Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 84
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 48TÍMAMÓT
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Elskulegi faðir okkar, sonur, afi,
bróðir og frændi,
ÞORGRÍMUR SKJALDARSON
(TOGGI)
sem lést af slysförum 12. febrúar sl., verður
jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Linda Björg Þorgrímsdóttir
Hrafnhildur Heiða Þorgrímsdóttir
Persida Guðný Þorgrímsdóttir Kojic
Bryndís Árný Antonsdóttir
Jóhann Lúðvík Þorgrímsson
og fjölskylda.
Elsku hjartans eiginkona mín, yndislega
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR HELGA SIGFÚSDÓTTIR
snyrtifræðingur,
Helgubraut 15, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
aðfaranótt mánudagsins 18. febrúar. Útför
hennar fer fram frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði mánudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Björn Gíslason
Þorsteinn Björnsson Sóley G. Karlsdóttir
Anna Lilja Björnsdóttir Ragnar Garðarsson
Finnbjörn Már Þorsteinsson Sigríður Ragnarsdóttir
Tinna Ósk Þorsteinsdóttir Benedikt Björn Ragnarsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU GUÐJÓNSDÓTTUR
Suðurgötu 8, Keflavík.
Hugheilar þakkir sendum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Hafdís Hafsteinsdóttir
Haukur Hafsteinsson Þóra G. Gísladóttir
Svala Hafsteinsdóttir Magnús B. Magnússon
Brynja Hafsteinsdóttir Skúli Jónsson
Sigrún Hafsteinsdóttir Björn Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍA BENDER
Nesvegi 44, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 19. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju
þriðjudaginn 26. febrúar kl. 13.00.
Rósinberg Gíslason
Leifur Rósinbergsson Kristín Pálsdóttir
Kristín Rósinbergsdóttir
Guðrún Rósinbergsdóttir Páll Hólm
Hrefna Rósinbergsdóttir Guðjón Elí Sturluson
Steinunn Steinþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför
SIGURÐAR H. GUÐMUNDSSONAR
rafvirkjameistara,
Heiðargarði 16, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir fær Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja og Selið, Reykjanesbæ, fyrir
góða ummönnun og hlýju í hans garð.
Svava Hallgrímsdóttir
Guðmundur Sigurðsson
Valgerður Sigurðardóttir
Svava Sigurðardóttir
Hallgrímur Sigurðsson
Ásdís Sigurðardóttir Einir Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
KRISTJÁN G. GUÐMUNDSSON
húsasmiðameistari,
Kópavogsbraut 1 A,
lést á heimili sínu mánudaginn 18. febrúar.
Útför fer fram í kyrrþey.
Valborg Hallgrímsdóttir
Solveig S. Kristjánsdóttir Magnús Gunnarsson
Kristján Magnússon
Gunnhildur Magnúsdóttir Hlynur Þór Stefánsson
Valgeir Magnússon
Hákon Magnússon
Símon Magnússon
Helga Guðrún og Þórey María
Þjóðminjasafn Íslands fagnar á þessu
ári 150 ára afmæli en það var stofnað
þann 24. febrúar 1863. Tímamótanna
verður minnst með ýmsum hætti, bæði
hér heima og erlendis á næstu misser-
um. Hér heima einkennist afmælisárið
ekki síst af fjölbreyttum sýningum, en
fögnuðurinn byrjar á morgun.
Hvatinn að stofnun forngripasafnsins
var merkur fornleifafundur árið 1860
að Baldursheimi í Mývatnssveit sem
varð til þess að Sigurður Guðmunds-
son, málari og menningarfrumkvöð-
ull, skrifaði Hugvekju til Íslendinga
í tímaritinu Þjóðólf. Sigurði var annt
um menningu Íslands og sjálfsmynd
Íslendinga en fram að því höfðu flest-
ir forngripir þjóðarinnar verið flutt-
ir úr landi til varðveislu í Þjóðminja-
safni Dana, eins og segir í afmælisriti
safnsins.
Haldið verður málþing í Kaup-
mannahöfn dagana 1.-3. mars í tilefni
afmælisins. Það er Folkeuniversitetet í
samvinnu við danska þjóðminjasafnið
sem boðar til þingsins.
Að sögn Bryndísar Sverrisdóttur,
sviðsstjóra miðlunarsviðs Þjóðminja-
safnsins, munu fjölmargir fræðimenn
flytja fyrirlestra um ýmis efni tengd
Þjóðminjasafninu, meðal annars verð-
ur fjallað um ýmsa forngripi íslenska,
sem áður voru varðveittir í safninu
í Kaupmannahöfn, en þangað voru
gripir gjarnan sendir áður en Íslend-
ingar eignuðust sitt eigið safn. Meðal
þess sem fjallað verður um eru grip-
ir sem nú eru meðal þekktustu gripa
Þjóðminjasafns Íslands, eins og Þórs-
líkneskið, Valþjófsstaðahurðina og
Grundarstólinn, en þeir fóru allir utan
en voru sendir aftur heim í tilefni af
Alþingishátíðinni 1930.
Vigdís Finnbogadóttir hefur stýrt
afmælisnefnd, sem sett var á stofn árið
2011, og mun hún flytja ávarp í upp-
hafi þingsins. Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður mun fjalla um Þjóð-
minjasafnið í nútíð og framtíð og Lilja
Árnadóttir, fagstjóri á Þjóðminjasafn-
inu, um fyrstu ár safnsins og áhersl-
urnar sem voru ríkjandi í tíð Sigurðar
Guðmundssonar málara. Þór Magnús-
son, fyrrverandi þjóðminjavörður, mun
flytja fyrirlestur um íslenska silfur-
smiði sem lærðu í Kaupmannahöfn,
en þeir ílentust margir ytra.
Enn er hægt að skrá sig á málþing-
ið á vefsíðu Folkeuniversitetet: www.
folke universitetet.dk svavar@frettabladid.is
Fjallað um forngripi í
tilefni stórafmælis
Þjóðminjasafnið er 150 ára. Afmælisins er minnst með ýmsum hætti hér heima og
erlendis. Í Kaupmannahöfn verður haldið stórt málþing í samvinnu Folkeuniversitetet og
danska þjóðminjasafnsins þar sem ómetanlegir gripir skipa heiðurssess.
FLÖKKUGRIPUR Kaleikur og patína frá Keldum eftir Halldór Þórðarson sem lærði í Kaup-
mannahöfn en kom aftur heim. MYND/ÞJÓÐMINJASAFN
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Glæsileg afmælishátíð er haldin í safninu á morgun frá ellefu og fram á kvöld. Eins verða afmælissýningar opnaðar formlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR