Fréttablaðið - 19.02.2013, Qupperneq 38
19. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
„Mig hefur dreymt um að koma
hingað í mörg ár, alveg frá því ég
byrjaði fyrst að æfa muay thai.
Uppáhaldsbardagamaðurinn minn
var og er Buakaw Por Pramuk og
hann var kveikjan að því að ég
kom hingað. Ég skoðaði myndband
á Youtube fyrir mörgum árum
síðan og fann þannig Tiger Muay
Thai MMA-gymmið þar sem ég bý
núna. Hér er allt sem ég þarf og
frábærir þjálfarar, bæði taílenskir
og annars staðar frá,“ segir Sunna
Rannveig Davíðsdóttir, sem dvel-
ur í þrjá mánuði í þjálfunarbúðum
á taílensku eyjunni Phuket þar
sem hún æfir blandaðar bardaga-
íþróttir og muay thai.
Einungis viku eftir komuna til
Taílands keppti Sunna Rannveig
sinn fyrsta bardaga inni í hring.
Hún mætti ástralskri stúlku og
bar sigur úr býtum eftir þrjár
þriggja mínútna lotur. „Ég fékk
dags fyrir vara og var aðeins búin
að taka fjórar æfingar fyrir bar-
dagann, en ákvað að slá til og hafa
gaman. Ég lærði mikið af þessu
og fékk smá tilfinningu fyrir því
hvernig er að berjast í hringnum.
Þetta var góð upphitun fyrir næsta
bardaga sem verður á laugardag
og er minn fyrsti í búrinu,“ segir
Sunna Rannveig, sem hefur æft
muay thai frá árinu 2009 og lagt
stund á MMA hjá Mjölni síðustu
tvö ár. Hún kennir jafnframt vík-
ingaþrek hjá félaginu auk þess sem
hún ekur leigubíl um helgar.
Hún segir daginn í þjálfunar-
búðunum byrja snemma og ein-
kennast af stöndum æfingum. „Ég
byrja á því að fara í jóga klukkan
sjö um morguninn og síðan taka
við harðar muay thai-æfingar til
hádegis. Svo hvíli ég mig og borða
og svo tek ég annað hvort MMA-
eða boxæfingu um fjögur og um
kvöldmatarleytið er BJJ-æfing.“
Sunna Rannveig á dótturina
Önnu Rakel, sem bíður spennt
eftir heimkomu móður sinnar, en
sú stutta æfir einnig hjá Mjölni.
„Það erfiðasta sem ég hef gert er
að kveðja Önnu Rakel, en ég hefði
Bar sigur úr býtum í
fyrsta bardaganum
Sunna Rannveig Davíðsdóttir er stödd í æfi ngabúðum í blönduðum bardaga-
íþróttum á Taílandi. Hún fékk dag til að undirbúa sig fyrir fyrsta bardagann.
ÆFIR ALLAN DAGINN Sunna Rannveig Davíðsdóttir eyðir þremur mánuðum í
þjálfunar búðum á taílensku eyjunni Phuket þar sem hún æfir blandaðar bardagaíþróttir.
Sunna Rannveig æfir meðal annars undir leiðsögn Gunn-
ars Nelson og kveðst líta upp til hans sem bardaga-
manns. „Gunnar er sterkur á öllum sviðum og á það
til að leika sér að andstæðingunum og hnoða þá til
áður en hann klárar þá, eins og kóbraslanga. Hann
er alltaf silkislakur og rólegur í huganum og vel
gefinn og góður drengur.“
Lítur upp til Gunnars
aldrei farið án samþykkis henn-
ar. Hún er líka lítil íþróttakona og
hefur stundað æfingar hjá Mjölni
frá sex ára aldri. Ég er ótrúlega
stolt af henni, sama hvað hún
tekur sér fyrir hendur, en það er
einstaklega gaman að eiga sama
áhugamál og hún,“ segir Sunna að
lokum.
sara@frettabladid.is
„Það er bókin Söngvar Satans eftir
Salman Rushdie en ég er að renna í
gegnum hana í þriðja sinn núna.“
Börkur Gunnarsson leikstjóri myndarinnar
Þetta reddast.
BÓKIN
Um helgina fór fram tónlistarhátíðin
By:Larm í Ósló en þar létu íslenskir tónlistar-
menn til sín taka. Hátíðin einbeitir sér að
ungu tónlistarfólki frá Norðurlöndunum og
hefur fest sig í sessi þar í borg sem eins konar
bransahátíð. Ásgeir Trausti, Retro Stefson,
Oyama, Sin Fang og Valgeir Sigurðsson voru
fulltrúar Íslands i og fengu lofsamlega dóma.
