Fréttablaðið - 19.02.2013, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2013 | SKOÐUN | 17
20% afsláttur
á boddýhlutum
og ljósum
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Fyrirmyndar
fyrirtæki
2012
50% afsláttur af boddý-
hlutum sem skemmst hafa
ALLIR BODDÝHLUTIR OG
LJÓS ERU AFGREIDD Á
KLETTHÁLSI 5
Rannsóknir Hjarta verndar
sýna að forvarnir gegn
hjarta- og æðasjúkdómum
skila árangri. Upp úr 1960 dró úr
lífslíkum karla og kvenna á Íslandi.
Aðalástæðan fyrir því var ótíma-
bær dauðsföll vegna kransæða-
stíflu. Þessari þróun tókst að snúa
við með sameiginlegu átaki fag-
fólks, leikmanna og stjórnmála-
manna. Árangurinn endurspeglast
í þeirri staðreynd að dauðsföllum
fækkaði um áttatíu prósent vegna
kransæðastíflu hjá fólki yngra en
sjötíu og fimm ára milli áranna 1981
og 2006. Lífslíkur Íslendinga eru í
dag með þeim bestu í heimi.
Næstu þrjá áratugi mun einstak-
lingum eldri en sextíu og fimm
ára fjölga úr fjörutíu þúsundum í
tæplega níutíu þúsund árið 2042.
Þessi fjölgun aldraðra undir strikar
hversu brýnt það er að vinna enn
markvissar að því að seinka eða
koma í veg fyrir æðasjúkdóma og
afleiðingar þeirra, hjartaáföll og
heilaáföll.
Langflest ótímabær dauðsföll
á Íslandi (fyrir 75 ára aldur) hafa
orðið vegna hjarta- og æðasjúk-
dóma. Þetta þýðir að sjúkdómur-
inn hefur færst yfir á efri ár. Fyrir-
byggjandi aðferðir til að seinka
þróuninni og jafnvel koma í veg
fyrir afleiðingar sjúkdómsins eru
mjög mikilvægar því meira en sex-
tíu prósent af öldruðum lifa áföllin
af. Það að lifa af áfall er yfirleitt
ekki án afleiðinga. Allt að helm-
ingur af þeim sem lifa hjartaáföll
af mun þróa með sér hjartabilun
sem er alvarlegur sjúkdómur, en
honum fylgja verulega skert lífs-
gæði, óþægindi og þjáningar.
Þögul hjartaáföll
Nýlega sýndi Öldrunarrannsókn
Hjartaverndar að umtalsverður hluti
67–93 ára einstaklinga bar merki
um skemmdir í hjartavöðva. Fyrir
hvern einstakling sem fengið hafði
hjartaáfall sem hafði verið greint
og meðhöndlað fundust nærri tveir
aðrir sem höfðu einnig fengið hjarta-
áfall en höfðu ekki hugmynd um
það. Hjartaáfallið hafði farið fram
hjá þeim. Þeim einstaklingum sem
höfðu fengið þessi þöglu hjartaáföll
farnaðist verr en þeim sem engin
áföll höfðu fengið. Þannig höfðu um
30% þeirra sem höfðu fengið hjarta-
áfall látist sex árum eftir að rann-
sóknin var gerð. Dánar tíðnin var
hins vegar um 17% hjá þeim sem
ekki höfðu fengið hjartaáfall. Þessi
rannsókn sannar hversu ófyrirsjá-
anlegir hjarta- og æðasjúkdómar
geta verið og hve greining þeirra og
forvarnir geta verið flóknar.
Rannsóknarstöð Hjartaverndar
og Hjartaheill hafa aukið samvinnu
sína til muna og lýstu yfir form-
legu samstarfi í forvörnum þann 9.
janúar síðastliðinn. Þetta leiðir til
þess að þekking sú sem rann sóknir
Hjartaverndar skapa munu koma
fyrr og með markvissari hætti til
almennings og stjórnvalda. Þessari
samvinnu ber að fagna enda er hér
stigið stórt skref í þágu forvarna
hjarta- og æðasjúkdóma.
Með ómtækni má greina
byrjunar stig æðakölkunar löngu
áður en hjarta- og æðasjúkdómar
gera vart við sig. Ómtæki Hjarta-
verndar er úr sér gengið og hefur
Hjartaheill ákveðið að styrkja kaup
ómtækis með höfðinglegri gjöf, eða
5,5 milljónum króna.
Hjartabrauð
Landssamband bakarameistara
og Hjartavernd hafa tekið höndum
saman um að auka neyslu þjóðar-
innar á hollara brauðmeti. Mark-
miðið með samvinnunni er að vekja
athygli almennings á hollustu heil-
korna í brauðmeti og mikilvægi þess
að minnka salt- og sykurneyslu.
