Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 6
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SUÐURNESJALÍNA– EIGNARNÁM
STJÓRNSÝSLA Landeigendur á
Reykjanesi furða sig á eignar-
námskröfu sem Landsnet hefur
sett fram vegna ráðgerðra fram-
kvæmda við háspennulínu á svæð-
inu. Þá telja þeir skilyrði fyrir
eignarnámi ekki uppfyllt.
„Þetta kemur í fyrsta lagi veru-
lega á óvart. Landeigendur hafa
talið að samningaviðræður standi
enn yfir en eitt af grundvallar-
skilyrðum þess að eignarnám sé
krafist er að samningar hafi verið
reyndir til þrautar. Við teljum
þetta skilyrði ekki uppfyllt sem
og reyndar fleiri,“ segir Ásgerður
Ragnarsdóttir, sem er lög maður
landeigendanna
ása mt K a rl i
Axelssyni.
Þ á s e g i r
Ásgerður ein-
kenni legt að
farið sé fram á
eignarnám áður
en tilskilin fram-
kvæmdaleyfi frá
Orkustofnun og
sveitarfélögum liggja fyrir.
Forsaga málsins er sú að Lands-
net fór í gær fram á að tiltekin
landsvæði á Reykjanesi yrðu tekin
eignarnámi. Telur fyrirtækið sig
ekki geta tryggt raforku öryggi
á Reykjanesi án línunnar og að
samningar við nokkra landeigend-
ur hafi siglt í strand.
Landsnet hefur þegar náð samn-
ingum við eigendur 11 af 20 jörðum
á svæðinu og þá standa samningar
enn þá yfir við eigendur tveggja
jarða. Ásgerður segir hina land-
eigendurna einhuga í þessari deilu
og bætir við að þeir muni mótmæla
eignarnámsbeiðninni.
Ásgerður segir að deilan hafi
meðal annars staðið um það hvort
nýja línan verði loftlína eða jarð-
strengur en landeigendur telja síð-
ari kostinn hagkvæmari þegar á
allt sé litið. magnusl@frettabladid.is
Skilyrði fyrir eignar-
námi ekki uppfyllt
Eigendur jarða á Reykjanesi sem Landsnet hefur farið fram á að verði teknar
eignarnámi furða sig á kröfunni. Landeigendur telja samninga ekki fullreynda en
þeir hafa krafist þess að línan verði jarðstrengur en ekki loftlína.
ÁSGERÐUR
RAGNARS-
DÓTTIR
Hamranes
Straumsvík
Kúagerði
Suðu
rnes
jalín
a 1 (
132
kV)
Suðu
rnes
jalín
a 2 (
220
kV)
Re
yk
jan
es
lín
a 1
(2
20
kV
)
Grindavík
Sandgerði
Garður
Sandfell
Vogar
Fitjar
Njarðvíkur-
heiði
Rauðimelur
Svartsengi
Reykjanes
SKÝRINGAR
Núverandi línur 132 kV
Núverandi línur 220 kV
Núverandi jarðstrengir
Ný lína
Eignarnám
Eignarnám að hluta
32. gr.
Stjórn félagsins skal einum mánuði fyrir aðalfund ár hvert auglýsa
frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 22. gr.
Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar fyrir aðalfund
og skal tillögum skilað til kjörstjórnar RSÍ innan þess tíma.
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Reykjavík 18. febrúar 2013.
Save the Children á Íslandi
SAMGÖNGUR Flugfélögum ber
engin skylda til að kanna hvort
börn á aldrinum 12 til 18 ára hafi
leyfi forráðamanns til að ferðast
ein. Þessi svör fékk norsk móðir
hjá Icelandair, SAS og Norwegian.
Sautján ára sonur hennar strauk
að heiman og enginn vissi hvar
hann var fyrr en hann birtist allt
í einu á Íslandi, að því er kemur
fram í frétt á vef Verdens Gang.
Pilturinn hafði keypt sér ferð
til Íslands aðra leiðina. Hann hélt
frá Rogaland til Gardermoen flug-
vallar við Ósló á sunnudagskvöld
og hélt til um nóttina á flugvellin-
um. Á mánudagsmorgun fór hann
um borð í flugvél til Íslands með
farmiðann sem hann hafði keypt
á netinu með Visa debetkortinu
sínu. Stráksi hafði ákveðið að
heimsækja vin sinn á Íslandi. Fjöl-
skyldan á ættingja hér á landi og
með aðstoð þeirra fannst pilturinn.
Móðirin kveðst ekki skilja hvers
vegna ekki sé kannað hvort barn
undir 18 ára aldri hafi leyfi til að
ferðast aleitt.
„Aldurstakmarkið vegna kaupa
á tóbaki, bjór og víni er 18 ára
og 20 ára vegna kaupa á sterku
áfengi. En 12 ára barn getur keypt
sér flugmiða og farið úr landi
aleitt.“
Hjá Norwegian fékk hún þau
svör að leiki vafi á að barnið sé
yngra en 12 ára sé það beðið um
að staðfesta að það hafi leyfi til að
ferðast án fylgdar.
Haft er eftir upplýsingastjóra
SAS, Knut Morten Johansen, að
það komi fyrir að unglingar séu
stöðvaðir gruni starfsmenn að
ekki sé allt með felldu. Þá sé haft
samband við forráðamenn eða lög-
regluna á flugvellinum. - ibs
Norskur unglingur strauk og keypti miða aðra leiðina til Íslands:
Tólf ára ekki spurð um fararleyfi
Í LEIFSSTÖÐ Flugfélögum ber ekki
skylda til að kanna hvort 12 ára börn og
eldri megi ferðast ein. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SUÐUR-AFRÍKA Dómari í Suður-Afr-
íku ákvað að láta Oscar Pistorius
lausan úr fangelsi í gær gegn
tryggingu og þarf hann ekki að
mæta fyrir rétt fyrr en 4. júní,
þegar réttarhöldin í máli hans eiga
að hefjast.
Hann er ákærður fyrir að
hafa myrt kærustu sína, Reevu
Steenkamp, að yfirlögðu ráði á
heimili hans í síðustu viku. Sjálf-
ur viðurkennir hann að hafa skotið
Steenkamp en segist hafa talið sig
vera að skjóta á innbrotsþjóf.
Desmond Nair dómari telur
engar líkur á því að Pistorius geti
flúið land eða farið í felur til að
komast hjá refsingu. Til þess sé
hann of þekktur maður.
Pistorius þarf að greiða jafn-
virði nærri 15 milljóna króna
í tryggingu. Hann þarf einnig
að mæta tvisvar í viku til lög-
reglunnar að gera grein fyrir sér.
Pistorius varð fyrstur manna
til að keppa í hlaupagrein á
Ólympíuleikunum með tvo gervi-
fætur. - gb
Réttarhöldin yfir íþróttakappanum Oscar Pistorius hefjast 4. júní:
Látinn laus gegn tryggingu
OSCAR PISTORIUS Fjölmiðlar hafa
fylgst af áhuga með réttarhöldunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP