Fréttablaðið - 23.02.2013, Qupperneq 2
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Þetta hreyfði við manni,“
segir Elín Guðmundsdóttir, 84 ára
skíðakona og fyrrverandi tann-
læknir, sem í síðustu viku renndi
sér sína fyrstu ferð í fjögur ár.
Myndband sem Ingimar Örn
Jónsson, sonur Elínar, tók af
henni að renna sér í Bláfjöllum
hefur vakið athygli og hrifningu
á Facebook. Ingimar viðurkenn-
ir að hafa haft dálitlar áhyggjur
af móður sinni í skíðabrekkunni í
fyrsta skipti í svo langan tíma.
„Hún er búin að fara í mjaðma-
skipti og þá er maður hræddur um
að það sé eitthvað að styrknum eða
þrekinu en það var nú ekki að sjá
á henni þegar við vorum að skíða
niður. En þetta er bara eins og hún
sagði sjálf; hræðslan er bara í hug-
anum,“ segir sonurinn.
„Það hefur vantað snjó og svo
fóru skíðin mín óvart til Noregs,“
útskýrir Elín hið langa skíðahlé
sem nú er lokið. Hún kveðst við
góða heilsu þó að gerviliðirnir í
mjöðmunum sem hún fékk fyrir
rúmum áratug setji henni viss
mörk:
„Það er eiginlega það sem held-
ur aftur af mér að fara í erfiðar
brekkur. Ég er ekki bangin en ég
veit að það er ekki aftur snúið ef
eitthvað kemur upp á í sambandi
við það.“
Öll fjölskyldan hefur alla tíð
stundað skíðaíþróttina af miklu
kappi. „Hún ól okkur systkinin á
sínum tíma upp á skíðum, meðal
annars í Kerlingarfjöllum. Svo
vorum við svo heppin að mamma
og pabbi fengu strax áhuga á að
fara til Austurríkis áður en skipu-
legar ferðir þangað byrjuðu. Það
er auðvitað skíðaparadís,“ segir
Ingimar.
„Þetta þótti bara sjálfsagt þegar
veturinn var genginn í garð og
snjór var kominn í fjöllin,“ bætir
Elín við. Síðast fór hún í skíðaferð
erlendis til Davos í Sviss fyrir
fimm árum. Það sé einfaldlega frá-
bært að vera á skíðum. „Yfirleitt
fór ég erlendis á skíði á hverju ári.
Annars er ég komin það mikið í
golfið að það hefur tekið yfir.“
Elín neitar því ekki að vera
komin nokkuð áleiðis í aldurskal-
anum fyrir skíðagarp. „Ekkert
alvarlega samt,“ undirstrikar hún
þó og hlær hjartanlega.
gar@frettabladid.is
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜18
HELGIN 22➜46
SPORT 68
MENNING 56➜74
Magnús Halldórsson, viðskiptafrétta-
stjóri Stöðvar 2 og Vísis, gagnrýndi
Jón Ásgeir Jóhannesson í harðorðri
grein þar sem hann frábað sér til-
raunir Jóns Ásgeirs til að hafa áhrif á
fréttaskrif varðandi hans mál í miðlum 365.
Kristín Jóhannesdóttir kvikmynda-
gerðarkona hlaut heiðursverðlaun
Eddunnar. Ræða hennar vakti mikla
athygli þar sem hún gagnrýndi
harðlega hversu erfitt konur eiga
uppdráttar í kvikmyndagerð á Íslandi.
Þór Saari, þingmaður
Hreyfingarinnar, bar fram
vantrauststillögu á ríkis-
stjórnina á miðvikudag en
dró hana síðan til baka á
fimmtudagsmorgun.
Ásgeir Trausti kom,
sá og sigraði á
Íslensku tónlistar-
verðlaununum og
hafði heim með
sér fern verðlaun; þar með talin
fyrir bestu plötu síðasta árs.
FIMM Í FRÉTTUM VANTRAUST OG TÓNAR
➜ Gunnar Nelsson, bardagaíþróttakappi, hefur öðlast enn frekari viðurkenningu
hér heima og erlendis eftir bardaga sinn við Jorge Santiago, sem hann sigraði á
sannfærandi hátt í vikunni.
STYRKIR TIL AFREKSFÓLKS OF LÁGIR 68
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
útilokar ekki að taka upp launakerfi fyrir íslenskt afreksfólk.
Hún tekur undir að núverandi styrkir séu of lágir.
ÁRNI BERST Í DUBLIN 68
Árni Ísaksson tekur þátt í bardaga á Írlandi í kvöld.
Aðalfundur
Kvennadeildar RKR 2013 verður haldinn í
Sunnusal Hótel Sögu við Hagatorg,
fimmtudaginn 7. mars kl. 18:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning í stjórn og nefndir
3. Önnur mál
4. Kvöldverður
5. Eyrún Ingadóttir les úr bók sinni Ljósmóðirin
Mjög áríðandi að tilkynna þátttöku í síma 545 0405, 545 0400 eða með
tölvupósti: audur@redcross.is í síðasta lagi daginn fyrir fundardag.
Stjórnin
LYGIN EINS OG
KJARNORKUÚRGANGUR 56
Rithöfundurinn Hanne-Vibeke Holst ræðir verk sín.
NÝTT - UPP Á GAMLA MÁTANN 60
Pönnukökur, vöffl ur og skonsur standa alltaf fyrir sínu.
BÚIÐ SPIL 64
Framleiðendur Die Hard-myndabálksins eru búnir að
ganga af honum dauðum, að mati gagnrýnanda.
SJÖ VIÐTÖL Á EINUM DEGI 74
Ólafur Arnalds er fullu við að kynna nýju plötuna sína
sem kemur út hjá Universal á mánudag.
STYTTIST Í ÓSKARINN 22
Óskarsverðlaunahátíðin er hápunktur bíó-
ársins að margra mati. Nokkrir tilnefndir í
ár skrá sig í sögubækur verðlaunanna.
JARÐNÆÐI
TILFINNINGANNA 26
Upplýsingar liggja ekki á lausu um
eignarhald á jörðum, kort eru ófullkomin
og stjórnvöld hafa ekki skýra stefnu í
málafl okknum. Engu að síður hafa allir
skoðun á ástandinu og hvert skal stefnt
HVER DAGUR ER
SÁRSAUKAFULLUR 36
Helga Lucia Haraldsdóttir hefur glímt
við psoriasis frá fi mmtán ára aldri.
SÖFNUN ER GÓÐ
FYRIR SÁLINA 38
Þótt frímerki og mynt séu óðum að
hverfa úr notkun er lífl egt á félags-
fundum safnara.
KRAKKASÍÐA 42
KROSSGÁTA 44
DEILAN LEYST EN
VANDINN ÓLEYSTUR 16
Þorsteinn Pálsson um kjarasamninga og krónuna.
LÆKNINGAR OG GOLF − ER MUNUR? 17
Kristófer Sigurðsson um kjör unglækna.
FRÍVERSLUN VIÐ
ASÍURÍKI Í SJÓNMÁLI 18
Jón Ágúst Þorsteinsson um viðskipti.
Hálfníræð skíðar enn
á gervimjaðmakúlum
Elín Guðmannsdóttir hefur staðið á skíðum í marga áratugi og er ekki af baki
dottin þótt hún sé orðin 84 ára og sé með gervimjaðmaliði. Sonur Elínar kveðst
hafa haft áhyggjur af fyrstu skíðaferð hennar í fjögur ár en það hafi reynst óþarft.
ELÍN GUÐMANNSDÓTTIR Snjóleysi og skíði sem fóru óvart til Noregs héldu Elínu
Guðmannsdóttur frá skíðabrekkunum í fjögur ár. Nú er hún mætt aftur í Bláfjöll.
MYND/INGIMAR ÖRN JÓNSSON
Ég er ekki bangin en
ég veit að það er ekki aftur
snúið ef eitthvað kemur
upp á.
Elín Guðmundsdóttir,
skíðakona og fyrrverandi tannlæknir.
„Það er allt útatað; menn,
vélar og hús og lyktin ætlar
allt að drepa.“ 4
Bjarni Sigurbjörnsson bóndi
á Eiði í Kolgrafafi rði
LAUS GEGN TRYGGINGU 6
Dómari ákvað í gær að Oscar Pistorius skuli
leystur úr haldi. Pistorius er ákærður fyrir
að myrða unnustu sína.
ÓLAFUR RAGNAR NÝTUR
MESTS TRAUSTS 12
Bjarni Benediktsson nýtur minnsts trausts
íslenskra stjórnmálaleiðtoga.
STJÓRNMÁL Enginn stjórnmálaflokkur hefur skipt
meira máli á Íslandi undanfarin fimmtán ár en
Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Þetta sagði
Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi formaður
flokksins, í ræðu sinni á fyrsta degi landsfundar
VG á Hilton Nordica-hótelinu síðdegis í gær.
Steingrímur sagði flokkinn hafa skrifað marga
kafla í íslenska stjórnmálasögu, meðal annars
með því að setja umhverfis- og kvenfrelsismál á
oddinn.
Steingrímur kvaðst afar stoltur af myndun
fyrstu hreinu vinstristjórnarinnar árið 2009. Þá
vék hann einnig að rótum efnahagshrunsins 2008:
„Siðlaus græðgishyggja nýfrjálshyggjunnar,
nýkapítalismans sem einkavæðir gróðann, rakar
honum til sín í skattaskjól, borgar svimandi arð,
laun og bónusa meðan því er logið að okkur að það
sé góðæri, en vill svo þjóðnýta tapið þegar allt fer
á hliðina, þá á ríkið, við, að borga, er versta kerfi
sem hefur verið fundið upp á jörðinni, sannkallað-
ur kapítalismi andskotans.“
Fundurinn heldur áfram í dag og þá verð-
ur kosið um formann og varaformann. Katrín
Jakobsdóttir er ein í kjöri til formanns en um
varaformannsembættið berjast þingmaðurinn
Björn Valur Gíslason, Daníel Haukur Arnarsson,
stjórnar maður í Ungum Vinstri grænum og Þor-
steinn Bergsson, bóndi og þýðandi í Fljótshlíð. - sh
Steingrímur J. Sigfússon kveðst stoltur af fyrstu vinstristjórninni:
VG mikilvægasti flokkurinn
VÍGREIFUR Katrín Jakobsdóttir, verðandi formaður, afhenti
Steingrími blómvönd að lokinni ræðu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL