Fréttablaðið - 19.02.2013, Qupperneq 33
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2013 | MENNING | 25
★★★★ ★
Gluteus Maximus
Laugardagur
SILFURBERG
Hljómsveitin Gluteus Maximus er
skipuð þeim DJ Margeiri og Presi-
dent Bongó. Settið þeirra í Silfur-
bergi á laugardaginn var skothelt
sambland af plötusnúningi og lif-
andi spilamennsku. Uppsetningin
var skemmtileg. Aftast voru Mar-
geir og Bongó á bak við græjupúlt
og fyrir framan þá á miðju svið-
inu var hljóðnemi en beggja vegna
voru kraftlyftingamenn og konur
að lyfta lóðum á meðan taktföst
danstónlistin dunaði.
Fjórir söngvarar komu inn á
sviðið og sungu: Fyrst Daníel
Ágúst, svo Högni Egilsson sem
söng Gluteus Maximus-smell-
inn Everlasting. Þegar Unnsteinn
Manúel úr Retro Stefson birtist til
að syngja remixið af Glow brutust
út mikil fagnaðarlæti í salnum.
Síðasti gesturinn var sjálfur John
Grant, sem tók sig vel út í þessu
nýja hlutverki.
Þetta voru mjög flottir tónleikar.
Margeir og Bongó eru á meðal
bestu plötusnúða landsins þann-
ig að tónlistarleg uppbygging var
pottþétt og svo hafa þeir greinilega
líka tilfinningu fyrir því að búa til
þetta sjónræna sem þarf að fylgja
á stórtónleikum. Það verður gaman
að sjá þá þegar lögin þeirra verða
orðin fleiri. Stemningin í salnum
var góð þó að það kæmi á óvart
hversu fáir dönsuðu, en þeim fór
fjölgandi eftir því sem á leið. - tj
NIÐURSTAÐA: Skothelt sambland
af plötusnúningi og lifandi spila-
mennsku.
Lyft u lóðum við taktfasta danstónlist
★★ ★★★
Bloodgroup
Föstudagskvöld
SÓNARFLÓI
Bloodgroup spilaði hafnar megin
á föstudagskvöldinu. Ólíkt því
sem gerðist í öðrum sölum sat
stór hluti tónleikagesta og hlýddi
á lög af nýju plötu sveitarinnar.
Meðalaldur áhorfenda var líka
kannski eilítið hærri en á öðrum
tón leikum.
Sveitin skilaði sínu ágætlega,
fór hægt af stað en gaf í þegar
líða fór á. Þótt Sunna Margrét og
Janus Rasmussen séu flottir front-
menn náðu þau ekki alveg nógu vel
til áhorfenda, hvort sem um er að
kenna salarkynnunum eða ein-
hverju öðru. Það var allavega eitt-
hvað sem vantaði upp á. Það var
ekki fyrr en undir lok tónleikana,
þegar Janus bað fólk um að standa
upp, sem það virtist kvikna smá
líf hjá áhorfendum en það var því
miður ekki nóg. - kh
NIÐURSTAÐA: Sveitin náði ekki
nógu vel til áhorfenda.
Tengingu vantaði
UNNSTEINN Retro Stefson tróð einnig upp á Sónar-hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIBREGÐUM SÍMUM Á LOFT Áhorfendur tóku myndir af rafgoðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook