Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Side 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 8. desember 2011
ENGIN sjúkraflugvél er í Eyjum. Því er sinnt frá Akureyri og þegar ekki gefur til flugs er gripið til þyrlu.
Bæjarstjóri um HV - Draga á úr þjónustu og öryggi okkar Eyjamanna
-Lögð niður í því formi sem við þekkjum - Fjársvelta á forræðið í burtu
Verður útibú frá Selfossi
-Þjónusta við sykursjúka, hjarta- og offítusjúklinga dregst saman -
Mönnun legudeilda er minni - Þurfum bráða- og skurðþjónustu
„Ég hef miklar áhyggjur af þróun
mála á Heilbrigðisstofnun okkar
Eyjamanna. Hvað sem líður full-
yrðingum um að þjónustan við
okkur sé og verði sú sama og hingað
til þá liggur fyrir að á síðustu ámm
hefur orðið mikil breyting þar á,“
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
um stöðu Heilbrigðisstofnunar Vest-
mannaeyjum (HV).
„Stærsta breytingin er sú að skurð-
stofan er nú lokuð í sex vikur svo
fæðandi konur hafa þurft að fara til
Reykjavíkur til að ala böm sín. Þá
hefur verið dregið mikið úr göngu-
deildarstarfsemi og eitthvað úr þjón-
ustu heilsugæslulækna. Þjónusta á
göngudeildum sykursjúkra, hjarta-
og offitusjúklinga hefur einnig dreg-
ist saman. Mönnun legudeilda er
minni og áfram má telja. Mín skoð-
un er hreinlega sú að það sé verið að
draga úr þjónustu og öryggi okkar
Eyjamanna og í raun að fjársvelta
forræði stofnunarinnar í burtu frá
okkur enda stefnt að því að leggja
hana niður í því formi sem við
höfum þekkt hana og reka hana sem
útibú frá Selfossi."
Elliði segir að sér hugnist það illa.
„Ég er reyndar orðinn verulega
argur yfir því að ríkið klifar sí og æ
á kostum sammna stofnana og hag-
kvæmni stærðarinnar. Þar á bæ ættu
menn samt að þekkja að flestar þær
rannsóknir sem gerðar hafa verið
sýna fram á annan raunvemleika,
þ.e. kostnaður hefur aukist við sam-
einingar.
Ef stjómarráðið er ekki meðvitað
um þetta ættu þeir ef til vill að lesa
rit útgefið af Fjármálaráðuneytinu í
desember 2008 sem ber heitið
„Sameining ríkisstofnana“. Þar
segir: „...sameiningar og aðrar
meiriháttar breytingar skila sjaldan
þeim árangri sem vonast er eftir eða
Páll Scheving:
Hér verði
skurðstofa
„Ég legg áherslu á að hér sé
öflug heilsugæsla og tel mikil-
vægt að við sjúkrahúsið sé
skurðstofa sem sé partur af
þeirri grunnþjónustu sem hér
hefur verið. Lega samfélagsins
býður ekki upp á annað og því
skiptir miklu máli að þessi
þjónusta sé til staðar,“ sagði Páll
Scheving þegar hann var
spurður út í stöðu Heilbrigðis-
stofnunar Vestmannaeyja.
í undir 15% tilvika." Beiðni mín og
krafa er því sú að við fáum áfram að
hafa forræði Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja í Vestmannaeyjum
og að þjónustan verði bætt en ekki
dregið úr henni.“
Þessu til stuðnings bendir Elliði á
að rekstrargjöld stofnunarinnar
lækkuðu um 17% milli áranna 2008
og 2010. „Fjárveitingar til hennar
lækkuðu svo um 62,2 milljónir í
fjárlögum 2011. Áætluð hagræð-
ingarkrafa ásamt uppsöfnuðum
halla er núna um 40 milljónir króna.
Ég hef upplýsingar um að meðal
þess sem ráðuneytið hefur nú lagt til
og vinni að sé að vaktalína lyflæknis
í Eyjum verði lögð niður. Ef satt
reynist þá verður þar með grund-
vellinum kippt undan stöðu lyf-
læknis við sjúkrahúsið okkar en hér
hefur verið sérfræðilæknir í lyf-
lækningum í meira en 30 ár. Sá
læknir sér meðal annars um að
greina og meðhöndla bráðatilfelli
Frá velferðarráðuneytinu - Að gefnu tilefni:
Um Heilbrigðisstofnun Vm
Velferðarráðuneytið vill koma á
framfæri leiðréttingum vegna
frétta Eyjafrétta og ummæla
bæjarstjórans í Vestmanna-
eyjum þess efnis að til standi að
loka starfsemi heilbrigðisstofn-
unarinnar í bænum.
Ráðuneytið vill koma því á
framfæri að engin áform eru
uppi um slíkt né er gert ráð fyrir
að breytingar verði á þjónustu-
stigi við íbúa Vestmannaeyja.
Heilbrigðisstofnunin í Vest-
mannaeyjum er lítil stofnun að
umfangi en gegnir mikilvægu
öryggishlutverki á staðnum.
