Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 88
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. nálægt, 6. í röð, 8. stansa, 9.
tækifæri, 11. hróp, 12. rabb, 14. gisti-
hús, 16. málmur, 17. hyggja, 18. að,
20. tveir eins, 21. tigna.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. tveir eins, 4. sigling, 5.
missir, 7. afturhluti, 10. æxlunarkorn,
13. sigað, 15. fiskur, 16. beita, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. næst, 6. áb, 8. æja, 9. lag,
11. óp, 12. skraf, 14. hótel, 16. ál, 17.
trú, 18. til, 20. ðð, 21. aðla.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. ææ, 4. sjóferð,
5. tap, 7. bakhlið, 10. gró, 13. att, 15.
lúða, 16. áta, 19. ll.
Komdu
sæll! Nýr
leikmaður?
Indeed!
Fór beint
á mitt
dansgólfið!
Og hann er góður! Snarpur
í snúningum og með góða
yfirsýn yfir staðinn!
Fer ekkert framhjá honum!
Pff! Gömul trix!
Gæti leikið
þetta eftir með
krampa og hönd
í bakið!
Það snýst allt um
hreinlæti hjá þér,
er það ekki?
Ertu viss um
að þú sért
hæf?
Norna-
apótek
Lárus...kaupsýslumaður,
faðir, torfæra.
Það er hinn mesti misskilningur að það sé tekið út með sældinni að vera
rómantískur. Það er líka misskilningur
að það sé raunsæisfólkið sem gerir þetta
hlutverk svona erfitt. Það er nefnilega hitt
rómanstíska fólkið sem sér um það. Fáir
árekstrar eru nefnilega eins harðir og
þegar rómantískar hugmyndir stangast á.
Þessu fékk ég að finna fyrir um daginn.
ÞÁ var ég að ræða við fyrstubekkinga
í kaþólskum skóla í bænum Priego de
Córdoba. Eins og búast mátti við var
ég að segja þeim frá okkar ástkæra
Íslandi. Síðan komst ég á flug þegar
ég sagði þeim frá sauðkindinni.
Ég var í essinu mínu en þó nokk-
uð rúinn miðað við tilefnið eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Loksins fannst mér hin íslenska
andlega útrás komin af stað þar
sem ég var við það að opna and-
legt útibú Guðna Ágústsson-
ar í Andalúsíu. Þegar ég fór
að tala um ullina minntist
ég þess að ég var einmitt
í ullarsokkum frá Siggu
frænku svo ég segi, „sjáiði
bara krakkar,“ en skelli svo
hægri fæti á borð skelk-
aðs nemanda en hífí síðan
upp buxnaskálmina svo hin
andalúsíska æska fengi nú
að líta afurðina.
SVO illa vildi til að kennarinn, sem fram
að þessu hafði þagað þunnu hljóði, var
líka á rómantískri herferð. Þessi mið-
aldra blómarós grípur nú inn í og segir
hneyksluð: „Heyrðu, ert þú ekki frá ein-
hverri eyju fast upp við norðurheims-
skautið?“ Jú, það passaði. „Og ertu síðan í
ullarsokkum? Veistu ekki að þú ert í hinni
sólríku Andalúsíu.“ Síðan lítur hún til
krakkanna og segir: „Krakkar, mér heyr-
ist við verða að flytja honum Andalúsíu-
ljóðið.“ Síðan þuldu þau andalúsískt ætt-
jarðarljóð sem fjallaði aðallega um sólina
og blómin sem hér eru upp um alla veggi.
Síðan leit hún á mig eins og ég hefði
verið dæmdur lopaklæddur lýðskrum-
ari í sumarlandi. Ég maldaði í móinn og
sagðist fá bæði hálsbólgu og kvef ef ég
færi ekki í sokkana hennar Siggu sama
hvað öllum sólskinsstundum og blóma-
skrauti liði. Eftir það fór umræðan í rugl
sem krakkarnir höfðu ekkert gagn af en
mikið gaman.
EFTIR þessa reynslu spyr ég mig
hvernig fólk ætlist til þess að vitrænar
umræður fari fram á Alþingi. Þar koma
saman 63 kollar fullir af rómantískum
hugmyndum um sjálfa sig, kjördæmið
og síðan þjóðina. Á slíkum vettvangi
hljóta umræðurnar að fara út um þúfur
og út í þóf. Það þarf ekki einu sinni
ullar sokka til.
Íslenska útrásin stöðvuð
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
MAN. CITY
CHELSEA
Ensku meistararnir frá Evrópumeistarana í heimsókn á
sunnudaginn. Það verður barist til síðasta manns því bæði
lið þurfa sárlega á þremur stigum að halda!
SUNNUDAG KL. 13.15