Fréttablaðið - 19.02.2013, Blaðsíða 4
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
234,3378
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,05 129,67
199,64 200,62
172,22 173,18
23,085 23,221
23,207 23,343
20,342 20,462
1,3717 1,3797
196,7 197,88
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
18.02.2013
STJÓRNMÁL Ellefu hæstaréttar-
lögmenn skora á Alþingi að vanda
betur til undirbúnings við gerð
nýrrar stjórnarskrár lýðveldis-
ins. Þeir telja varhugavert að
gera þær grundvallarbreytingar
á stjórnskipun ríkisins sem gert
er ráð fyrir í frumvarpinu.
„Samþykkt núverandi frum-
varps, með þeim breytingar-
tillögum sem fyrir liggja, hefði í
för með sér mjög róttækar breyt-
ingar á íslenskri stjórnskipun.
Ekki hefur farið fram ítarleg
greining á mögulegum afleið-
ingum þess að frumvarpið verði
samþykkt. Sú takmarkaða skoð-
un sem farið hefur fram bendir
eindregið til þess að í frumvarp-
inu felist margvíslegar hættur
fyrir lýðræðislegt þjóðskipu-
lag,“ segir meðal annars í áskor-
uninni sem hæstaréttarlögmenn-
irnir Berglind Svavarsdóttir,
Björgvin Þorsteinsson, Jakob R.
Möller, Karl Axelsson, Kristinn
Hallgrímsson, Ragnar H. Hall,
Reimar Pétursson, Sigurður G.
Guðjónsson, Þorsteinn Einars-
son, Þórdís Bjarnadóttir og Þór-
unn Guðmundsdóttir skrifuðu
undir.
„Til þess að Alþingi rísi undir
stjórnskipulegu hlutverki sínu
er þinginu skylt að taka sjálf-
stæða afstöðu til frumvarpsins.
Tryggja verður vandaðan undir-
búning og breiða samstöðu áður
en ný stjórnarskrá lýðveldisins
er samþykkt. Töluvert vantar á
að þessi skilyrði séu uppfyllt,“
segja lögmennirnir. - þeb
Ellefu hæstaréttarlögmenn skora á þingið að vanda betur til stjórnarskrár:
Telja stjórnarskrárbreytingar varhugaverðar
ALÞINGI Lögmennirnir segja þrennt
sérlega mikilvægt, vönduð vinnubrögð,
að nýta þekkingu hins vísasta fólks og
gera breytingar í eins mikilli sátt og
mögulegt er. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veðurspá
Fimmtudagur
3-10 m/s.
SUÐLÆGAR ÁTTIR Mjög litlar breytingar í veðrinu næstu daga. Suðlægar áttir verða
ríkjandi og það verður milt í veðri næstu vikuna. Rigning með köflum um sunnan og
vestan til en annars yfirleitt úrkomulaust.
5°
6
m/s
7°
8
m/s
7°
8
m/s
9°
12
m/s
Á morgun
5-13 m/s, hvassast SV-til.
Gildistími korta er um hádegi
8°
5°
6°
6°
5°
Alicante
Basel
Berlín
16°
5°
2°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
1°
4°
3°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
1°
1°
20°
London
Mallorca
New York
9°
17°
7°
Orlando
Ósló
París
25°
-4°
7°
San Francisco
Stokkhólmur
11°
-1°
5°
7
m/s
6°
5
m/s
6°
5
m/s
5°
4
m/s
5°
5
m/s
6°
5
m/s
4
8
m/s
8°
5°
6°
6°
5°
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Vilja herða eftirlit
1ÞÝSKALAND Þýsk stjórnvöld vilja herða eftirlit með kjötframleiðslu og boða
jafnframt hærri sektir fyrir að brjóta reglur.
Þetta á að gera til að koma í veg fyrir vöru-
svik á borð við þau að selja hrossakjöt sem
nautakjöt, eins og framleiðendur hafa orðið
uppvísir að undanfarið. Fleiri vörutegundir
hefur þurft að fjarlægja úr þýskum versl-
unum síðustu daga eftir að prófanir sýndu
að í þeim var hrossakjöt.
Dæmdur fyrir bangsaárás
2HVÍTA-RÚSSLAND Landamæravörður í Hvíta-Rússlandi hefur verið dæmd-ur til tveggja ára fangavistar fyrir að hafa ekki hindrað innrás sænskra
leikfangabangsa. Brot hans fólst í því að tilkynna ekki um að lítilli flugvél var
flogið inn fyrir landamærin síðastliðið sumar, þar sem úr henni var varpað
hundruðum bangsa í fallhlífum. Böngsunum fylgdu slagorð til stuðnings
mannréttindum. Vélinni flugu tveir starfsmenn sænskrar auglýsingastofu.