Ásgeir Trausti heillaði gagnrýnanda
hátíðarinnar en dómar birtust á vefsíðunni
Bylarm.no. Þar eru tónleikarnir sagðir frá-
bærir og Ásgeiri líkt við James Blake og Bon
Iver. „Áhorfendur sátu heillaðir á meðan
hvert fallega lagið á fætur öðru hljómaði.“
Retro Stefson fékk einnig góða dóma og
hefur gagnrýnandi hátíðarinnar orð á því
að það sé í raun ótrúlegt að jafn lítið land og
Ísland geti alið af sé jafn marga hæfileika-
ríka tónlistarmenn og raun ber vitni. „Það
er erfitt að skilgreina tónlist Retro Stefson
sem er ekki eins og nein önnur íslensk sveit
sem maður þekkir. Söngvaranum Unnsteini
Manuel Stefánssyni tókst að fá áhorfendur
til liðs við sig sem enduðu öskrandi og hopp-
andi af gleði.“
Einnig var fjallað um tónleika ungu
sveitina Oyama en plata þeirra I Wanna
hefur vakið athygli undanfarið. - áp
Ásgeir Trausti lofsunginn í Ósló
Íslenskar sveitir létu til sín taka á tónlistarhátíðinni By:Larm í Noregi.
FÉLLU Í KRAMIÐ Sveitirnar Retro
Stefson, Oyama og Ásgeir Trausti
féllu vel í kramið á gagnrýnendum
á By:Larm-hátíðinni í Ósló.
Skuldakreppan í
Evrópu og framtíð
evrunnar
Peter Bekx, yfirmaður alþjóðlegra efnahags-
og fjármála hjá framkvæmdastjórn ESB og
lykilmaður í mótun viðbragða ESB vegna
skuldavanda evruríkjanna, fjallar um breyt-
ingar á hagstjórn evrusvæðisins undanfarið
og hver staða evrunnar verður til framtíðar.
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands
tekur þátt í pallborðsumræðum. Fundarstjóri
er Sigríður Mogensen, hagfræðingur.
Hádegisverðarfundurinn verður þann
19. febrúar milli kl. 12:00 og 13:00 í Sunnu-
sal á Hótel Sögu. Hádegisverður er innifalinn
í verði sem er 3.500 krónur fyrir félagsmenn
og 5.500 fyrir aðra.
Skráning á www.fvh.is.
Peter Bekx
Gylfi Magnússon
Sigríður Mogensen
DÓRA RAGNARSDÓTTIRH Á R S N Y R T I & F Ö R Ð U N A R S T O F A
Hef hafið störf á
hársnyrtistofunni
LaBella, Furugerði 3,
sími 517 3322.
Verið velkomin.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
HARÐFISKUR
- barinn og óbarinn
LAXAFLÖK
- beinhreinsuð og flott
Leikverk um ævi listamannsins Jóhannesar
S. Kjarvals verður sett á svið Þjóðleikhúss-
ins á næsta leikári. Mikael Torfason, ritstjóri
og skáld, ritar verkið, sem ber titilinn Síðustu
dagar Kjarvals, og mun Ingvar E. Sigurðsson
að öllum líkindum fara með titilhlutverkið.
„Kjarval var okkar alfremsti listamaður og
ekkert leikhús hefur sinnt honum neitt sérstak-
lega fram að þessu. Þjóðleikhúsið hefur lengi
haft áhuga á og vilja til þess að setja upp verk
sem fjallar um lífshlaup Kjarvals enda var
hann mjög merkilegur maður, skemmtilegur í
tilsvörum og algjörlega „fenómenal“ málari,“
segir Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóð-
leikhússins. Verkið segir frá síðustu ævidögum
listmálarans og að sögn Ara verður sýningin
mjög sjónræn.
Höfundur verksins, Mikael Torfason, kveðst
hafa verið með Kjarval á heilanum í þó nokkur
ár. „Kjarval er búinn að vera partur af mínu lífi
í nokkur ár. Hann var algjörlega stórkost legur
málari og svolítill furðufugl og skilur eftir sig
ógrynni af rituðu máli; greinum, bókum og
jafnvel leikrit. Hann var alhliða snillingur og
alveg stórkostleg persóna. Hann hefur verið
áhugamál mitt í mörg ár en ég vissi aldrei
almennilega hvað ég ætlaði að gera með þetta
efni, leikritið varð svo ofan á og ég er afar
spenntur að skrifa þetta verk ofan í Ingvar E.,“
segir Mikael. - sm
Búinn að vera með Kjarval á heilanum lengi
Þjóðleikhúsið mun setja upp leikverk um Kjarval á næsta leikári. Verkið er ritað af Mikael Torfasyni.
KJARVAL Á SVIÐ Þjóðleikhúsið hyggst setja á svið
leikverk Mikaels Torfasonar um Jóhannes S. Kjarval á
næsta leikári. Ari Matthíasson kveðst spenntur fyrir
verkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON