Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 72

Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 72
KYNNING − AUGLÝSINGHeiti blaðs LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 20136 Ég var fljót að eignast vini hérna og svo þarf maður eiginlega að vera sérfræðingur í leiðindum til að láta sér leiðast í New York. Dóra um upplifun sína af borginni. Dóra svarar í símann. Hún er á leiðinni með son sinn Ragnar Eld í fimleika fyrir börn og biður mig um að hringja eftir nokkrar mínútur. Næst þegar hún svarar er hún á göngu um götur New York-borgar meðan sonurinn spriklar í fimleikum. „Við fluttum út í haust þegar Jörundur hóf nám í kvikmyndaleikstjórn við Col- umbia-háskólann. Okkur langaði bæði að prófa eitthvað nýtt og New York er frábær staður til að vera á,” segir Dóra um ástæður dvalarinnar þar ytra. Dýr leikskólapláss Jörundur stundar námið af kappi og fer í skólann snemma dags og kemur vanalega seint heim að kveldi. Dóra og Ragnar Eldur spóka sig í borginni á meðan. „Leikskóla- pláss hérna kostar rúmlega 200 þúsund á mánuði svo að við ákváð- um að ég myndi vera heimavinn- andi með Ragnar til að byrja með. Við mæðginin njótum þess að vera saman og upplifa það sem borgin hefur upp á að bjóða.” Frábær staðsetning Íbúðin þeirra er á mörkum Upper West Side og Harlem á stað sem heitir Morningside Heights. „Hún er á háskólasvæðinu og Jörundur er bara tvær mínútur í skólann og það er fimm mínútna gangur í Central Park. Þetta er því mjög fín staðsetn- ing. Við erum með stóra íbúð og fengum okkur meðleigjanda til að drýgja tekjurnar. Það er rússnesk- bandarískur strákur sem er með Jörundi í skólanum.“ Í fyrstu fannst Dóru skrítið að hafa meðleigjanda enda vön því að þau Jörundur og Ragnar Eldur byggju saman ein. „Fyrsta kvöldið lokaði ég mig inni í herbergi og fór að grenja, en í dag finnst mér þetta eiginlega bara lúxus. Hann kennir stráknum okkar ensku og það er minna að þrífa því við skiptum því á milli okkar. Svo er hann orðinn mjög góður vinur okkar.” Nýlega fengu þau svo au-pair til sín og Dóra notar tímann í að sækja námskeið og vinna að öðrum verk- efnum, en íbúðin er stór og allir eru með sér herbergi. „Hér er því kátt í höllinni. Svo ef það koma gest- ir, sem gerist mjög oft, þá erum við með svefnsófa í stofunni.“ Um þessar mundir er móðir Dóru ein- mitt í heimsókn hjá þeim hjónum. Nóg að gera í New York Spurð hvort hún hafi ekkert orðið einmana til að byrja með þar sem Jörundur er mikið í skólanum segir Dóra það ekki hafa gerst. „Ég var fljót að eignast vini og svo þarf maður eiginlega að vera sérfræð- ingur í leiðindum til að láta sér leiðast í New York.” Barnvæn borg Uppáhaldsstaður Dóru í borginni er Central Park. „Í garðinum er mikið af fjölbreyttum leikvöllum og gaman fyrir Ragnar Eld að leika sér. Hér eru líka margar fjölskyldur þar sem annar aðilinn er útivinn- andi en hinn heima og því mikið líf á leikvöllunum alla daga, nema kannski þegar það er sem kaldast, þá treysta fáir aðrir en Íslending- arnir sér á róló.“ Margir halda kannski að líf í stórborg sé ekkert fyrir krakka en Dóra mótmælir því. „Ég er ekk- ert standandi á Times-torgi með barnavagninn. Hverfið okkar er mjög barnvænt og fólk sem kemur að heimsækja okkur er oft undr- andi á því hve þetta er í rauninni yndislegt.“ Saknar ekki Íslands Óvíst er hversu lengi fjölskyldan ætlar að dvelja í Bandaríkjunum en söknuðurinn er ekki enn farinn að gera vart við sig. „Ég sakna fjöl- skyldunnar og vinanna en er ekki farin að sakna Íslands enn. Hér er svo ótrúlega margt að skoða og gera og við njótum lífsins í botn.“ Leiðindi ekki til í New York Sumt fólk eltir drauma sína og lætur þá verða að veruleika. Leikarahjónin Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir vildu prófa eitthvað nýtt. Þau fluttu síðasta haust til New York. Dóra telur að fólk þurfi að vera sérfræðingar í leiðindum til að láta sér leiðast í New York. Dóra, Jörundur og sonur þeirra Ragnar Eldur njóta lífsins í New York enda möguleikarnir endalausir Þegar kemur að því að finna sér eitthvað að gera. Eru ferðalög í kortunum? Pantaðu bílaleigubílinn hér heima á avis.is eða í síma 591 4000 og njóttu ferðarinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.