ESB þjálfar Malíher
3MALI Fulltrúar Evrópu-sambandsins eru byrjaðir
að þjálfa stjórnarherinn í
Malí. Markmið þjálfunarinnar
er að gera stjórnarherinn
færan um að hafa nægilega
gott eftirlit með öllu landinu,
þannig að herskáir hópar
íslamista eða túarega geti
ekki endurtekið leikinn frá
því á síðasta ári, þegar þeir
náðu norðurhluta landsins
að mestu á sitt vald. Stjórnarherinn í Malí gerði stjórnarbyltingu fyrir tæpu ári,
þegar herforingjunum þótti stjórn landsins ekki búa nægilega vel að hernum.
FERÐAÞJÓNUSTA Átakið Ísland allt árið
virðist hafa borið ávöxt en markmið
þess er að fjölga þeim ferðalöngum
sem sækja Ísland heim yfir vetrar-
mánuðina. Um 30 prósentum fleiri
ferðamenn sóttu landið heim í nóvem-
ber og desember 2012 en árið áður
og á sumum gististöðum eru gestir í
janúar 2013 tvöfalt fleiri en í sama
mánuði árið áður.
Gestir sem væntanlegir eru á
Hönnunarmars hafa margir hverjir
átt í erfiðleikum með að fá gistingu
á sama staðnum. Halla Helgadóttir,
framkvæmdastjóri Hönnunarmars,
segir von á fjölmörgum erlendum
gestum.
„Við seljum ekki inn á hátíðina
þannig að við höfum ekki tæm-
andi yfirlit yfir gestina. Við vitum
hins vegar að það er mikil fjölgun á
erlendum gestum sem koma á hátíð-
ina. Við höfum reynt að beina gestum
á sömu staðina, þar sem þeim finnst
gott að vera með kollegum sínum. Það
hefur hins vegar verið erfitt þar sem
allt er að fyllast.“
Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin
er haldin en Halla segir að hún sé í
mars þar sem þá hefur verið minna
um að vera og fleiri herbergi laus.
Það sé hins vegar að breytast.
Aðsóknin er minni fyrir utan
höfuð borgarsvæðið en þó víða góð.
Á Hótel Rangá hefur nýtingin yfir
vetrar mánuðina aukist mjög undan-
farna vetur og verið yfir 80 prósent-
um flesta mánuði í vetur. Friðrik
Pálsson hótelstjóri segir að vetrar-
gestir dvelji lengur en þeir sem sækja
hótelið heim yfir sumartímann.
kolbeinn@frettabladid.is
kristjan@frettabladid.is
Vetrarferðamönnum
fjölgar gríðarlega
Átak til fjölgunar ferðamönnum yfir vetrarmánuðina hefur gengið vel. Um 30 pró-
sentum fleiri ferðamenn komu til landsins í nóvember og desember en árið áður.
Nýting á Hótel Rangá hefur verið yfir 80 prósentum yfir flestalla vetrarmánuðina.
ÍSLAND ALLT ÁRIÐ Um 30 prósentum fleiri ferðamenn sóttu Ísland heim í
nóvember og desember í fyrra en árið áður. Erfitt hefur reynst að fá gistingu í
mars fyrir stærri hópa á sama stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég á afmæli í dag, er þrjátíu
ára gömul, og við ákváðum
að halda upp á það á óvenju-
legan hátt með því að fara til
Ísland,“ sagði Becki Davies
þegar Fréttablaðið rakst á hana
á Hótel Rangá á dögunum.
Þar var hún ásamt spúsa
sínum, Phil Dey, en þau eru frá
Southampton á Englandi.
Þau höfðu dvalið á Hótel
Glym í Hvalfirði í eina nótt
en ætluðu að vera í þrjár nætur á Hótel Rangá. Þau voru búin að
skipuleggja fjölmargar skoðunarferðir, enda sammála um að landið sé
afar fallegt á að líta. Það sem helst dró þau á klakann er þó ekki landið
sjálft heldur það sem fyrir ofan það er.
„Við hlökkum gríðarlega mikið til að sjá norðurljósin og erum búin
að skrá okkur á lista yfir að vera vakin þegar til þeirra sést. Það verður
mögnuð upplifun og vonandi sjást þau vel,“ segja þau skötuhjú að
lokum.
Afmæli í íslenskum norðurljósum
BECKI DAVIES OG PHIL DEY
HEIMURINN
1 2
3