Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 26

Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 26
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Hver á Ísland? Stórt er spurt og af metnaði og reyndar var aldrei meiningin að geta svarað þeirri spurn-ingu enda nlega . Ísland er líka mun meira en jarð- ir og lögbýli. Íbúar sveitarfélaga hljóta að eiga land í eigu þeirra, þjóðlendur eru xxx hluti af land- inu og þær eigum við öll. En síðan eru það blessaðar jarðirnar og um það hafa deilurnar snúist. Þess vegna var sjónum beint að þeim; hver á þær, hvar eru þær, hve stórar, hvaða lög og reglur gilda um eignarhaldið og hver er stefna stjórnmálamanna? Margt hefur komið á óvart við vinnslu þessa greinaflokks. Þar má nefna það að jarðasöfnun virðist vera lítil sem engin, þrátt fyrir að stjórnmálamenn tali oft og tíðum eins og hún sé vanda- mál sem á þurfi að taka. Þá eiga útlendingar afskaplega fáar jarð- ir. Þeir eru líka eins og aðrir eig- endur, sumir gera lítið á eignum sínum, aðrir standa fyrir upp- byggingu og eyða umtalsverðum fjármunum til þess. Óljósar upplýsingar Þá hefur það einnig vakið athygli okkar hve margt er í raun á huldu um málaflokkinn. Við höfum sjálf- ir þurft að keyra saman gagna- grunna til að komast eins nálægt sannleikanum og hægt er varð- andi eignarhald á jörðum og enn stendur út af að ekki er hægt að ákvarða nákvæmlega, svo dæmi sé tekið, hve margar jarðir útlend- ingar eiga. Það skýrist af því að þeir geta átt í eignarhaldsfélög- um sem eiga jarðir eða jarðahluta. Nokkuð nákvæm tala er þó sú að rúmlega 100 jarðir af 7.595 eru í eigu útlendinga. Þá eru það ekki ný sannindi að jarðir eru ekki uppmældar, en það flækir málið enn frekar. „Þetta kemur þéttbýlisbúum alltaf á óvart,“ segir Magnús Leópoldsson fasteignasali. Þeir standi í þeirri meiningu að allt sé uppmælt, eins og eignir í þéttbýli. Í staðinn þarf að styðjast við gömul landa- merkjabréf sem oft og tíðum eru óljós og um þau geta staðið deilur. „Þetta fer oft eftir vísifingrinum á bóndanum. Hann bendir upp í hlíð segir nokkurn veginn hvar jörðin liggur.“ Lítið uppmælt Þrátt fyrir að bændur sjálfir hafi kallað eftir því að gerð verði gang- skör að því að mæla upp jarðir, enda vilja þeir vita hvað þeir eiga og mega selja, hefur lítið gerst í þeim málum. Ríkið, sem er stærsti jarðeigandinn, hefur ekki gengið á undan með góðu fordæmi hvað þess eignir varðar. Samkvæmt fasteignamati eru stærðir á jörðum því yfirleitt skráðar 0 hektarar. Einhver upp- mæling hefur farið fram á úthög- um, enda eru þeir verðmætara land. Nákvæm stærð jarða ligg- ur þó sjaldnast fyrir og því skipt- ir engu hvaða gagnagrunnar eru keyrðir saman, ógjörningur er, eins og staðan er í dag, að segja til um hve stór hluti jarðnæðis sé í eigu útlendinga, eignarhaldsfélaga eða ríkisins. Sem dæmi um það hve mörgu er áfátt í þessum málaflokki má nefna jarðirnar Háf, Háfshjáleigu og Hala í Rangárþingi ytra. Til er landlýsing frá fyrri hluta 20. aldar um skiptingu heimatúna bæjanna og þinglýst skjöl sýna landamerki þeirra. Árið 2006 kom eigandi Háfs hins vegar að máli við sveitar- stjórn með nýja hnitsetningu á því sem talið hafði verið sameig- inlegt land. Á innan við viku hafði sveitarstjórn sent erindið til land- búnaðarráðuneytisins, fengið jákvætt svar, samþykkt nýju hnit- in og sýslumaður þinglýst; allt án þess að eigendur hinna tveggja jarðanna hefðu hugmynd um það, enda var ekki rætt við þá. Síðan hafa staðið dómsmál um spilduna sem hnituð var út og hafa dómar fallið eiganda Háfs í vil. Engu að síður hefur sveitarfélagið ekki verið tilbúið til þess að veita honum leyfi til að skipta því landi upp, þar sem Hæstiréttur Íslands segir vafa ríkja um eignarhaldið. Eigandinn má því selja spilduna í heilu lagi, en ekki skipta upp, þrátt fyrir að þinglýst skjöl sýni hvern- ig hún liggur og staðfesti eignar- hald hans. Stefnumörkun í vændum Svörin við því hver eigi Ísland eru því mörg og óljós. Ríkið, í ein- hverri mynd, er langstærsti eig- andinn. Kirkjumálasjóður kemur næstur. Landsbankinn á, í gegnum Lífsval, tæplega 40 jarðir og nokk- ur eignarhaldsfélög eiga nokkrar jarðir hvert. Eftir stendur að jarð- ir eru að mestu í dreifðri eigu. Það má líka velta því fyrir sér hvort það sé í raun ekki dreifðari eign þegar eignarhaldsfélag, með mörgum hluthöfum, á þrjár jarðir, en þegar einn eigandi á heila jörð? Stjórnmálamenn virðast vera sammála um að festa þurfi í lög takmörkun varðandi eignar- hald á jörðum. Hún getur falist í stærð þeirra, fjölda, nytjum eða að gerð verði krafa um búsetu. