Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 23. febrúar 2013 | SKOÐUN | 17
Skoðun visir.is
Sparneytinn
d silb ll!
1,4 dísil, beinskiptur. Verð: 3.550 þús. kr.
Eyðsla 4,1 l/100 km.*
Hyundai i30 Classic
Opið dag fr 10–16
Kaupt ni 1 - 210 Garðabæ
575 1200 - www.hyundai.is
www.facebook.com/hyundai.is
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1(Beint á móti IKEA)
Opið frá kl. 07.45–18.00 virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
*
M
ið
as
t
vi
ð
bl
an
da
ða
n
ak
st
ur
s
am
kv
æ
m
t
fr
am
le
ið
an
da
/
a
uk
ab
na
ðu
r
m
yn
d,
lfe
lg
ur
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
7
4
8
AÐEINS Í DAG!
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Opið í dag kl. 11-16.
NUDDTÆKI
VERÐ ÁÐUR 7.900,-
NÚ 3.950,-
50%
50%
VERÐ ÁÐUR 4.900,-
NÚ 2.450,-
Um þessar mundir
berast fréttir af því að
fjöldi unglækna á Land-
spítala hafi sagt upp
og að enn fleiri þeirra
íhugi uppsagnir á næstu
vikum. Bæklunardeild
verður alveg án deildar-
lækna frá og með næstu
mánaðamótum ef heldur
fram sem horfir og fleiri
deildir finna fyrir sárum
skorti.
Landspítalinn gerir
ýmsar kröfur til unglækna
sinna. Starfið er vanþakklátt,
annasamt og oft á tíðum flókið.
Það hefur svo sem ekki breyst.
Það sem breyst hefur er álag á
hvern unglækni. Fyrir þrem-
ur til fjórum árum var algeng-
ast að í hverju teymi væri einn
nýútskrifaður unglæknir og
annar reyndari, sem saman
sinntu hópi inniliggjandi sjúk-
linga. Víða á Landspítalanum
hefur verið fækkað niður í einn
unglækni á teymi. Þó að margir
Íslendingar hafi farið til Noregs
virðist veiku fólki á Íslandi ekki
fara fækkandi. Teymin hafa því
alls ekki minnkað.
Daglega lenda unglæknar á
Landspítalanum í því að klára
ekki verk dagsins áður en
klukkan slær fjögur. Það er í
sjálfu sér ekki undarlegt, það
er bara ákveðið mikið sem næst
að framkvæma í því sem áður
var þekkt sem „hádegismatur“,
„kaffitími“ og „pissustopp“.
Hvað gerist þá? Sjúklingarnir
fara ekki í pásu til næsta dags
og sú krafa er gerð til
unglæknisins að hann
klári sín verk, þó að
mjög oft taki það 1-2 klst.
aukalega. Dag eftir dag.
Greiða á fyrir vinnu
Við unglæknar gerum
ýmislegt okkur til
skemmtunar, án þess
að krefjast launa fyrir
það. Til dæmis fór ég
nýverið að fikta við golf.
Hafði gaman af því.
Vandræðalega lélegur í því, en
hef samt gaman af því. Gott
hobbí. Að stunda lækningar
klukkustundum saman eftir að
vinnunni átti að ljúka er hins
vegar ekki skemmtilegt hobbí.
Það er vinna og það á að greiða
fyrir hana. Landspítalinn hefur
staðfastlega neitað að greiða
fyrir þessa vinnu. Ber fyrir sig
að unglæknar eigi einfaldlega
að ná að klára þessa vinnu í dag-
vinnutímanum, geti sjálfum sér
um kennt ef þeir þurfa að vinna
fram eftir. Síðustu samningar
náðu að kría út greiðslu fyrir 5
fasta yfirvinnutíma á mánuði
vegna þessa álags. Fimm.
Eðli starfa unglækna er þann-
ig að vinna þarf á kvöldin, nótt-
unni og um helgar, auk dag-
vinnu. Þegar ekki næst að veita
unglæknum lögbundinn hvíldar-
tíma milli vakta skapast lögum
samkvæmt frítökuréttur. Þann
rétt á að vera hægt að taka út
í fríi eða peningum. Því miður
hefur Landspítalinn yfirleitt
hvorki séð sér fært að veita ung-
læknum þennan frítökurétt né
að greiða hann út.
Ofangreint bætist við þegar
lág laun unglækna á Íslandi,
sem, eftir sex ára háskólanám,
starfa fyrsta árið fyrir 330.009
krónur á mánuði. Launin geta
hæst hækkað í 411.757 á mán-
uði, þá eftir að hafa bætt alls
fjórum aukaárum af menntun
og þjálfun við háskólaárin sex.
Hver er þá munurinn á golfi og
lækningum?
Golf er hobbí. Lækningar
eru vinna, og fyrir þær ber að
greiða laun.
Meðal annars þess vegna
ákvað ég að hafna atvinnutil-
boði Landspítalans síðasta vor
og flytja norður í land. Meðal
annars þess vegna styð ég koll-
ega mína á Landspítala í aðgerð-
um sínum og uppsögnum og
sendi þeim mínar bestu baráttu-
kveðjur.
Svo ég taki fræga setningu
sem féll skömmu eftir hrun,
endurorði hana og geri hana
að minni; sá sem fer síðastur
vinsamlegast slökkvið ljósin á
sjúkrahúsinu á leiðinni út.
Lækningar og golf
– er munur?
➜ Að stunda lækningar
klukkustundum saman eftir
að vinnunni átti að ljúka er
hins vegar ekki skemmtilegt
hobbí. Það er vinna og það á
að greiða fyrir hana. Land-
spítalinn hefur staðfastlega
neitað að greiða fyrir þessa
vinnu.
373
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR
Inneignarnóta innanlands
Pawel Bartoszek pistlahöfundur
345
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR
Á að hjakka í sama farinu áfram?
Ragnar H. Hall lögmaður
270
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR
Netsíur leysa engan vanda
Bjarni Rúnar Einarsson tölvunarfræðingur
247
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR
Afnám stimpilgjalda núna
Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingmaður
218
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR
Skapandi stofnanir
Katrín Júlíusdóttir fj ármála- og efnahags-
ráðherra
179
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR
Feitar og fallegar?
Friðrika Benónýs pistlahöfundur
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Kristófer
Sigurðsson
unglæknir