Lega eyjanna gerir meiri kröf-
ur til viðbúnaðar á staðnum en
almennt gengur og gerist á
stofnunum af sambærilegri
stærð. Sem fyrr verður því rekin
á stofnuninni sama þjónusta og
áður, þar með talið skurðstofa.
bæði hjá fullorðnum og bömum og
er mikilvægur bakhjarl fyrir heilsu-
gæsluna. Allt þetta er svo gert undir
yfirlýstu markmiði velferðarráð-
herra um að bæta eigi aðgengi íbúa
landsbyggðarinnar að sérfræði-
læknisþjónustu."
Elliði bendir á landfræðilega legu
Vestmanneyja og til þess þurfi að
taka tillit. „Vestmannaeyjar eru
einnig næststærsti þéttbýliskjami á
Islandi utan höfuðborgarsvæðisins
og þjónustan verður að vera í sam-
ræmi við það. Við þurfum bæði
bráðaþjónustu eins og skurðstofu og
öfluga sérfræðilæknaþjónustu auk
hinnar sjálfsögðu kröfu um öfluga
heilsugæslu.
Eina leiðin til að tryggja nauðsyn-
lega sérfræðilæknisþjónustu er að
hér sé aðstaða til þess að sinna henni
og tækifæri fyrir sérfræðilækna að
starfa í stærstu sérgreinunum, lyf-
lækningum og skurðlækningum.
Ég deili því á engan hátt draumum
heilbrigðisyfirvalda um að hafa
aðeins tvö deildarskipt sjúkrahús
starfandi í landinu (Landspítalann
og Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri).
Slíkt gengur ekki upp. Samfélagið
í Eyjum hefur alla tíð staðið með
sinni stofnun og á erfiðum tímum
sem núna skiptir miklu að við
höldum því áfram. Mér finnst illa
vegið að samfélagi sem leggur
mikið til hins sameiginlega rekstrar
ríkisins. Þeir sem um þetta véla
ættu ef til vill að horfa til þess að við
greiðum 421 milljón á næsta fisk-
veiðiári í sértækan landsbyggðar-
skatt sem þeir kalla veiðileyfagjald.
Það ætti að hjálpa þeim að taka
ákvörðun um að efla frekar þjónustu
Heilbrigðisstofnunarinnar í Eyjum
en að vega að henni,“ sagði Elliði að
endingu.
Jól með Presley:
Frestað
um viku
Jól með Elvis á Prófastinum
verða 16. og 17. desember en
ekki 8. og 9. desember eins og
fyrirhugað var.
Brynjólfur Sigurðsson, mat-
reiðslumaður, sagði að fólk hefði
verið búið að gera ráðstafanir þá
helgi og því hefði verið ákveðið
að færa Jól með Elvis til um eina
helgi. „Þetta kvöld hefur vakið
mikla lukku á höfuðborgarsvæð-
inu og lítil fyrirtæki og sauma-
klúbbar verið að panta þetta út
um allar trissur.
Fólk er orðið þreytt á þessum
hefðbundnu jólahlaðborðum
enda eru þau svolítið stöðnuð og
fólk er að borða hangikjöt og
svipaðan mat um jólin, “ sagði
Brynjólfur.
Matseðillinn hjá Brynjólfi
samanstendur af 12 uppáhalds-
réttum Elvis og má þar nefna
brauðhleif fylltan með beikoni
o.fl., hjúpaðar kjúklingalundir,
smjörsteikta samloku með fyll-
ingu, kjöthleif, grilluð svínarif,
kryddlegna kalkúnabringu,
lambalæri og fleiri gómsæta
aðal- og eftirrétti.
„Við verðum með Hawaii tón-
leika Elvis Presley á stórum skjá
og svo stíga eftirhermur á stokk
og skemmta gestrum. Fólk hefur
verið mjög ánægt með matinn og
skemmtunina," sagði Brynjólfur
og vonast eftir að sjá sem flesta
á Jólum með Elvis 16. og 17.
desember.
Stafkirkjan
býður á tón-
leika
Tónlistarhjónin Kitty Kovács,
píanóleikari, og Balázs Stan-
kowsky, fiðluleikari verða með
tónleika í Stafkirkjunni á sunnu-
daginn ki. 17.00.
Það er Stafkirkjan sem heldur
tónleikana og býður bæjarbúum
að koma, frítt. Þau leika sígild
verk, m.a. Ave Maria, og íslensk
þekkt tónverk sem tengjast að-
ventunni og jólum og eru allir
hjartanlega velkomnir. Enginn
aðgangseyrir.
Stjóm Stafkirkjunnar
ÉfgefandL Eyjnsýn ehf. 480278-054!) - Vestnmmmeyjum. Ritstjóri: Ómar Garflarsson.
BlaOamenntGuObjörgSignrgeirsdóttirog.lnlius Ingason. Ábyrgðarmenn: ÓmarGarðars-
son & Gísli Valtj sson.
Prentrinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritBtjórnar: Strandvegi 47.
Símai: 4811300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frcttir@eyjafrettir.is.
Veffang: bttp/Avww.eyjafrettir.is
FítÉTTER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i liskrift og einnig í lausasölu n Kletti,
Tristinnm, Toppnum, Vöruval, Ilerjólfi, I'lughafnarversluninni, Krónunni, lsjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu í Friðaxböfn.. FRÉTTTR eru prentaðar i 2000 eintökmn.
ERÉTTER eru aðilar að Samtiikum biejar- og héraðsfréttablaða. Eftirpreuhm, bljóðritun,
notkun 1 jósmynda og annað er óbeimilt nema heimilda sé getið.