Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 86
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, tryggð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
ÞORKELS SIGURBJÖRNSSONAR
tónskálds.
Barbara Sigurbjörnsson
Mist Þorkelsdóttir Sigfús Nikulásson
Sigurbjörn Þorkelsson Aðalheiður Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
JÓHANNA ÞORLEIFSDÓTTIR
Höfða, Akranesi,
andaðist 20. febrúar. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 1. mars
kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Sigurður Gunnarsson Kristjana Þórarinsdóttir
Sigurlín Gunnarsdóttir Eiríkur Jónsson
Þór Arnar Gunnarsson Björg Agnarsdóttir
Gunnar Gunnarsson Sigríður Þrastardóttir
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, systur,
ömmu og langömmu,
DÍSU SIGFÚSDÓTTUR
Austurbyggð 17, Akureyri.
Hreinn Grétarsson Margrét G. Magnúsdóttir
Heiða Grétarsdóttir Jón Sveinbjörnsson
Líney Grétarsdóttir
Jóhanna Grétarsdóttir
Rósant Grétarsson
Sigmar Grétarsson Edda J. Baldursdóttir
Haraldur Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu í veikindum og
við andlát heittelskaðs eiginmanns, föður,
tengdaföður, tengdasonar og afa,
JÓNS REYKDAL.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
krabbameinsdeildar og líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi sem annaðist
hann af fagmennsku og mikilli umhyggju.
Jóhanna Vigdís Þórðardóttir
Nanna Huld Reykdal Magnús Eðvald Björnsson
Hadda Fjóla Reykdal Snorri Einarsson
Hlín Reykdal Hallgrímur Stefán Sigurðsson
Sigríður Þóra Eiríksdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vinsemd við andlát eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
BIRGIS ÁGÚSTSSONAR
vélvirkja,
Hraunbæ 84.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
heimahjúkrunar Karitas fyrir alúð
og góða umönnun.
Edda Kjartansdóttir
Kjartan Birgisson Guðrún Sæmundsdóttir
Ágúst Birgisson Sigurður Rúnar Sigurðsson
Jóhanna Birgisdóttir Björn Hörður Jóhannesson
Auður Edda Birgisdóttir
Margrét Kjartansdóttir
Kjartan Helgi Kjartansson
Aron Bjarki Björnsson
Karen Lea Björnsdóttir
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, bróður og frænda,
SIGURÐAR ÞÓRÐARSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
fyrir góða umönnun.
Þóra Gísladóttir
Helga Þórðardóttir
og aðrir vandamenn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELMA JÓNATANSDÓTTIR
Miðvangi 12,
áður Hörgatúni 9, Garðabæ,
lést föstudaginn 8. febrúar sl. Útförin hefur
farið fram.
Kjartan Jóhann Magnússon
Katrín Linda Óskarsdóttir
Unnur Erna Óskarsdóttir Símon Már Sturluson
Elma Ósk Óskarsdóttir Jörgen Söderman
Ester Inga Óskarsdóttir Magnús Guðbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KNÚTS OTTERSTEDT
fyrrverandi rafveitustjóra,
Brekkugötu 36, Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri, fyrir einstaka umönnun og hlýju í hans garð.
Harriet Otterstedt
Lena Otterstedt
Kristján Otterstedt Ólöf Margrét Eiríksdóttir
Ása Karen Otterstedt Karl Eckner
Knútur Otterstedt Sylvía Rán Andradóttir
Margrét Sesselja Otterstedt
Una Lind Otterstedt
Sambýlismaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÉTUR BERGMANN ÁRNASON
áður til heimilis að Brekkustíg 1,
Bakkafirði,
lést hinn 19. febrúar á Fjórðungs sjúkra-
húsinu á Akureyri.
Útför hans fer fram laugardaginn 2. mars
frá Skeggjastaðakirkju, Bakkafirði, kl. 14.00.
Elly S. Höjgaard
Árni B. Pétursson Oddný Hjaltadóttir
Kristinn Pétursson Hrefna S. Högnadóttir
Bjartmar Pétursson Helga L. Helgadóttir
Baldur Pétursson Salóme H. Viggósdóttir
Brynjar B. Pétursson Svanhildur Káradóttir
Ómar Pétursson Sigrún I. Guðmundsdóttir
börn og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁSRÚN RAGNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Hrafnistu í Kópavogi,
síðast til heimilis á Kópavogsbraut 1b,
lést fimmtudaginn 21. febrúar.
Útförin auglýst síðar.
Steinunn Karlsdóttir
Jóhann Karlsson Ragnheiður Björnsdóttir
Þorbjörg Karlsdóttir Þórir Ingason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auðsýnt
hafa samúð og vinarhug við andlát og útför
kærs bróður okkar, mágs og frænda,
JÓNS ÚLFARS LÍNDAL.
Sérstakar þakkir fá þau fjölmörgu sem
auðguðu líf hans með margvíslegum hætti.
