Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Side 23
Fréttir / Fimmtudagur 8. desember 2011
23
íþróttir
Handbolti:
Annar flokkur
í góðum
málum
Annar flokkur karla sótti Gróttu 2
heim á Seltjamanesið síðastliðinn
sunnudag. Eyjapeyjar hafa spilað
vel það sem af er veturs, þótt í
liðið vanti tvo sterka leikmenn, þá
Einar Gauta Ólafsson, sem er
meiddur og Birki Má Guðbjöms-
son, sem var lánaður í Fjölni fram
að áramótum. Liðið leikur í 2.
deild en á þó möguleika á að
komast í úrslitakeppni íslands-
mótsins í vor. Strákamir vora
sterkari á Seltjamamesinu, voru
13:18 yfir í hálfleik og unnu að
iokum 32:36. ÍBV er í öðru sæti
2. deildar með 10 stig eftir sex
leiki en Afturelding er efst með 12
stig eftir sjö leiki. Þess má geta
að strákarnir spila í bikarnum
gegn HK á morgun, föstudag
klukkan 17:00 eða á undan leik B-
liðs ÍBV og HK í meistaraflokki.
Fjórði flokkur karla lék gegn FH
og KR um helgina. B-liðið tapaði
24:15 eftir að staðan var 12:6 í
hálfleik, A-liðið tapaði líka,
29:19 en staðan í hálfleik var
16:11. Daginn eftir lék A-liðið
svo gegn KR og tapaði í jöfnum
leik, 23:21 en Eyjapeyjar vora yfir
í hálfleik 9:11. B-liðið tapaði hins
vegar stórt fyrir Stjömunni, 33:23
eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 17:11.
Fjórði flokkur kvenna lék gegn
FH á laugardag og vann 17:19
eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 6:10. Stelpumar töpuðu
hins vegar illa fyrir Fram daginn
eftir 25:14 en staðan í hálfleik var
13:8.
Fótbolti:
Styrktarmót
fyrir Steingrím
Föstudaginn 30. desember hyggst
smíðaklúbburinn „Þumalputtar“,
ásamt ÍBV-íþróttafélagi, halda
styrktarmót í knattspyrnu fyrir
markahrókinn Steingrím Jóhann-
esson. Öll innkoma af mótinu
rennur óskipt til Steingríms og
fjölskyldu en Steingrímur berst
við krabbamein. Við hvetjum
fyrirtæki, félög og vinahópa að
taka þátt og styðja þétt við bakið á
markahróknum. Mótið verður í
Eimskipshöllinni og verður vænt-
anlega keppt á tveimur völlum,
sem eru !4 af keppnisstærð
knattspymuvalla. Mótið er bæði
fyrir konur og karla. Tekið er við
skráningum á netfangið
odi@eyjar.is en mótsgjald er að
lágmarki 10 þúsund krónur á lið.
Fyrsta skóflustunga að nýrri
stúku við Hásteinsvöll var tekin
á laugardaginn. Það var
Eyjólfur Guðjónsson, útgerðar-
maður, sem tók fyrstu skófiu-
stunguna en Eyjólfur var einn
þeirra sem söfnuðu fé í fram-
kvæmdina.
Knattspyrna:
Stórleikur vetrarins
- Erlingur Richardsson, þjálfari HK segist ætla að spila með
ÍBV þrátt fyrir fréttir um annað. - HK á að vinna segir hann
SPILAR gegn lærisveinum sínum. Erlingur Richardsson, þjálfari HK
og leikmaður B-liðs ÍBV er í þeirri sérstöku stöðu að spila gegn
lærisveinum sínum í HK í bikarkeppninni.
Á morgun, föstudag, mun B-lið
ÍBV taka á móti HK í 8-liða úr-
slitum Eimskipsbikarsins. HK er
í dag eitt af bestu liðum Islands í
handboltanum enda er liðið í öðru
sæti úrvalsdeildarinnar, þremur
stigum á eftir Haukum. Það eru
fyrrum þjálfarar IBV, þeir
Erlingur B. Richardsson og
Kristinn Guðmundsson, sem
stýra liði HK en Erlingur er jafn-
framt leikmaður B-liðsins.
Leikur liðanna fer fram í gamla
sal íþróttamiðstöðvarinnar og
hefst klukkan 19:00.
Það er vissara fyrir áhorfendur að
mæta tímanlega til leiks enda var
fúllt á síðasta leik B-liðsins þegar
þeir tóku á móti B-liði HK í 16 liða
úrslitum keppninnar. Þá vora áhorf-
endabekkir famir að fyllast hálftíma
fyrir leik og sjaldan verið jafn mikill
áiugi fyrir einum handboltaleik í
Eyjum. Þá unnu Eyjamenn 24:19 en
búast má við að róðurinn verði öllu
erfíðari gegn aðalliðinu á morgun.
„Auðvitað spila ég“
Ekki er hægt að segja að leið HK
haft verið þymum stráð það sem af
er í keppninni. Fyrst lögðu þeir
Fjölni að velli 13:36 og síðan
Stjömuna 24:33. Fyrst nú mæta þeir
liði sem hugsanlega veitir þeim ein-
hverja mótspyrnu, B-liði ÍBV.
