Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 16

Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 16
23. febrúar 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ert þú með slæma tíðaverki? Þá gætir þú verið með endómetríósu (legslímuflakk) Samtök um endómetríósu halda aðalfund laugardaginn 2. mars kl. 13.00 í fundarsal Kvennadeildar, Landspítalanum við Hringbraut. Gengið er inn um aðaldyr Kvennadeildar á fyrstu hæð og síðan til hægri. DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundarstörf Fyrirlestur: Verkir og verkjameðferðir Sigríður Zoëga, sérfræðingur í hjúkrun Allir velkomnir – gott tækifæri til að fræðast um sjúkdóminn og starf samtakanna. www.endo.is endo@endo.is www.facebook.com/endometriosa Í langan tíma hefur ekkert eitt mál náð nær hjartarótum þjóðarinnar en uppsagnir hjúkrunarfræðinga á Land- spítalanum. Í byrjun var vanda- num lýst á þann einfalda og rétta hátt að spítalinn gæti ekki keppt við grannlöndin um hæft starfs- fólk. Nú er spurningin þessi: Er búið að leysa þann vanda? Útgjöld i n vegna þessa samnings eru lítil í heildarsam- hengi. En verkurinn er að ríkis- sjóður á samt ekki fyrir þeim. Innan skamms munu aðrir á spít- alanum kalla á sömu hækkanir og fá þær. Launahlutföllin verða því óbreytt. Eftir ár mun allur vinnumarkað- urinn hafa feng- ið sambærilega hækkun. Klípan er hins vegar sú að þjóðarbúið er ekki að skapa þau verðmæti að innistæða sé fyrir henni. Lausnin felst í því að gengi krónunnar lækkar eftir kosning- ar. Hjúkrunarfræðingarnir og allir þeir sem fylgja í kjölfarið borga þannig sjálfir launahækk- unina. Samningurinn er því ekki um kjarabætur. Hann er aðeins fyrsta skrefið í nýjum verðbólgu- hringdansi. Hann mun aftur þyngja greiðslubyrði lána. Í reynd er um að ræða eins konar aðfararorð að þegjandi allsherjar- samkomulagi um áframhaldandi kjararýrnun. Sú alvarlega staða að Landspít- alinn getur ekki boðið starfsfólki sínu laun sambærileg við grann- löndin er í besta falli óbreytt. Vandinn er óleystur. Hann er afleiðing af því að íslenska þjóðar- búið stendur halloka og býr við veika samkeppnisstöðu gagnvart þeim sem það skiptir við. Deilan leyst en vandinn óleystur Framleiðni er svo slök í atvinnulífinu að Ísland er þar í flokki með Grikklandi. Aðeins sjávarútvegurinn hefur náð framleiðni sem stenst alþjóð- lega samkeppni. Nú í þinglok á að snúa því dæmi endanlega við og samkeppnishæfni Landspítalans versnar að sama skapi. Á næstu fimmtán árum þarf að tvöfalda verðmæti útflutnings- framleiðslunnar og ná mun meiri framleiðni. Það er eina leiðin til að bæta kjörin og styrkja velferð- ina. Þessi viðbótarverðmætasköp- un þarf að verða í nýjum greinum sem öðru fremur byggja á tækni- þekkingu og eiga kost á að vaxa á stærri markaði. Rótgrónu auð- lindagreinarnar eru mikilvæg undirstaða en vaxtarmöguleikar þeirra eru takmarkaðir. Lausnin felst hvorki í átaks- verkefnum stjórnvalda né í auk- inni skattheimtu á fyrirtæki til að endurúthluta til þeirra sem stjórnmálamenn hafa trú á. Þessi umskipti verða aðeins í frjálsum viðskiptum á markaði. Lausnin felst í því að skapa þau markaðs- skilyrði að þar geti vaxið blóm af blöðum blóma. Mörg mikilvægustu skilyrð- in eru fyrir hendi. Mesta þýð- ingu hefur aðildin að innri mark- aði Evrópusambandsins. Öll viðskiptalöggjöf landsins verður til með sameiginlegum ákvörð- unum Evrópusambandsþjóðanna. Þannig er Evrópa heimamarkaður Íslands. Engin keðja er þó sterkari en veikasti hlekkur hennar. Íslensk fyrirtæki hafa ekki mynt sem er gjaldgeng í viðskiptum á þessum markaði. Að auki er ekki unnt að tryggja sama viðskiptafrelsi með krónuna og önnur ríki njóta. Tvö- földun útflutningsframleiðslunnar verður aldrei að veruleika við þær aðstæður. Veiki hlekkurinn Margir spyrja hvort ekki sé unnt að hafa betri stjórn á krónunni en var á árun- um fyrir hrun. Svarið er: Engin ástæða er til að ætla annað en að þeir sem þá fóru með fullveldis- ráðin yfir krónunni hafi bæði haft hæfni og styrk til að gera það sem best var fyrir Ísland. Það dugði einfaldlega ekki með litla mynt á opnum markaði. Ætli