Þórhildur Líndal Eiríkur Tómasson
Björn Líndal Sólveig Eiríksdóttir
Páll Jakob Líndal Sigurlaug Gunnarsdóttir
og systkinabörn.
Okkar ástkæra
FRIÐFRÍÐUR DODDA RUNÓLFSDÓTTIR
frá Dýrfinnustöðum í Skagafirði,
til heimilis að Byggðarholti 11,
Mosfellsbæ,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
hinn 19. febrúar. Útför hennar fer fram
frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ
föstudaginn 1. mars kl. 13.00.
Friðrik Friðriksson, Friðrik Friðriksson yngri,
Gísli Friðriksson, barnabörn, barnabarnabörn,
systkini hinnar látnu og tengdadætur.
Rósalind Gísladóttir mezzósópran og píanóleikarinn Helga
Bryndís Magnúsdóttir halda tónleika í Salnum á morgun
kl. 17. Á efnisskránni eru ljóðaflokkur eftir Britten, aríur
eftir Verdi, Mascagni og Rossini og þekkt lög úr söng-
leikjum eftir Kern, Loewe og Gershwin.
Þetta eru fyrstu einsöngstónleikar Rósalindar en hún
vakti athygli í fyrra þegar hún bar sigur úr býtum í Barry
Alexander Vocal International Competition - BAVIC og
söng við það tilefni í Carnegie Hall í New York.
Í nóvember 2011 söng hún hlutverk Greifynjunnar í
verðlaunagjörningi Ragnars Kjartanssonar í New York á
Performa 11. Viðburðurinn var valinn einn af tíu merki-
legustu listgjörningum ársins þar ytra og upptaka af
atburðinum var sýnd á Listahátíð 2012.
Rósalind stundaði söngnám í Söngskólanum í Reykjavík
þar sem hennar aðalkennarar voru Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Kolbrún Sæmundsdóttir. Að loknu 8. stigi stund-
aði hún framhaldsnám í Madrid og Barcelona undir hand-
leiðslu Cristina Beatriz Carlin og Maria Dolors Aldea.
Hún hefur komið fram sem einsöngvari á fjölda tónleika
hér á landi og einnig á Spáni og Ítalíu. Meðal annars hefur
hún sungið hlutverk Carmen úr samnefndri óperu eftir
Bizet með Sumaróperunni (Óperu Reykjavíkur) og mezzo-
hlutverkið í Stabat Mater eftir Pergolesi.
Rósalind og Helga Bryndís í Salnum
Konudagurinn verður haldinn hátíðlegur í Salnum í Kópavogi með tónleikum tveggja
kvenna. Á efnisskránni eru meðal annars verk eft ir Britten, Verdi og Rossini.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR Tónleikarnir í Salnum eru fyrstu einsöngstón-
leikar Rósalindar Gísladóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ein af hetjum kappaksturssögunnar,
Argentínumaðurinn Juan Manuel Fangio,
kom óvænt við sögu í frelsisbaráttu Kúbu
þennan dag árið 1958. Daginn áður en
hann átti að keppa í öðrum Formúlukapp-
akstrinum, sem haldinn var í Havana á
Kúbu, var honum rænt af skæruliðum
kommúnista sem fylgdu Fidel Castro og
Che Guevara að máli. „Við vildum sýna
heiminum fram á að á Kúbu ríkti stríðs-
ástand þar sem barist væri gegn einræði
Batista,“ útskýrði Arnol Rodriguez, einn
mannræningjanna.
Fangio hélt í fyrstu að verið væri að grín-
ast þegar skæruliðinn Manuel Uziel vatt
sér að honum inni á hóteli og beindi að
honum skammbyssu. Hann sá þó fljótlega
hvers kyns var þegar fleiri skæruliðar bætt-
ust í hópinn vopnaðir vélbyssum og hlýddi
rólegur á þá útskýra fyrirætlan sína um að
halda honum þar til keppnin væri afstaðin.
Þegar Fangio hafði verið látinn laus og
var kominn í argentínska sendiráðið sýndi
hann samkennd með málstað mannræn-
ingjanna, neitaði að hjálpa til við að bera
kennsl á þá og bar áleiðis boð þeirra um að
ránið hefði verið pólitísk yfirlýsing. Í
kappakstrinum sjálfum hafði hins vegar
átt sér stað mikið slys og taldi Fangio
jafnvel æðri mátt hafa haldið honum frá
keppninni.
Mörgum árum síðar kom hann aftur til
Kúbu og var þá tekið á móti honum sem
sérlegum gesti ríkisins. Fangio þakkaði
hæglætislega fyrir sig og sagði: „Nú hafa
ræst tveir drauma minna, annar að snúa
aftur til Kúbu og hinn að hitta Fidel
Castro.“
ÞETTA GERÐIST 23. FEBRÚAR 1958
Kappaksturshetju rænt á Kúbu
FORINGINN Juan Manuel Fangio fékk þann
draum sinn uppfylltan að hitta Fidel Castro.