Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 43
■ FRAMHALD Á SÍÐU 2
MÓTAÐ Í SAND
Listasafn Reykjavíkur býður upp á opna listsmiðju „Mótað í sand“
fyrir níu ára og eldri börn á morgun milli klukkan 14-16. Sýningin
er í tengslum við sýningu Roberts Smithson, Rýnt í landslag.
Frítt er fyrir börn undir 18 ára aldri og handhafa Menningar-
kortsins.
FJÖLHÆFUR
Björn Bragi er maður
ekki einhamur. Hann
hlaut tvívegis titilinn
Ræðumaður Íslands
í Morfís, ræðukeppni
framhaldsskólanna,
og var í sigurliði
Versló í Gettu betur á
menntaskólaárunum. Nú
stýrir hann vikulegum
sjónvarpsþætti ásamt
því að koma fram sem
uppistandari með
Mið-Íslandi og vera
veislustjóri í hjáverkum.
MYND/STEFÁN
Það er mikill misskilningur að ég sé á lausu því ég á kærustu. Hún heitir Hildur Vala og var með
mér og fyrir sjónum landsmanna á
Edduverðlaununum,“ segir Björn Bragi
sem í vikunni lenti á lista DV yfir þrettán
heitustu piparsveina landsins.
Björn Bragi var einnig í fréttum
liðinnar viku þegar landsmenn kusu
hann Sjónvarpsmann ársins á Eddunni.
„Það kom sannarlega á óvart
og tilfinningin var góð en blandin
geðshræringu. Ég hef lagt í vana
minn að gera allt sem ég geri af
vandvirkni, í einlægni og af virðingu
fyrir viðfangsefninu, hvort sem það er í
gríni eða alvöru. Edduverðlaunin sýna
kannski að ég hef gert rétt.“
Björn Bragi segist ekki hafa farið var-
hluta af óánægjuröddum sem gagnrýna
kosninguna á þeim forsendum að hann
sé nær óþekktur í sjónvarpi.
„Það hefur með að gera að þátturinn
er ekki í sjónvarpi allra landsmanna.
Markhópur Týndu kynslóðarinnar er
ungt fólk á öllum aldri og vitaskuld
alveg jafn virðingarvert að sérhæfa sig
í þeim hópi eins og hverjum öðrum,“
segir Björn Bragi, sem í kosningunni
skaut Andra Frey Viðarssyni, Gísla
Einars syni, Jóhannesi Kr. Kristjáns-
syni og Sigmari Guðmundssyni ref fyrir
rass.
„Allir eru þeir frábærir sjónvarps-
menn sem verðskulda lof fyrir einstaka
umfjöllun um oft erfið málefni. Grín og
gamanefni eru ekki síður vandasöm
vinna og vegur alveg jafn þungt. Það
getur nefnilega verið gott fyrir sálar-
tetrið að hlæja svolítið eftir erfið mál.“
BEKKJARTRÚÐUR OG KAMELLJÓN
En hver er Björn Bragi Arnarsson?
„Ég er Árbæingur, grínisti og mátulega
mikill nörd. Ég hef yndi af því að vera
í fjölmiðlum, koma víða við og fjalla
um áhugavert fólk. Ég er líka passlega
mikið kamelljón til að eiga auðvelt með
ÓÞOLANDI SKRÍMSLI
VINSÆLASTUR Skemmtikrafturinn og fjölmiðlamaðurinn Björn Bragi Arnars-
son var kosinn Sjónvarpsmaður ársins á Eddunni. En hver er maðurinn?
Af hverju D Lux 1000?
Eins og náttúran hafði í hyggju
Áríðandi tilkynning! D vítamín birgðir
Íslendinga eru í lágmarki nú í skammdeginu
DLUX1000 er byltingarkennt D-vítamín í munnúðaformi
Tryggir hámarksnýtingu !
D vítamín til daglegra nota
Hentar öllum aldri
Náttúrulegt piparmyntubragð
3
mánaða
skammtur
magnaða
sólarvíta-
mínið
hlustið - trúið - hlýðið
HARMAGEDDON