menn að losna við gjald- eyrishöftin er annað tveggja til ráða; að taka einhliða upp stöð- ugri erlenda mynt eða ganga í Evrópska myntbandalagið. Hag- ræðið af myntbandalaginu felst í því að Ísland er þegar aðili að nær allri löggjöf Evrópusambandsins. Um leið tryggir aðild að því betur pólitíska hagsmuni landsins eins og aðildin að Atlantshafsbanda- laginu gerði áður og brýnt er að viðhalda. Of snemmt er að taka ákvarðan- ir um þessa kosti nú, en það þarf að gera fyrir mitt næsta kjörtíma- bil. Þeir sem útiloka báða kostina eru um leið að segja að þeir ætli ekki að styrkja samkeppnisstöðu þjóðarbúsins og velferðarkerfis- ins. Þá afstöðu hefur Framsókn- arflokkurinn þegar tekið. Stefna stjórnarflokkanna í sjávar útvegsmálum gengur ekki upp nema með krónu sem má gengisfella til að jafna óhjá- kvæmilegar sveiflur í greininni. Það bendir ekki til að heill hugur hafi fylgt máli þegar þeir sam- þykktu að stefna að upptöku evru. Í þessu ljósi hljóta margir að horfa til þess hvort Sjálfstæðis- flokkurinn ætlar eins og hinir að loka í raun þeim leiðum sem geta skapað skilyrði fyrir raunveruleg- um útflutningshagvexti eða hvort hann mun einn flokka halda þeim opnum. Spurningin er hvort leysa eigi vandann eða láta blekkingu verðbólgunnar duga. Tækifæri B arnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur á Alþingi nú í vikunni. Sáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989, undir- ritaður fyrir Íslands hönd 1990 og fullgiltur árið 1992. Leiðin hefur því verið nokkuð löng. Enginn mannréttindasáttmáli hefur verið staðfestur af fleiri þjóðum en Barnasáttmálinn, eða 192. Áhrif hans eru því, eða ættu að minnsta kosti að vera, víðtæk. Samkvæmt umboðsmanni barna hefur þó sjaldan verið vitnað til sáttmálans við úrlausn mála hjá stjórnvöldum og dómstólum. Sáttmálinn hefur haft lítil áhrif á dóma- framkvæmd, meira að segja hefur komið fyrir að dæmt hefur verið gegn samningnum fyrir íslenskum dómstólum. Með lögfestingu sáttmálans á slíkt ekki að vera mögulegt lengur. Mikið hefur áunnist í réttindamálum barna undanfarna áratugi. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er samtvinnaður þeirri viðhorfsbreytingu sem hefur vissulega verið mismikil meðal þjóða og heimshluta og felst í því að líta á börn sem fullgilda borgara með eigin réttindi sem meðal annars felast í rétti þeirra til að fá vernd af hálfu fullorðinna á ýmsum sviðum. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tekur til margvíslegra réttinda barna, mannréttinda svo sem skoðanafrelsis, tján- ingarfrelsis og trúfrelsis og rétt barna til menntunar. Í sátt- málanum felst líka sú sýn að börn séu hópur sem vernda þarf sérstaklega, umfram þá sem fullorðnir eru, og aðildarríkin taka á sig þá skyldu að tryggja ákveðna grunnþjónustu sem snýr að velferð barna. Lögfesting Barnasáttmálans er mikilvægur áfangi. Með lögfestingunni er staða barna á Íslandi sterkari en hún var áður. Þingmenn sem stóðu að lögfestingunni og samþykktu hana eiga skilið heiður og þökk fyrir að hafa stigið þetta skref. Nú ríður á að kynna efni samningsins en nefnd Sameinuðu þjóðanna hefur einmitt gert athugasemd við kynningu hans hér á landi. Auk barnanna sjálfra, sem vitanlega eiga að þekkja réttindi sín, og foreldranna, þeirra sem ábyrgð bera á uppeldi og uppvexti barnanna, þá er mikilvægt að allir þeir sem koma að starfi með börnum þekki ákvæði samningsins og vinni í samræmi við þau í menntakerfinu, félagslega kerfinu, innan heilbrigðisgeirans og í stjórnsýslunni. Allir þessir hópar þurfa að gerþekkja efnisatriði Barna- sáttmálans til þess að starf þeirra allt samræmist þeim rétt- indum sem börnin hafa samkvæmt honum. Þarna er hlutur sveitarfélaganna veigamikill því þau reka hina daglegu skólaþjónustu við börn, bæði leikskólann og grunnskólann, sjálfa skólaskylduna. Aðeins með því að efni sáttmálans samtvinnist öllu starfi sem tengist börnum verður lögfesting hans þau tímamót sem hún á að vera. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna lögfestur: Mikilvægur áfangi fyrir börn Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.