Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 40

Fréttablaðið - 23.02.2013, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s. 512 5432 | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Kviknes-hótel í Balestrand var fyrir stuttu valið besta sveitahótelið í Noregi af Grand Travel Awards, sem tíma- ritið Travel News stendur fyrir. Hótelið stendur við hinn undur- fagra Sognefjord. Fjörðurinn er sá lengsti í Noregi og þriðji lengsti í heimi og sækir mikill fjöldi ferða- manna hann heim yfir sumar- tímann. Ásdís segir að á meðan skóla- fríin voru lengri á Íslandi yfir sumar mánuðina hafi verið afar algengt að ungar stúlkur ynnu á norskum hótelum. Þannig er það ekki lengur. Hún finnur þó vel fyrir fjölgun Íslendinga eftir hrunið í nærliggjandi bæjum en Björgvin er næsta borg við Sognefjord. Þrjár klukkustundir tekur að aka þá leið en einnig er hægt að taka hraðbát. „Balestrand er lítill bær og hér er fámennt yfir vetrartímann. Á sumrin fyllist allt af ferða mönnum og þá er mikið líf hér. Hér eru þrjú stór hótel og farfuglaheimili. Á þessum stað búa ríf lega tuttugu Íslendingar. Þar á meðal er kona hótelstjórans og eiganda Kvik- nes, María Ragnarsdóttir. Ég hef mikið samband við Maríu en hún á fjögur börn og ég fimm. Einnig er hér mjög vinsæll íslenskur smiður, Svanur Kristófersson og fjölskylda hans. Svanur er með sjö manns í vinnu. Hann kom fyrst hingað 1993 og byggði húsið okkar, fór heim en flutti síðan með fjöl skylduna hingað, enda nóg fyrir hann að gera,“ segir Ásdís. „Allir sem koma hingað segja að þetta sé fallegasti staður sem þeir hafa komið til. Það er ferja sem f lytur fólk hingað svo ekki þarf að aka þennan langa fjörð. Hér er haldin stór djasshátíð árlega í maí þar sem meðal annars Mezzoforte hefur komið fram. Þessi hátíð er mjög vel sótt og skemmtileg stemn- ing sem myndast.“ Það er margt að sjá í Sognfirði en þar eru fimm elstu stafkirkjur í Noregi. Ein þeirra er á heims- minjaskrá UNESCO. Í firðinum eru fjölbreytt ávaxtatré og berja- lönd. Mikið er lagt upp úr matar- gerð á svæðinu og þá er að sjálf- sögðu notað hráefni úr sveitinni. Hægt er að kaupa sultu, saft, epla- cider eða ávaxtavín, allt unnið á staðnum. Ásdís segist fara reglulega í heim- sókn til Íslands svo hún fær sjaldan heimþrá. Hún rekur heildsölu og verslun í Balestrand, flytur meðal annars inn Cintamani-vörur frá Ís- landi, fatnað frá Farmers Market og Ígló barnafatnað. Einnig hefur hún umboð fyrir ítalskan pitsuofn bæði í Noregi og á Íslandi. „Ég sel einungis vönduð merki og hef marga fasta viðskiptavini hér í Noregi.“ Ásdís á fjóra syni og eina dóttur sem var fermd síðasta sumar. Þá kom fjölskylda hennar í heimsókn frá Íslandi. „Fermingarveislur hér eru svipaðar og heima. Það er mikið í þær lagt og alltaf heitur matur. Mikið sungið og haldnar ræður.“ Ílengdist í Noregi Ásdís Hrund Einarsdóttir réð sig til sumarvinnu á Kviknes-hóteli sem stendur á undurfögrum stað í Balestrand. Þetta var árið 1979 en Ásdís býr þar enn og hefur komið sér vel fyrir. Kviknes-hótelið í Balestrand við Sognfjörð í Noregi. Ásdís Hrund Einarsdóttir, til vinstri, ásamt systur sinni, Hildi, og dótturinni Elsu Hrund á fermingardeginum hennar í fyrra. New York trónir efst á lista virtra ferðatímarita sem matarhöfuð- borg heimsins. Borgin ber viðurnefnið Stóra eplið með rentu því þar spretta upp veitingastaðir eins og gorkúlur og sífellt bætast ný nöfn í raðir frægðarfólks úr röðum kokka, veitingamanna, matar- bloggara og matargagnrýnenda. Í New York malla saman í einum graut allt frá heimsins fínustu Michelin-kokkum yfir í metnaðar- gjarna götukokka sem selja sælkerapylsur í sölutjöldum. Allt sem viðkemur matartísku magnast upp og verður enn meira í New York og hægt að þræða veitingastaði með smakkmatseðla yfir í nýnorrænt eldhús og allt þar á milli. Það er svo fjölþjóðasam- félaginu í New York að þakka hægt er að verða sér úti um spænska reykta skinku, geitamjólkur-gnocchi og fylltar soðkökur innan tíu húsalengda. Matarhöfuðborg heims Djúsbar og matsölustaðir framan við Trinity-kirkjuna í New York. SNJÓHÚS TIL SÖLU Yfirgefið og hálfklárað hótel hefur verið auglýst til sölu í Alaska. Húsið er merkilegt að því leyti að það lítur út eins og risavaxið snjóhús. Byggingin, sem staðið hefur auð í nærri fjóra áratugi, er á fjórum hæðum og hefur verið kölluð „Igloo City“, snjóhúsa- borg, af íbúum svæðisins. Fjár- hagsvandi og vandræði með upphaflegar teikningar urðu til þess að húsið var aldrei klárað. Og verðið? Eigandinn segist skoða öll tilboð en setur þá kröfu að nýi eigandinn ætli sér að klára bygginguna og reka þar hótel. Það gæti þó orðið erfitt fyrir nýja eigendur að finna næturgesti. Snjó- húsahótelið stendur nefnilega við afskekktan þjóðveg tæplega 300 km norður af Anchorage. Íbúar í nálægasta þorpi eru rétt um 200 talsins. Ertu á leiðinni til útlanda? Pantaðu ódýra bílaleigubílinn hér heima í síma 562 6060 eða á budget.is og gerðu ferðina dýrmætari. www.budget.is Dýrmæt ferð Ódýrbílaleigubíll Allir sem koma hingað segja að þetta sé fallegasti staður sem þeir hafa komið til.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.