Fréttablaðið - 19.02.2013, Blaðsíða 30
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
TEIKNINGAR Sýningu Ingólfs mátti bæði líta á sem eina heild og fjórskipta, segir
gagnrýnandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MYNDLIST ★★★★★
Teikningar
Ingólfur Arnarsson
HAFNARBORG
„Á maður að sjá eitthvað í þessu?,“
segir gestur á sýningu Ingólfs
Arnarssonar stundarhátt stand-
andi fyrir framan eina af teikn-
ingum hans á sýningunni. Undir-
ritaður útskýrir í stuttu máli
hvernig verkin eru unnin. Gestur-
inn heldur áfram að skoða sýn-
inguna. Aðrir gestir koma inn
og spyrja svipaðra spurninga.
Gestur inn sem fékk stuttu kynn-
inguna endursegir kynninguna í
eyru nýju gestanna.
Kannski eru þessi verk ekkert
svo óaðgengileg, hugsa ég með
mér, ef menn fá smá leiðsögn.
Ingólfur hefur frá því ég kynnt-
ist list hans fyrst unnið teikningar
eins og þær sem má sjá í Hafnar-
borg. Þær eru allar í sömu stærð,
A5 eða þar um bil, álíka að stærð
og hjarta, andlit eða hönd, eins og
Ingólfur hefur sjálfur lýst verk-
unum.
Þær eru allar unnar með hörð-
um blýanti á löngum tíma. Þetta
er þéttofið net blýantsstrika á hvít
blöð sem fest eru beint á vegginn
þannig að þykkt blaðsins er það
eina sem lyftir þeim frá veggn-
um. Myndirnar eru allar í sama
ljósgráa tóninum og munurinn á
milli mynda er við fyrstu sýn lít-
ill en þegar maður gengur á milli
myndanna og horfir á hverja
þeirra í smá tíma, fer munur að
koma í ljós, þó hann sé vissu-
lega meira blæbrigðamunur en
hitt. Smátt og smátt fer maður að
skynja hvert verk eins og hljóm-
fall, að nýr hljómur sé lagður niður
frá einni mynd til þeirrar næstu,
þar til ákveðinni mettun er náð.
Skuggar og form fara að birtast
og maður rekur sig með augunum
eftir innri heimi hverrar teikn-
ingar.
Þetta eru á vissan hátt krefjandi
verk fyrir áhorfandann, og þau
þarfnast nokkurrar einbeitingar
og næðis.
Hægt er að njóta hverrar og
einnar teikningar fyrir sig eins og
segir hér að framan, en einnig upp-
lifa sýninguna sem innsetningu í
rými, enda hugsar lista maðurinn
jafnan mikið um rýmið sem heild
og samspil þess við verkin.
Það má sem sagt líta á sýn-
inguna bæði sem eina heild og fjór-
skipta. Veggurinn á móti dyrunum
er einn hlutinn, en þar eru nokkrar
teikningar stakar og um leið eru
það nýjustu verkin. Á veggnum á
móti eru hins vegar tveir hópar
eldri teikninga, 40 teikningar alls.
Báðir þeir hópar eru með teikning-
ar hengdar upp í tveimur láréttum
röðum, en sá vinstri er með teikn-
ingar hengdar upp beint fyrir ofan
hverja aðra, en sá til hægri er með
20 teikningar sem raðað er upp í
misvíxl. Þessar þrír hópar teikn-
inga fá því allar sinn takt.
Fjórða elementið er svo ljós-
mynd sem listamaðurinn hengir
upp rétt við innganginn í salinn,
en myndin er af fremur óhrjáleg-
um gróðri í moldarbeði sem flæðir
upp á gangstétt. Þessi mynd er í
þó nokkurri mótsögn við regluna
í öðrum verkum sýningarinnar og
því uppbrot.
Á svona sýningu fer hver mis-
fella í vegg og hver eining salar-
ins að skipta máli og spila með
verkunum, hvort sem manni líkar
það betur eða verr. Ristir, hurðir,
ljós, gólfefni og innstungur ýkjast
einhvern veginn upp í þessu sam-
hengi og hljóð sem berst að utan
sömuleiðis. Þannig varð hljóðið úr
sýningu á efri hæðinni ósjálfrátt
hluti af upplifun á sýningu Ingólfs.
En þarna kemur ljósmyndin til
sögunnar og límir saman eða dreg-
ur til sín þá truflun sem mögulega
gæti haft of mikil áhrif.
Margir tala um minimalisma
í sömu andrá og verk Ingólfs eru
nefnd en ég hef aldrei horft á þau
sem slík. Þau eru meira abstrakt
expressionísk, enda lýtur mini-
malisminn svokallaður öðrum lög-
málum.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Nostursamlega unnin
sýning á teikningum sem búa yfir
innra hljómfalli og ytri takti þegar
þær eru saman komnar í rými.
Hljómfagrar teikningar
Skólaþing epli.is
Norðlingaskóla
Miðvikudaginn 20. feb
Dagskrá:
Kl. 13:30 - Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson setur ráðstefnuna
Kl. 14:00 - Abdul Chohan frá ESSA Academy
Kl. 15:00 - iPad vinnustofur
Nánari dagskrá á:
epli.is/skolar
UPPLÝSINGAR & SKRÁNING:
annarosa@annarosa.is eða í síma 662 8328. Verð 4.900 kr.
Námskeið með ÖNNU RÓSU grasalækni um áhrifamátt íslenskra lækningajurta
Fjallað er um hvernig grasalæknar vinna og hvað sjúkdóma er algengt að
þeir fáist við. Farið er yfir áhrifamátt nokkurra algengra lækningajurta sem
auðvelt er að finna og tína. Fjallað verður m.a. um aðalbláber, krækiber,
burnirót, fjallagrös, vallhumal, ætihvönn, maríustakk, mjaðjurt, blóðberg,
birki, túnfífil, klóelftingu og haugarfa. Einnig verða gefin dæmi um
einfaldar uppskriftir og aðferðir við vinnslu úr jurtum.
www.heilsuhusid.is
MENNING