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra hyggur á setningu reglu- gerðar þar sem þess verði krafist að erlendir eigendur jarða verði að vera með efnahagslega starf- semi á þeim. En hvað þýðir það? Rudolph Walter Lamprecht hefur eytt yfir 50 milljónum króna í skógrækt í Heiðardal og stundar þar fiskrækt. Er það efnahagsleg starfsemi? Eða verður að stunda búskap á jörðinni? Sé að marka orð stjórnmála- manna er hins vegar ljóst að á næstu árum eigum við eftir að sjá takmarkanir af einhverju tagi í lögum. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráð- herra, kallar eftir opinni umræðu um málið. „Ég held að það eigi að ræða þetta opinskátt og nálgast þetta yfirvegað og losna við, bæði alla þjóðrembu, en líka alla feimni við að ræða þetta. Sumir fyllast alltaf tortryggni um að nú eigi að fara að loka einhverju og læsa og þetta sé einhvers slags gam- aldags verndar sjónarmið. Mér finnst þetta vera alveg þvert á móti, þetta er spurningin um að þora að takast á við framtíðina og rýna inn í hana.“ Gögn og aftur gögn Slík umræða mun, að öllum lík- indum, fara fram á næstu árum. Framtíðarstefnu hefur vantað í málaflokknum, en vilji virðist vera til að gera bragarbót á því. Stjórn- málamenn hafa nefnt að þó jarða- söfnun og eignarhald útlendinga sé ekki vandamál núna, geti það orðið það í framtíðinni. Um það skal ekkert fullyrt. Hins vegar hlýtur það að vera til góðs að setja málin niður fyrir sig, skoða staðreyndir og meta stöðuna eins og hún er, ekki eins og orð- rómurinn segir að hún sé, og móta stefnu til framtíðar. Hver sem hún svo verður. Gott skref í því væri að gera gögn aðgengilegri, opna þau, mæla upp landið og útbúa kort. Á því er síðan hægt að byggja skyn- samlegar ákvarðanir. Lamprecht sagði að viðbrögðin við eignarhaldi útlendinga á jörð- um væru skiljanleg. Þau væru hins vegar byggð á tilfinningum. Ekki ber að loka augunum fyrir mikil- vægi tilfinninga, en lagasetning og stefnumörkun verður einnig að byggja á staðreyndum. Tilfinningar ráða gjarnan för Upplýsingar liggja ekki á lausu um eignarhald á jörðum, kort eru ófullkomin og stjórnvöld hafa ekki skýra stefnu í málaflokknum. Engu að síður hafa allir skoðun á ástandinu og hvert skal stefnt. Stefnan verður hins vegar að byggja á réttum upplýsingum sem þurfa að liggja fyrir. ÍSLAND Spurningunni um hver eigi Ísland er ekki auðsvarað, enda á landið sig líklega sjálft. Ljóst er bæta þarf upplýsingar ef marka á stefnu til framtíðar í jarðamálum. MYND/NASA Íslandi ber, sem aðila að EES-samningnum, skylda til að taka upp tilskipun um að koma á grunngerð fyrir landupplýsingar í Evrópubandalaginu (INSPIRE). Tilskipunin rennur út árið 2019, en Ísland hefur fengið frest til ársins 2022 til að uppfylla tilskipunina. Samkvæmt henni þarf að veita aðgang að öllum opinberum landupplýsingum og kortum. Landmælingar Íslands vinna að verkefninu, með styrk frá Evrópusam- bandinu. Hins vegar felur tilskipunin ekki í sér kröfu um að gögn verði búin til þar sem þau vantar. Það er því ekki skylda að mæla upp land eða gera kort af jörðum. Styrkjakerfi ESB í landbúnaði samanstendur, meðal annars, af beingreiðslum sem byggja á stærð jarða. Verði Ísland einhvern tímann aðili að sambandinu, þurfa þær því að liggja fyrir. Styrkur vegna landupplýsingakerfis Líkt og fram hefur komið er ríkið langstærsti jarðeigandinn. Ríkisjörðum hefur þó fækkað umtalsvert á síðustu árum og áratugum. Árið 1996 voru þær 638, árið 2000 516 og í dag eru þær 445. Líkt og sést hér til hliðar hefur ríkið selt fjórtán jarðir á síðustu fjórum árum. Á árunum 1991 til 2000 seldi ríkið 127 jarðir, en keypti á móti 21 jörð. Steingrímur J. Sigfússon veltir því upp hvort ríkið eigi kannski að hætta að selja jarðir. „Ætlar ríkið að hætta að selja jarðir sem það á, bara til þess að það sé þá visst mótvægi í því fólgið að þetta mikið af jarðnæði sé þá í íslenskri eigu. Í mínum huga er ákaflega mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart þessu og það gera öll lönd í kringum okkur. Það er engum sama um það hvernig jarðnæði er meðhöndlað og að það geti í stórum stíl sóp- ast á fárra manna hendur, eða þá menn geti keypt það upp til þess að gera eitthvað allt annað við það heldur en kannski samfélagið telur almennt skynsamlegt að gera.“ Ríkissjóður hægir á sölu jarða sinna *Jarðir á forræði fj ármálaráðuneytis, sem hefur langfl estar ríkisjarðir á sínu forræði. 1 2 3 4 5 6HVER Á ÍSLAND? Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Páll Hilmarsson pallih@gogn.in 2009 2010 2011 2012 6 5 4 3 2 1 0 ■ Seldar ríkisjarðir ■ Seldir jarðahlutar/skikar úr ríkisjörðum Hlutfall eigenda að jörðum sem eiga 100% í jörð 84% 12% 2%1% 1% 1 jörð 2 jarðir 3 jarðir 4 jarðir 5 jarðir eða fl eiri HEIMILD: ÞJÓÐSKRÁ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.