Fréttablaðið - 19.02.2013, Qupperneq 26
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
HAFLIÐI BALDVIN HÁKONARSON
vélamaður,
til heimilis í Asparfelli 8, Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
13. febrúar. Hann verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.00.
Jenjira Maloolem
Gunnsteinn Pantong Hafliðason
Hákon Hafliðason Guðrún S. Hreiðarsdóttir
Eva Lind Hákonardóttir
Baldvin Hafliðason Olga Betty Antonsdóttir
Aníta Rut Baldvinsdóttir
Elsku hjartans maðurinn minn, yndislegi
faðir okkar, bróðir, tengdasonur, sonur og
mágur,
STEINAR ÖRN INGIMUNDARSON
Fannafold 227, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á líknardeildinni
í Kópavogi aðfaranótt sunnudagsins
17. febrúar.
Jóna Margrét Sigurðardóttir Þór Steinarsson
Hrund Steinarsdóttir Björk Steinarsdóttir
Óskar Ingimundarson Hrafnhildur Halldórsdóttir
Jón Þór Ingimundarson Helena Ingvadóttir
Ingi Pétur Ingimundarson Sigrún Pálsdóttir
Unnar Smári Ingimundarson Elín Berglind Viktorsdóttir
Margrét Ingimundardóttir
Sigurður Atli Elísson Guðrún Auður Böðvarsdóttir
Þyri Þorvaldsdóttir Ingimundur Óskarsson
Okkar ástkæra
SIGRÍÐUR HJARTARDÓTTIR
COLLINGTON (SIRRÝ)
lést að kvöldi 7. febrúar. Bálför hefur farið
fram í Bandaríkjunum og verða jarðneskar
leifar hennar fluttar heim. Minningar- og
kveðjustund á Íslandi verður auglýst síðar.
Wayne Collington
Gabríela Bóel, Oliver Thor, Freyja Ena
Hjörtur Kristjánsson Anna Margrét Einarsdóttir
Ingibjörg F. Ottesen Garðar Valur Jónsson
Bóel Hjartardóttir Hjálmar Þorsteinsson
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR
lést á heimili sínu 14. febrúar síðastliðinn.
Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju
föstudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Blóm og
kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á reikning
Heimahjúkrunar nr.: 1177-05-404849-0708683699, í Sparisjóði
Svarfdæla á Dalvík.
Bragi Jónsson
Jón Runólfsson Ágústa Björnsdóttir
Ingunn Bragadóttir Óli Þór Jóhannsson
Jón Björn Bragason Ásta Huld Henrýsdóttir
Birkir Bragason Linda Júlía Tryggvadóttir
Sunna Björk Bragadóttir Jökull Bergmann
og barnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
ODDFRÍÐUR LILJA HARÐARDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Hörðalandi 16,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
16. febrúar. Útför hennar verður auglýst
síðar. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu.
Þórður Guðmannsson
Hörður J. Oddfríðarson Guðrún Björk Birgisdóttir
Arnar Oddfríðarson Berglind Rós Davíðsdóttir
barnabörn og bræður hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir samúð, innilegan
hlýhug og vinsemd við andlát og útför
okkar ástkæru
ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR
(ELSU)
Álfalandi 12, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá líknardeild og
heimahlynning Landspítalans fyrir einstaka
umönnun, alúð og hlýju í hennar garð.
Ísidór Hermannsson
Guðmundur Jón Ísidórsson
Hermann Ísidórsson Edda Bjarnadóttir
Elmar Daði Ísidórsson Sigrún H. Gunnarsdóttir
Ísidór Hinrik Ísidórsson Antonía Esther
og barnabörn.
Okkar ástkæri
GUÐMUNDUR J. HERMANNÍUSSON
Fossheiði 10, Selfossi,
lést 7. febrúar sl. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Heiðrún Helga Magnúsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
ELÍSABET ELÍASDÓTTIR
Öldugötu 48, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi 15. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði fimmtudaginn 21. febrúar
kl. 13.00.
Jón Halldór Bjarnason
Elías Árni Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Bjarni Þorgeir Jónsson
Lovísa Ósk Jónsdóttir Hlynur Stefánsson
barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRUNN (DÚA) MAGNÚSDÓTTIR
áður til heimilis að Hrauni við Reyðarfjörð, lést
á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum
15. febrúar. Hún verður jarðsungin frá
Aðventkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
22. febrúar kl. 13. Bein útsending frá
athöfninni verður í Aðventkirkjunni í Vestmannaeyjum.
