanna Sigurðar-
dóttir og Steingrímur J. Sigfússon
búin að gleyma samstarfsyfirlýs-
ingu ríkisstjómarinnar þar sem
segir orðrétt:
„Flokkamir em sammála um að
virða ólíkar áherslur hvors um sig
gagnvart aðild að Evrópusamband-
inu og rétt þeirra til málflutnings
og baráttu úti í samfélaginu í sam-
ræmi við afstöðu sína og hafa fyrir-
vara um samningsniðurstöðuna líkt
og var í Noregi á sínum tíma.“
Framganga Jóhönnu Sigurðar-
dóttur gagnvart Jóni Bjamasyni og
reyndar einnig Ögmundi Jónassyni
vegna Grímsstaðamálsins og fyrri
uppákomur vekja upp áleitnar
spumingar.
Höfundur er alþingismaður
Líknarkaffið markar upphafið að jólaföstu
Arlegt Fyrsta deskaffí og basar Kven-
félagsins Líknar var í Höllinni á fimmtu-
daginn og mætti fjölmenni eins og alltaf.
Borðin svignuðu undan kræsingunum sem
Líknakonur höfðu útbúið. Óskar Pétur, Ijós-
myndari var mættur og sagði hann fólk hal'a
verið mjög ánægt.
Það er ekki bara að fólk mæti í Höllina til
að fá sér smakk, mörg fyrirtæki fá lertur og
kiikur sent á vinnustaðinn til að bjóða starfs-
fólkinu.
A basarnum voru mest hlutir tengdir
jólunum. allt forkunnarfagurt og seldist vel.
Líknarkaffið er skemmtileg hel'ð í upphafi
jólaföstu og einn af föstu punktunum í
bæjarlífinu í desember. Og í hugum margra
er þetla upphafið að aðventunni.
Mvndirnar tók Óskar Pétur.