Kristinn Guðmundsson, annar þjálf-
ari HK, gaf það út í vikunni að
Erlingur B. Richardsson myndi ekki
fá leyfi til að spila með B-liðinu á
móti HK en samkvæmt heimildum
Frétta mun Erlingur ekki taka upp á
því núna að hlusta á ráðleggingar
Kristins og því má búast við að hann
spili gegn lærisveinum sínum.
„Auðvitað spila ég á föstudaginn.
Eg á reyndar við smávægileg
meiðsli að stríða en ég reyni auðvit-
að að vera með. Ég held að þetta
hafi nú verið í gríni hjá Kidda enda
skemmtilegur drengur," sagði
Erlingur. HK spilar næst í deildinni
gegn FH á útivelli en Erlingur segir
að það eigi ekki að hafa áhrif á
leikinn. „Þetta er kannski ekki
heppilegasti undirbúningurinn en
við þurfum að spila þennan leik.
Leikurinn átti upphaflega að fara
fram um síðustu helgi en þá var
Daði Páls ennþá meiddur þannig að
það var ákveðið að spila þarna.
Desembermánuður er frekar stremb-
inn, bæði er þétt spilað og svo eru
margir leikmenn í prófum á þessum
tíma.“
Fagnar, hvernig sem fer
En með hvoru liðinu heldurðu?
„Það má kannski orða þetta sem svo
að ég eigi eftir að fagna, hvemig
sem leikurinn fer. En ætli ég geti
ekki bara sagt upp störfum sem
þjálfari HK ef B-liðið vinnur og ein-
beitt mér að því að spila í undan-
úrslitum með þeim. En HK á auð-
vitað að vinna þennan leik. Ég hef
hins vegar sagt við strákana að það
þýði ekkert að mæta með hangandi
hendi á móti B-liði ÍBV því þá verði
þeim refsað illilega. Ég hef líka sagt
við þá að ef þeir vinna ekki þetta lið,
þá eigi þeir einfaldlega ekkert erindi
í undanúrslit."
Eru leikmenn eitthvað farnir að
skjóta á þig fyrir leikinn?
„Ég held að ég sé sá sem er að skjóta
mest. Ég er búinn að kynda vel
undir og er búinn að gefa svo mikið
færi á mér að strákamir mæta ör-
ugglega með boxhanskana til að
þagga niður í þjálfaranum. Það var
nú líka að hluta til viljandi gert hjá
mér til að halda þeim á tánum. Ég
sagði líka við Óla Bjarka, einn besta
mann deildarinnar, að ef hann næði
að fitta sig framhjá mér einu sinni,
þá væri það mjög gott. En hann færi
bara einu sinni framhjá mér, það
yrði séð til þess,“ sagði Erlingur
hlæjandi að lokum.
1. deild karla: ÍBV - Stjarnan
Allt í einum hnút í 1. deildinni
- Eyjamenn töpuðu þriðja leiknum sínum af síðustu fjórum um síðustu helgi
- ÍR stal toppsætinu og aðeins tvö stig skilja efstu fjögur liðin að
Eyjamenn töpuðu illa fyrir
Stjörnunni á heimavelli á laugar-
daginn. Reyndar var munurinn
ekki nema tvö mörk í leikslok en
spilamennska liðsins í fyrri
hálfleik er með því lélegasta sem
sést hefur um langt skeið hjá IBV.
Eftir frábæra byrjun á Islands-
mótinu, þar sem IBV vann alla
leiki sína í 1. umferð, hefur liðið
aðeins unnið einn leik í 2. umferð
en síðasti leikur umferðarinnar
verður á laugardaginn. Sama var
uppi á teningnum í fyrra, þegar
liðið byrjaði vel en missti svo
flugið í 2. umferð og vann þá
aðeins einn leik.
Um leikinn á laugardaginn má segja
að hálfleikimir tveir hafi verið eins
og svart og hvítt. Leikmenn ÍBV
vora algjörlega á hælunum í fyrri
hálfleik, bæði í vöm og sókn. í
sóknarleiknum vantaði einhvem til
að taka af skarið en þeir sem gerðu
það, áttu einfaldlega ekki nógu
góðan dag. Amar Pétursson, þjálf-
ari ÍBV, skipti út mönnum en eldcert
virtist virka og þegar upp var staðið
var munurinn heil níu mörk í
hálfleik, 8:17. Það er eitthvað sem
ekki á að bjóða stuðningsmönnum
ÍBV-liðsins upp á enda áttu þeir
BRYNJAR Karl Óskarsson átti
góða innkomu af bekknum hjá
ÍBV en það dugði ekki til.
erfitt með að trúa sínum eigin
augum. En hálfleiksræða Amars
þjálfara hefur hitt í mark því smátt
og smátt söxuðu Eyjamenn á
forskotið. Þegar um sjö mínútur
vora eftir, var munurinn kominn í
þijú mörk, 22:25 en þá fóra tvær
sóknir í röð forgörðum hjá ÍBV á
meðan Stjaman bætti við tveimur
mörkum og tryggði sér um leið sig-
urinn.