Magnús Þór Magnússon Matthildur Ingvarsdóttir
Jón Hafdal Elín Kr. Þorvaldsdóttir
Aðalheiður Hafdal Hávarðardóttir Gunnar Gunnarsson
Bjarni Hávarðsson Fjóla Kristjánsdóttir
Björg Hávarðardóttir Pétur Rúnar Harðarson
Þórarinn Árni Hafdal Hávarðsson Lára Thorarensen
fósturbörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, sonur, bróðir og mágur,
SMÁRI RAGNARSSON
múrarameistari,
Breiðuvík 13, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum 13. febrúar
sl. verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
föstudaginn 22. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð
krabbameinslækningadeildar LSH.
Ívar Örn Smárason
Stefanía Smáradóttir
Ragnar Smárason
Ragnar Hilmar Þorsteinsson Kristín Hrefna Kristjánsdóttir
Guðlaug Ragnarsdóttir Birgir Bjarnason
Kristján Hjálmar Ragnarsson Kristjana Una Gunnarsdóttir
Sigríður Ragnarsdóttir Trausti Gylfason
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
ÞÓRUNNAR STEFÁNSDÓTTUR
Hamraborg 30.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
Elísabet Haraldsdóttir
Ragnheiður Haraldsdóttir
Valgerður Haraldsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
SIGURÐUR ÞÓRARINN ODDSSON
áður til heimilis að Norðurbrún 1,
lést þann 9. febrúar á Hjúkrunarheimilinu
Mörk. Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju
þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.00.
Brynhildur Sigurðardóttir
Kristín G. Sigurðardóttir
Kolbrún M. Sigurðardóttir Gísli Hafsteinn Einarsson
Sigþrúður Sigurðardóttir
Elsa Á. Sigurðardóttir
Oddur Sigurðsson
Guðbjartur J. Sigurðsson
Sigurður Þ. Sigurðsson Kristín H. Friðriksdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
ÞÓRA BJÖRNSDÓTTIR
áður til heimilis að Þórsgötu 13,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 15. febrúar.
Björn Brekkan Karlsson Hólmfríður Þórólfsdóttir
Sigfús M. Karlsson Jóna S. Valbergsdóttir
Vilborg G. Guðnadóttir Haukur Guðjónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
hjúkrunarkona og kennari,
Lækjarsmára 8, Kópavogi,
lést á Holtsbúð, Vífilsstöðum, þriðjudaginn
12. febrúar. Útför hennar fer fram
frá Digraneskirkju þriðjudaginn 19. febrúar
kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag
aðstandenda alzheimerssjúklinga (FAAS).
Fyrir hönd aðstandenda,
Hinrik Lárusson
Lárus Hinriksson Freygerður Anna Baldursdóttir
Sigurður Hinriksson Elsa Jenný Halldórsdóttir
Guðbjörg Hinriksdóttir
Bryndís Hinriksdóttir Konráð Konráðsson
Sigrún Hinriksdóttir Þórir Gíslason
Ingibjörg Hinriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Stríð og friður verða í
brennidepli á heimspeki-
kaffi í Gerðubergi annað
kvöld, en þá ræða Gunnar
Hersveinn heimspeking-
ur og Helga Þórólfsdóttir
friðar fræðingur um frið-
semd. Gunnar mun meðal
annars segja frá muninum á
stríðsfréttaritara og friðar-
fréttaritara og Helga lýsir
því hvernig hug myndir
hennar um stríð og frið
breyttust við störf sín á
átakasvæðum.
Gunnar Hersveinn hefur
skrifað bækur um gildin
í lífinu og samfélaginu og
fengið viðurkenningu fyrir
skrif um friðarmenningu.
Heimspekikaffi með honum
er fastur liður á dagskrá
Gerðubergs og þess má geta
að á döfinni eru umræður
um konur og karla 20. mars
og líf og dauða 17. apríl.
Helga Þórólfsdóttir hefur
margra ára reynslu af
mannúðarstörfum á átaka-
svæðum. Hún hefur sérhæft
sig í störfum á átakasvæðum
og er með meistaragráður
í friðar- og ágreiningar-
fræðum. Hún hefur verið
friðarstyrkþegi Rótarý,
starfað meðal annars í Líb-
eríu og Úganda og vinnur
nú að doktorsverkefni á því
sviði við Háskóla Íslands.
Heimspekikvöldið hefst
klukkan 20.00 og eru allir
velkomnir.
Stríð og
friður
Friðarfræðingur og heimspekingur ræða
friðsemd á heimspekikaffi í Gerðubergi.
HELGA ÞÓRÓLFSDÓTTIR Ræðir stríð og frið við Gunnar Hersvein á
heimspekikaffi í Gerðubergi annað kvöld.