Samkomulagið felur í sér að hand-
verksbakarar hafa hannað hjarta-
brauð, sem er alfarið bakað úr heil-
möluðu korni og inniheldur lítið salt
og sykur. Hjartabrauðið er úr fín-
möluðu heilkorni og inniheldur öll
hollustuefni kornsins, trefjar, stein-
efni, vítamín og andoxunarefni, og
er milt á bragðið.
Þetta sérstaka hjartabrauð hefur
verið til sölu í bakaríum síðan í sept-
ember síðastliðnum. Sextíu krónur
af hverju seldu hjartabrauði renna
til söfnunar fyrir ómtæki Hjarta-
verndar. Þann 9. janúar síðast-
liðinn afhentu bakarar ávísun upp
á 1.032.000 krónur. Þessar fjárhæð-
ir frá Hjartaheill og handverks-
bökurum skipta sköpum í baráttu
Hjartaverndar gegn hjarta- og æða-
sjúkdómum.
Hjartabrauðið verður áfram til
sölu í öllum handverksbakaríum
landsins enda heldur sameigin-
legt átak Hjartaverndar og bakara
áfram. Þetta er í fyrsta skipti sem
Hjartavernd gefur leyfi til að nota
merki sitt á vöru en það er gert að
vel íhuguðu máli hjá stjórn Hjarta-
verndar.
Vísindarannsóknir hafa leitt í ljós
að rífleg neysla á grófu korni virðist
geta haft áhrif til að minnka líkur
á ýmsum langvinnum sjúkdómum,
svo sem sykursýki og hjartasjúk-
dómum. Gróft mjöl er gott fyrir
meltinguna og veitir meiri seddu-
tilfinningu en hvítt hveiti og annað
fínt mjöl. Í dag leikur enginn vafi á
því að hollt mataræði og reyklaust
og streitulítið líferni ásamt því að
hreyfa sig er besta forvörnin gegn
hjarta- og æðasjúkdómum.
Stjórn og starfsfólk Rannsóknar-
stöðvar Hjartaverndar vill nota
tækifærið og þakka lands mönnum
hjartanlega fyrir ómetanlegan
stuðning við starfsemina, en án
hans væru forvarnir gegn hjarta-
og æðasjúkdómum ekki á því sigi
sem þær eru í dag.
Hafið bestu þakkir.
Gunnar Sigurðsson, prófessor og
stjórnarformaður Hjartaverndar
Karl Andersen, prófessor og situr í
stjórn Hjartaverndar
Laufey Steingrímsdóttir, prófessor
og situr í stjórn Hjartaverndar
Vilmundur Guðnason, prófessor og
forstöðulæknir Hjartaverndar
Hjartabrauð gefur
hjartaauð Það mun hafa verið Matthías Johannes-
sen sem svaraði spurn-
ingu um afstöðu sína
til ESB á þann veg að
hjartað segði nei en
heilinn já. Þetta svar
er kjarninn í viðhorfi
margra Íslendinga í
þessu máli. Hugsunin
sér kostina og greinir
gallana en hjartað hýsir
óvissuna og óttann. Þessi tví-
hyggja milli mannsandans og
hjartans er það andskot sem
mannskepnan verður að rogast
með og velja á milli. Þessi átök
leiða af sér viðvarandi ótta-
tilfinningu. Við rekjum mörg
stórátök mannkynssögunnar
til þess að annar hvor helftin
fór hamförum. Skynsemis-
hyggjan ofbauð tilfinningaforða
hjartans, sem óttaðist að tapa
áttum, eða tilfinningakraftur
óttans gat kæft öll skynsemis-
rök. Trúarbrögð skírskota nær
eingöngu til hjartans, til tilfinn-
inga sem breytt er í trúarlega
afstöðu. Þau trúarbrögð sem
lengst ganga útiloka veraldlega
skynsemi úr mannheimum og
stýra lýðnum með trúarsetn-
ingum. Þær eru afar handhæg-
ar, því þær verða hvorki sann-
aðar né afsannaðar. Stór hluti
fólks hugsar með hjartanu. Það
lætur tilfinningarnar og til-
finningasemina ráða för sinni.
Í heimi stjórnmálanna býður
þetta upp á ákjósanleg tæki-
færi fyrir lýðskrumara. Pólitísk
hugmyndafræði gerir beinlínis
út á að fá fólk til að trúa, ekki
hugsa. Skynsemisstjórn mál eru
oftast munaðarlítil þegar kynt
er undir tilfinningahita.
Mannsandinn eða hjartað
Þessi tvíhyggja kemur í annarri
myndbirtingu fram hjá
Kristi, þegar hann svar-
aði: „Gjaldið keisar-
anum það sem keisar-
ans er, en guði það sem
guðs er.“ Þessi setning
er lykillinn að þróunar-
sögu Vestursins og sem
greinir það kyrfilega
frá Austrinu, og þá er
ég ekki að tala um átta-
mörk kalda stríðsins.
