Fréttablaðið - 19.02.2013, Page 28
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. gas, 6. ullarflóki, 8. nugga, 9.
heyskaparamboð, 11. kvað, 12. sljóvga,
14. yfirstéttar, 16. tvíhljóði, 17. gagn,
18. suss, 20. búsmali, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. smæl, 3. öfug röð, 4. flokkur sýkla-
lyfja, 5. þvottur, 7. niðurstaða, 10.
óvild, 13. of lítið, 15. bakhluti, 16.
umfram, 19. gyltu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loft, 6. rú, 8. núa, 9. orf,
11. ku, 12. slæva, 14. aðals, 16. au, 17.
nyt, 18. uss, 20. fé, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. bros, 3. on, 4. fúkalyf, 5.
tau, 7. úrlausn, 10. fæð, 13. van, 15.
stél, 16. auk, 19. sú.
En kósý
hjá þér!
Takk! Mér
finnst
það líka!
Aldrei
komið
hingað
áður?
Nei... ég var
vanur að fara á
O´Brians! Ég fann
ástina á O´Brians
maður! Hún hét
Kassandra!
...Og
Jeanette!
Og Elvira!
Og Tove
Tut-Tut!
Og Gry-
Tone!
Og nú vilja
þær skaða
þig?
Með alls
kyns tækjum
og tólum!
Pierce, ert þú
að stækka?
Eiginlega. Þetta fylgir því að vinna í
kvikmyndahúsi.
Við köllum
þetta S.P.U.
S.P.U.?
Samþjappaðs
poppkorns upp-
bygging.
Auðvitað
bragðast þetta
öðruvísi en þegar
mamma þín gerði
þetta. Það var
áður en eldur upp-
götvaðist!!
Vegna þess að
ég segi það! Vá...
...Það er gott að vera
eldra systkinið!
Bíddu þangað til hún
verður nógu gömul til
að rífast við þig!
FYRIR STERKAR OG HREINAR TENNUR
Sú var tíðin að Íslendingar gumuðu af gestrisni sinni. Íslensk sveitagestrisni
var á allra vörum og við stærðum okkur af
því að vera höfðingjar heim að sækja. Nú
virðist gestrisni okkar vera bundin við það
að höfðingjar sæki okkur heim, eða í það
minnsta fólk sem getur borgað fyrir greið-
ann. Beiningamenn eru hins vegar ekki
eins velkomnir.
KANNSKI hefur þetta alltaf verið svona.
Fræg er sagan af Helgu biskupsfrú í Skál-
holti sem á að hafa látið brjóta steinbogann
yfir Brúará til að losna við ágang föru-
fólks. Það þótti hins vegar níðingsverk
og þjóðsaga spannst um það að biskup
hefði spáð fyrir um að Helgu yrði refsað
fyrir þetta ódæði. Bryti sá er verkið vann
var sagður hafa drukknað skömmu síðar
í Brúará – og áin því heimt sinn brúar-
eyðileggingartoll.
SEM betur fer hefur þeim beiningamönn-
um íslenskum sem flakka um landið í von
um lífsbjörg fækkað umtalsvert. Félags-
lega kerfið hefur dregið úr þeirri þörf,
þótt vissulega sé enn til fólk sem á sér
varla málungi matar. Hins vegar hafa
fjarlægðir minnkað og ný samgöngu-
tækni gert það að verkum að hingað
til lands leita reglulega beininga-
menn úr öðrum löndum. Fólk sem
getur sér litla sem enga lífsbjörg
veitt og leitar á náðir okkar í von
um betra líf.
OG nú ber svo við að gestrisninni, sem
eitt sinn var viðbrugðið, er orðið ábóta-
vant. Fólki sem hefur yfirgefið heimahaga,
oftar en ekki undir gapandi byssukjöftum,
og ferðast oft og tíðum um hálfan hnöttinn
mætir ekki manngæska og náunga-
kærleikur. Því er holað niður í gistiheimili
og við tekur biðin eftir Godot, eða Útlend-
ingastofnun, sem virðist enn styðjast við
póstskip til að bíða gagna sem nauðsynleg
eru til úrvinnslu á framtíð fólks.
MARGT hefur verið ritað um aðbúnað
flóttafólks hér á landi og enn meira sagt.
Þingmenn og ráðherrar hafa tjáð sig um
að nú þurfi að bæta úr, starfshópar hafa
skilað skýrslum, embættismenn og stjórn-
málamenn rifist í fjölmiðlum, bloggarar
og athugasemjarar úttalað sig á vefsíðum –
en ekkert gerist. Enn holum við fólki niður
í gistiheimili suður með sjó, borgum því
smánarupphæðir og heimtum að það eyði á
réttum stöðum. Eða að það beri ökklabönd
líkt og dæmdir menn.
NÚ er mál að linni. Það má vel vera að
meiri yfirlegu þurfi til að búa til kerfi sem
bregst við auknum fjölda flóttafólks og
hælisleitanda á skilvirkan og mannúðleg-
an hátt. Á meðan það er þróað, sem virðist
ætla að reynast stjórnvöldum ofviða, þarf
hins vegar einfaldlega að taka upp gest-
risni og mannúð og hætta þessum flótta
frá mennskunni þegar að flóttamönnum
kemur.
Á fl ótta frá mennsku