Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 8

Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 8
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 Ráðgjafarhópur um lagningu raforkustrengs boðar til málþings, þriðjudaginn 26. febrúar. Málþingið verður haldið í Hörpu–Silfurbergi B kl. 12:00-15:30. DAGSKRÁ 12.00-12.20 Setning Gunnar Tryggvason, formaður ráðgjafarhóp Staða og horfur í orkumálum Evrópu – erindi og spurningar á ensku 12.20-12.40 Justin Wilkes, European Wind Association: Iceland and the European offshore electricity grid 12.40-13.00 Emmanouela Angelidaki, Ofgem: GB regulatory developments on electricity interconnector investment Reynsla Norðmanna – erindi og spurningar á ensku 13.00-13.20 Eric Skjelbred, Statnett: The Norwegian experience of interconnectors to Europe 13.20-13.40 Marius Holm Rennesund, Thema Consulting, Effects of interconnectors to Europe 13.40-14:00 Kaffihlé Staða málsins á Íslandi – erindi og spurningar á íslensku 14.00-14.15 Pétur Stefánsson, f.h. National Grid, Tenging Bretlands við evrópskan orkumarkað 14.15-14.35 Gunnar Haraldsson, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, Nokkur atriði varðandi þjóðhagsleg áhrif sæstrengs 14.35-14.55 Stefán Gíslason, Environice, Sæstrengur og sjálfbær þróun 14.55-15.25 Pallborðsumræður Fundarstjóri: Helga Jónsdóttir, stjórnarformaður Hörpu Aðgangur er ókeypis en áhugasömum er bent á að skrá sig á www.anr.is. www.anr.is Sæstrengur til Evrópu Er kominn tími til að tengja? PO RT h ön nu n Einnig breytist afgreiðslutími vegabréfa og verður allt að þrettán virkum dögum frá pöntun auk frídaga á tímabilinu. Þar af er framleiðslutíminn tíu dagar og að lokinni framleiðslu eru vegabréfin póstsend á lögheimili umsækjanda eða á umsóknarstað. Póstsendingartími er allt að þremur dögum. Þjóðskrá Íslands vekur athygli á því að frá 1. mars 2013 verður gildistími vegabréfa tíu ár frá útgáfudegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára. Gildistími vegabréfa breytist 1. mars Nánari upplýsingar má finna á vegabref.is ÍTALÍA, AP Samkvæmt skoðana- könnunum er það leiðtogi banda- lags vinstri- og miðjuflokka, Pier Luigi Bersani, sem virðist ætla að hala inn mestu fylgi í þingkosning- um á Ítalíu. Nokkur óvissa ríkir að vísu um gildi skoðanakannana, því sam- kvæmt lögum mega ítalskir fjöl- miðlar ekki birta niðurstöður þeirra síðustu tvær vikurnar fyrir kosningar. Kosningarnar hefjast á morgun og standa fram á mánudag. Mario Monti forsætisráðherra boðaði til þeirra í desember eftir að Silvio Berlusconi tilkynnti að flokkur hans væri hættur að styðja ríkis- stjórn Montis. Berlusconi hafði þá boðað að hann myndi sækjast eftir því að verða forsætisráðherra Ítalíu í fjórða sinn. Flokkabandalagi Bersanis er spáð allt að 35 prósentum atkvæða, en hægri flokka banda- lagi Berlusconis um 28 prósent. Flokki hagfræðingsins Marios Monti, sem stjórnaði landinu í rúmt ár eftir að Berlusconi hrökklaðist í þriðja sinn frá völd- um, er spáð 14 til 16 prósentum atkvæða. Hins vegar virðist nýr flokkur skemmtikraftsins Beppos Grille, sem heitir Fimm stjörnu hreyfingin, jafnvel geta náð nokkru meira fylgi en Monti, því honum er spáð 13 til 19 prósentum. Í vikunni birti ítalskt dagblað skoðanakönnun þar sem ekki var spurt um fylgi við flokka heldur hvort fólk væri búið að ákveða sig. Niðurstaðan varð sú að þriðjungur kjósenda væri enn óákveðinn. gudsteinn@frettabladid.is Ítalir ganga að kjörborði Mikil óvissa ríkir um úrslit þingkosninga á Ítalíu, sem haldnar verða á morgun og mánudag. Sigurstrangleg- astur er þó Pier Luigi Bersani, leiðtogi vinstrimanna. SILVIO BERLUSCONI Gerir sér vonir um að verða forsætisráðherra í fjórða sinn. NORDICPHOTOS/AFP 35% Flokkabandalagi Bersanis er spáð allt að 35% fylgi en bandalagi Berlusconis 28%.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.