Skýrast kom þetta fram í því að
Drottinn kristinna manna var
bæði mannsson og Guðsson.
Þetta segir að veraldleg hugsun
átti að vega salt við yfirskilvit-
legar tilfinningar. Þetta samlífi
var oft brösugt í gegnum tíðina.
Það skiptust á friður og ófrið-
ur. Lokahnykkinn í veraldar-
væðingu kristindómsins tók
svo þýski munkurinn Lúther. Í
nútíma vestur evrópsku sam-
félagi er komið á nokkuð gott
jafnvægi milli áhrifa veraldar-
og trúarhyggju.
Það heyrist jafnvel stundum
að veraldarhyggjan sé allt að
kæfa. Í flestum íslömskum
ríkjum er þessu öfugt farið. Þar
sem kennisetningar kóransins
ríkja hefur trúar- og tilfinn-
ingasviðið kæft alla veraldlega
skynsemi. Þess vegna hefur
þróun í átt að meiri velferð og
almennri velmegun ekki átt sér
stað í þeim löndum, svo ekki
sé minnst á jafnrétti og frelsi.
Hjartað og guð almáttugur auka
ekki endilega á veraldlega vel-
ferð. Þau eru hins vegar afar
mikilvægur hluti tilverunnar.
Fullveldisrán sem framtíðarsýn
Þessi átök milli heilans og
hjartans, hugsunar og tilfinn-
inga, geisa nú hér á landi. Tvær
átakafylkingar skírskota til
andstæðra hughrifa í baráttu
um skoðanir landsmanna um
aðildina að ESB.
Annars vegar eru það þeir
sem reyna að beita rökum skyn-
seminnar fyrir því að aukin
velferð okkar og velgengni í
framtíð sé háð því að við verð-
um aðilar að ESB. Reynt er að
leggja skynsemis mat á kosti
og vankanta. Nýta sér m.a.
reynslu annarra þjóða. Hins
vegar eru það þeir sem skír-
skota með málflutningi sínum
til óttans, til hjartans. Í átök-
unum um uppkastið 1908 var
sagt að aðferð andstæðinga
þess væri að „vekja upp drauga,
skapa grýlur, – þyrla upp ryki
og reyna á allar lundir að vekja
hræðslu og tortryggni … ásamt
gömlu vopnunum: skrökinu,
hártogunum og blekkingum.“ Í
átökunum nú er búin til hroll-
vekja þar sem flest eftirsóknar-
verð gæði hérlendis verða færð
útlendingum. Þjóðinni er sagt
að niðurstaða úr samningavið-
ræðunum sé fyrir fram ákveðin
og hún sé ekki glæsileg; íslensk-
ur landbúnaður leggist af, fiski-
miðin afhent útlendingum og
þjóðin verði rænd fullveldinu,
sjálfu fjöregginu. Slík fram-
tíðarsýn vekur að sjálfsögðu
ótta og geðshræringu, eins og
að er stefnt. Gagnvart þessari
nístandi ógnvekju á tilfinninga-
snautt skynsemistal undir högg
að sækja.
Á vængjum óttans
ESB-AÐILD
Þröstur Ólafsson
hagfræðingur
➜ Hjartað og guð almátt-
ugur auka ekki endilega á
veraldlega velferð. Þau eru
hins vegar afar mikilvægur
hluti tilverunnar.
➜ Þessar fjárhæðir frá
Hjartaheill og hand-
verksbökurum skipta sköpum
í baráttu Hjartaverndar gegn
hjarta- og æðasjúkdómum.
HEILBRIGÐIS-
MÁL
AF NETINU
Rætin kvenfyrirlitning
Katrín hefur verið ráðherra í fjögur ár, þingmaður jafn lengi, varafor-
maður VG í tíu ár og var á sínum tíma varaborgarfulltrúi í fjögur ár. Hún
hefur því margvíslega reynslu af pólitík, fyrir utan önnur störf hennar.
En þetta smættar Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra niður í að
hún sé „gluggaskraut“.
Fyrirgefið, en þetta er ekki fyndið.
Þetta er bara ógeðsleg kvenfyrirlitning.
Nú ætti að vísu öllum að vera sama um ámátlegar tilraunir Davíðs
Oddssonar til að niðurlægja andstæðinga sína í pólitík með ömurlegum
fimmaurabröndurum.
Hann er jú löngu kominn fram yfir síðasta söludag.
En hann er nú samt sá maður sem fjöldi sjálfstæðismanna lítur enn á
sem leiðtoga lífs síns.
http://blog.pressan.is/illugi
Illugi Jökulsson