Fréttablaðið - 19.02.2013, Page 34

Fréttablaðið - 19.02.2013, Page 34
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26SPORT 19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDA REYNIR Á Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Haukum hafa tapað þremur leikjum í röð, bæði í deild og bikar. Haukar mæta Akureyringum á fimmtudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Hvorki hefur gengið né rekið hjá Haukum að undan- förnu en eftir frábært gengi liðs- ins framan af vetri komu skyndi- lega þrír tapleikir á aðeins átta dögum. Liðið féll úr leik í bikarn- um og átta stiga forysta liðsins í deildinni er skyndilega orðin fjög- ur stig. Aron Kristjánsson, þjálfari liðs- ins, segir að erfitt sé að benda á bara eina ástæðu fyrir þessu því margt hjálpist að. Meiðsli og mannabreytingar vega þungt en einnig hugarfar leikmanna. „Þetta mikla forskot sem við höfðum varð til þess að við sofnuð- um aðeins á verðinum. Þegar það kom svo að því að spýta í lófana var leiðin aðeins lengri en menn héldu,“ sagði Aron í samtali við Fréttablaðið í gær. Vorum værukærir í desember Taphrinan hófst þegar erkifjend- urnir í FH komu á Ásvelli um þar- síðustu helgi og slógu meistara- efnin í rot. Síðan tóku við tveir leikir gegn ÍR, þar af annar í bik- arnum, sem töpuðust báðir. En Aron segir að hann hafi séð brota- löm á sínu liði strax í desember. „Við vorum orðnir værukærir þá en munurinn er sá að þá tókst okkur að klára leikina okkar,“ segir Aron, sem þurfti að skilja við liðið í janúar á meðan hann fór með íslenska landsliðið á HM í Spáni, þar sem hann er einnig landsliðsþjálfari. „Eftir HM kem ég heim og liðið er búið að æfa stíft, sérstaklega líkamlega. Við notuðum deildar- bikarinn frekar sem undir búning fyrir deildina og því var hann ekki hátt skrifaður hjá okkur. Svo þegar út í deildina var komið feng- um við alvöru kjaftshögg gegn FH,“ segir Aron. Slæmt að missa Jón Þorbjörn Nokkuð hefur verið um meiðsli í herbúðum Hauka en fjarvera Jóns Þorbjörns Jóhannssonar hefur haft mikið að segja. Hann er með brotið rifbein. „Hann hefur verið okkar jafnbesti maður, bæði í vörn og sókn. Svo misstum við líka Stefán Rafn [Sigurmannsson til Rhein-Neckar Löwen] á sínum tíma, auk þess sem Elías Már Halldórsson hefur verið meiddur. Það hefur kvarnast mikið úr lið- inu.“ Haukar hafa þó fengið sterkan „liðsstyrk“ því Sigurbergur Sveinsson er loksins byrjaður að spila með liðinu á ný eftir lang- varandi meiðsli. En hann hefur ekki fundið sig í fyrstu leikjunum sínum. „Það er þétt spilað og lítill tími til æfinga á milli leikja. Því verður hann að nota þessa fyrstu leiki til að koma sér í form. Það er erfitt að nota deildarleiki til að pússa liðið saman en ég hef ekki átt annarra kosta völ eftir vetrarfríið.“ Þjálfararáðningin breytti engu Í lok janúar var tilkynnt að Pat- rekur Jóhannesson myndi taka við starfi Arons í sumar en þá mun sá síðarnefndi einbeita sér að störfum sínum hjá HSÍ. Aron telur ekki að sú tilkynning hafi breytt nokkru hjá sínum mönnum. „Hugarfarið í hópnum hefur verið mjög gott og ég tel ekki að þetta hafi breytt nokkru. Við vitum sjálfir best hvernig staðan er og hvað við þurfum að gera til að bæta hana. Leikurinn við ÍR á sunnudag var skref í rétta átt þó svo að hann hafi tapast. Við nýttum ekki dauðafærin en spilið var mun betra. Við megum ekki gleyma því að við erum í efsta sæti og menn þurfa að hugsa eins og þeir séu í toppliði. Það þýðir ekk- ert að fara á taugum þrátt fyrir nokkra tapleiki.“ eirikur@frettabladid.is Sváfum á verðinum Eft ir tíu sigurleiki í N1-deild karla í röð hafa Haukar skyndilega tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins, óttast ekki að liðið sé hrunið og segir að margt jákvætt hafi verið í gangi í síðasta leik þess. Lífs-spor, sóló á Suðurpól - kraftur markmiða og drauma Vilborg Arna Gissurardóttir, sem brautskráðist úr MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2011, náði eins og kunnugt er því einstaka markmiði að ganga ein síns liðs, fyrst íslenskra kvenna og sú níunda í heiminum á Suðurpólinn. Af því tilefni hefur MBA námið í Háskóla Íslands fengið Vilborgu til að fjalla um þessa ævintýraferð, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 12-13 í stofu 105 á Háskólatorgi. Verkefni Vilborgar krafðist gífurlegrar skipulagningar, þrautseigju og kjarks. Í erindi sínu fjallar Vilborg um áskoranir sínar. Skráning á mba@hi.is - Aðgangur er ókeypis www.mba.is FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meistara deildar Evrópu halda áfram í kvöld er fram fara tveir leikir. Porto tekur á móti Malaga og Arsenal fær Bayern München í heimsókn. Þetta eru fyrri leikir liðanna í sextán liða úrslitunum. Það var vígahugur í Arsene Wenger, stjóra Arsenal, á blaða- mannafundi í gær. Hann hefur mátt þola mikla gagnrýni í vetur og var harðlega gagnrýndur aftur um helgina er Arsenal lauk keppni í bikarnum með tapi gegn Black- burn. Stjórinn franski er farinn að láta blaðamenn pirra sig. „Menn segja að ég taki bikarinn ekki alvarlega. Ég hef unnið enska bikarinn fjórum sinnum. Hver hefur unnið oftar?“ sagði Wenger reiður út í fjölmiðlamenn. „Það er alls konar innihaldslaus gagnrýni í gangi sem erfitt er að sætta sig við. Það er nóg til af sér- fræðingum að tjá sig en þeir hafa ekki endilega rétt fyrir sér.“ Arsenal hefur ekki unnið titil í átta ár undir stjórn Wengers og Meistaradeildin er eina keppnin þar sem Arsenal á möguleika á titli í ár. „Maður tekur þátt í keppnum til þess að vinna þær. Á einhverju stigi þarf maður að mæta virkilega sterku liði. Ef ég á að taka eitthvað mark á ykkur þá erum við ekki lík- legir til þess að ná árangri,“ sagði Wenger sem ætlar að þagga niður í efasemdarmönnum í kvöld. „Ég treysti gæðunum í okkar liði. Ég treysti liðsandanum og andlega styrknum. Þannig að við sjáumst á leiknum.“ - hbg Arsene Wenger í miklum vígahug Stjóri Arsenal skammaði fj ölmiðlamenn á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins. PIRRAÐUR Wenger lét blaðamenn heyra það í gær. NORDICPHOTOS/GETTY LÁGMÚLA 4 108 RVK SÍMI 585 4000 URVALUTSYN.IS Ferðaskrifstofa KÖRFUBOLTI Jerry Buss, eigandi NBA-liðsins LA Lakers, lést í gær áttræður að aldri. Krabbamein var banamein Buss en hann hefur meira og minna legið inn á spítala undanfarna átján mánuði. Buss keypti Lakers og íshokkí- liðið LA Kings, ásamt heimavelli félaganna, Forum, árið 1979. Undir stjórn Buss blómstraði Lakers og varð eitt vinsælasta íþróttalið heims. Hann breytti menningunni í NBA-deildinni og hjá Lakers mikið. Kom með meiri skemmtun í húsið og dró til sín marga af bestu körfubolta- mönnum sögunnar. Nægir þar að nefna menn eins og Magic Johnson, Kareem- Abdul Jabbar, Sha- quille O‘Neal og Kobe Bryant. „NBA-deildin hefur misst mik- inn hugsjónamann. Áhrif hans á deildina voru ótrúleg og komandi kynslóð- ir munu njóta góðs af því,“ sagði David Stern, yfirmaður NBA- deildarinnar. Þeir eru fáir eigendur banda- rískra íþróttaliða sem státa af álíka árangri og Buss. Í eigendatíð hans komst Lakers sextán sinnum í úrslit deildarinnar og vann þar af tíu sinnum. Lakers er langsigursælasta félag deildarinnar á þeim árum sem Buss er eigandi. „Það var ósk föður okkar að Lakers yrði áfram í eigu fjölskyldunn- ar. Lakers hefur verið okkar líf og við munum virða óskir hans og gera allt til þess að halda hans frábæra árangri áfram,“ sagði í yfirlýsingu Buss- fjölskyldunnar. Börn hans, Jim og Jeanie, hafa stýrt félaginu að mestu síðustu ár og munu gera það áfram. - hbg Eigandi Lakers látinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.