Þrátt fyrir ágætan seinni hálfleik,
þá var leikur Eyjaliðsins slakur í
heildina. Á meðan önnur lið í 1.
deildinni era að bæta sig, virðist
Eyjaliðið vera á niðurleið. ÍBV
liðið er hins vegar vel mannað, með
sterka og reynslumikla leikmenn og
unga og efnilega inn á milli.
Leikmenn liðsins verða að hrista
þennan hroll úr sér en síðasti leikur
2. umferðar er gegn Fjölni í Grafar-
voginum. Fyrirfram hefði ÍBV átt
þar tvö öragg stig en miðað við
spilamennsku liðsins, þá þurfa Eyja-
menn að vanda sig veralega til að
hafa sigur. Fyrsti leikur 3. umferðar
verður svo á heimavelli gegn ÍR en í
þeim leik kemur í ljós hvort leik-
menn ÍBV hafi það sem til þarf til að
komast upp í úrvalsdeild. Eftir IR
leikinn verður svo tæplega tveggja
mánaða hlé á íslandsmótinu.
1. deild karla
ÍR 9 6 2 1 262:234 14
Stjaman 9 6 1 2 262:237 13
ÍBV 9 6 0 3 262:239 12
Víkingur 9 5 0 4 231:213 10
Selfoss 9 2 1 6 249:252 5
Fjölnir 9 0 0 9 181:272 0
íþróttir
Handbolti:
Ester leik-
maður
mánaðarins
Ester Óskarsdóttir, leikmaður
ÍBV, var valin leikmaður mán-
aðarins í Nl deild kvenna en valið
var kunngert í íslenska boltanum,
íþróttaþætti á RÚV. Ester hefur
farið fyrir liði ÍBV og verið besti
leikmaður liðsins, sérstaklega í
sókninni þar sem hún skoraði að
meðaltali rúmlega átta mörk í leik
í nóvember. Hafrún Kristjáns-
dóttir sagði í umsögn um Ester að
hún hafi tekið miklum framförum
í velur. Til þessa hafi hún verið
góður varamaður en nú sé hún
búin að breytast í lykilmann hjá
ÍBV. „Vel valið,“ bætti Snorri
Sturluson, íþróttafréttamaður á
Sport.is við.
Ekki dæmt
eftir upptöku
Aganefnd Handknattleikssam-
bands íslands úrskurðaði að ekki
væri hægt að dæma brot Davíðs
Þórs Óskarssonar eftir mynd-
bandsupptöku. Forsaga málsins
er sú að í fréttum Stöðvar 2 var
atvik sýnt úr leik ÍBV og Selfoss
þar sem Davíð Þór virtist slá leik-
mann Selfoss viljandi í andlitið. í
kjölfarið sendi stjóm HSI erindi
til aganefndar og óskaði eftir þvf
að nefndin tækið málið fyrir eftir
myndbandsupptökunni. Aga-
nefnd er hins vegar ekki leyfdegt
nema í undantekningartilfellum
að dæma eftir upptökum. Þá sé
ekki hægt að meta það á upp-
tökunni hversu alvarlegt brotið
var, þótt það virki alvarlegt. Þá
lék leikmaður Selfoss áfram og
kláraði leikinn. Málið var því
látið niður falla.
Körfubolti:
Bikarleikur á
laugardag
Á laugardaginn leikur meist-
araflokkur ÍBV í körfbolta í 32ja
liða úrslitum Powerade-bikar-
keppninnar. Eyjamenn sátu yfir í
64 liða úrslitum en í 32 liða úr-
slitum bætast við úrvalsdeildar-
liðin. ÍBV mætir þó ekki liði úr
úrvalsdeildinni að þessu sinni, því
liðið tekur á móti Þór frá Akureyri
á laugardaginn klukkan 12:00.
Framundan
Föstudagur 9. desember
Kl. 19:00 ÍBV 2-HK
Eimskipsbikar karla, handbolti.
Kl. 17:00 ÍBV-HK
2. flokkur, bikar, handbolti.
Kl. ??:?? HK-ÍBV
3. flokkur, bikar, handbolti.
Kl. 20:00 Breiðablik-ÍBV
2. flokkur karla, knattspyma.
Laugardagur 10. desember
Kl. 12:00 IBV-Þór Akureyri
Poweradebikarinn, körfubolti.
Kl. 13:00 Fjölnir-ÍBV
1. deild karla, handbolti.
Kl. 11:00 Breiðablik 2-ÍBV
2. flokkur karla, fótbolti.
Kl. 12:30 IBV-Framl
4. flokkur karla, AB, handbolti.
Kl. 15:00 Afturelding-ÍBV
2. flokkur karla, handbolti.
Sunnudagur 11. desember
Kl. 11:00 Breiðablik 2-ÍB V
4. flokkur karla, ABC, fótbolti.