Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 22
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
HELGIN
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR
Fjórir fá sína fyrstu tilnefn-
ingu fyrir leik í aðalhlutverki í
ár: Bradley Cooper (Silver Lin-
ings Playbook), Hugh Jackman
(Vesalingarnir), Emmanuelle
Riva (Amour) og Quvenzhane
Wallis (Beasts of the
Southern Wild).
Hin 85 ára gamla,
franska Riva er
elsta leikkonan í
sögunni til að verða
tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir
leik í aðalhlut-
verki. Hin níu
ára gamla
Wallis er
sú yngsta.
Gloria
Stuart er
elsta leik-
konan sem
tilnefnd
hefur verið fyrir aukahlutverk
en hana hlaut hún hlutverk
sitt í Titanic árið 1997. Yngsti
leikarinn sem tilnefndur hefur
verið er Justin Henry, sem
var átta ára þegar hann var
tilnefndur fyrir leik í aukahlut-
verki í Kramer Vs. Kramer.
Níu af þeim tuttugu leikurum
og leikkonum sem tilnefnd
eru í ár hafa unnið til verð-
launanna áður: Daniel Day-
Lewis, Denzel Washington,
Alan Arkin, Robert De Niro,
Philip Seymour Hoffman,
Tommy Lee Jones, Christoph
Waltz, Sally Field og Helen
Hunt.
Kvikmyndaframleiðendurnir
Kathleen Kennedy og Steven
Spielberg hafa oftast verið
tilnefndir fyrir bestu myndina,
alls átta sinnum. Þau eru með-
framleiðendur að myndinni
Lincoln.
Amour er fimmta
myndin sem er bæði
tilnefnd sem besta mynd
ársins og í flokknum
erlenda mynd ársins.
Hinar fjórar eru Z, The
Emigrants, La vita e belle,
og Crouching Tiger, Hidden
Dragon.
Silver Linings Playbook er
fyrsta myndin sem fengið
hefur tilnefningu sem mynd
ársins, fyrir leikstjórn, handrit
og í öllum fjórum leikaraflokk-
um síðan Reds eftir Warren
Beatty gerði það árið 1981.
George Clooney jafnar annað
met Warrens Beatty en þeir
eru þeir
einu sem
tilnefndir
hafa verið
fyrir leik-
stjórn,
handrit,
leik og
bestu mynd
(Clooney er
einn fram-
leiðenda
Argo, sem
tilnefnd er
í ár).
Enginn núlifandi hefur fengið
jafn margar tilnefningar til
Óskarsverðlaunanna og John
Williams, alls 48. Sá eini sem
fengið hefur fleiri tilnefningar
er Walt Disney, með 59. Woody
Allen kemur á hæla Williams
með 28.
Roman
Coppola er
tilnefndur
ásamt Wes
Anderson
fyrir besta
frumsamda
hand-
ritið fyrir
myndina
Moonrise
Kingdom.
Hann er sá sjötti í Coppola-
fjölskyldunni sem hlotið hefur
tilnefningu. Hin eru Carmine
Coppola, Francis Ford Coppola,
Talia Shire, Nicolas Cage og
Sofia Coppola. Alls hefur fjöl-
skyldan fengið 24 tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna.
Thomas Newman fékk sína
elleftu tilnefningu til Óskars-
verðlauna fyrir tónlistina í
James Bond-myndinni Skyfall.
Newman er af mikilli ætt
kvikmyndatónskálda; faðir
hans og föðurbræður, Alfred,
Lionel og Emil, voru allir
tónskáld, sem og bróðir hans
David og frændi hans Randy
Newman. Alls hefur Newman-
ættin fengið 87 tilnefningar til
Óskarsverðlauna síðan 1939.
VISSIR ÞÚ
ÞETTA UM
ÓSKARINN
?
Óskarsverðlaunin verða afhent í 85. skipti annað kvöld í Kodak-leikhúsinu í Los Angeles.
SILVER LIN
INGS
PLAYBOOK
ZERO
DARK
THIRTY
AMOUR
ARGO
LINCOLN
GEORGE
CLOONEY
ROMAN COPPOLA
Ólafur Darri Ólafsson, leikari
Leikhúshelgi hjá Darra
„Ég ætla að skella mér á frumsýningu
Mary Poppins og svo er ég að sýna
Mýs og Menn á sunnudaginn. Svo
þetta verður bara algjör leikhúshelgi
hjá mér, held ég.“
Ingó Geirdal, töframaður og gítarleikari
Dimmu
Æfi r fyrir styrktartónleika
„Við erum að æfa alla helgina fyrir styrktartón-
leikana hans Ingólfs Júlíussonar ljósmyndara
þar sem Dimma verður lokanúmerið í Hörpu
á fimmtudaginn. Svo standa yfir tökur á nýju
myndbandi hjá Dimmu. Síðan er ég líka að
skemmta í fimmtugsafmæli í dag.“
Ása Ottesen, eigandi Lakkalakk og nemi
Ræktar bæði hug og líkama
„Á laugardaginn byrja ég daginn á spinning
og sundi með Viktoríu vinkonu minni. Fer
svo upp í háskóla þar sem ég er að útskrifast
með BA-gráðu úr félags- og fjölmiðlafræði.
Bruna svo í Lakkalakk að vinna. Um kvöldið
geri ég svo eitthvað rólegt, kannski horfi ég
á bíómynd með Nóa kisunni minni. Sunnu-
dagurinn fer svo í leti.“