Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 88

Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 88
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. nálægt, 6. í röð, 8. stansa, 9. tækifæri, 11. hróp, 12. rabb, 14. gisti- hús, 16. málmur, 17. hyggja, 18. að, 20. tveir eins, 21. tigna. LÓÐRÉTT 1. elds, 3. tveir eins, 4. sigling, 5. missir, 7. afturhluti, 10. æxlunarkorn, 13. sigað, 15. fiskur, 16. beita, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. næst, 6. áb, 8. æja, 9. lag, 11. óp, 12. skraf, 14. hótel, 16. ál, 17. trú, 18. til, 20. ðð, 21. aðla. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. ææ, 4. sjóferð, 5. tap, 7. bakhlið, 10. gró, 13. att, 15. lúða, 16. áta, 19. ll. Komdu sæll! Nýr leikmaður? Indeed! Fór beint á mitt dansgólfið! Og hann er góður! Snarpur í snúningum og með góða yfirsýn yfir staðinn! Fer ekkert framhjá honum! Pff! Gömul trix! Gæti leikið þetta eftir með krampa og hönd í bakið! Það snýst allt um hreinlæti hjá þér, er það ekki? Ertu viss um að þú sért hæf? Norna- apótek Lárus...kaupsýslumaður, faðir, torfæra. Það er hinn mesti misskilningur að það sé tekið út með sældinni að vera rómantískur. Það er líka misskilningur að það sé raunsæisfólkið sem gerir þetta hlutverk svona erfitt. Það er nefnilega hitt rómanstíska fólkið sem sér um það. Fáir árekstrar eru nefnilega eins harðir og þegar rómantískar hugmyndir stangast á. Þessu fékk ég að finna fyrir um daginn. ÞÁ var ég að ræða við fyrstubekkinga í kaþólskum skóla í bænum Priego de Córdoba. Eins og búast mátti við var ég að segja þeim frá okkar ástkæra Íslandi. Síðan komst ég á flug þegar ég sagði þeim frá sauðkindinni. Ég var í essinu mínu en þó nokk- uð rúinn miðað við tilefnið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Loksins fannst mér hin íslenska andlega útrás komin af stað þar sem ég var við það að opna and- legt útibú Guðna Ágústsson- ar í Andalúsíu. Þegar ég fór að tala um ullina minntist ég þess að ég var einmitt í ullarsokkum frá Siggu frænku svo ég segi, „sjáiði bara krakkar,“ en skelli svo hægri fæti á borð skelk- aðs nemanda en hífí síðan upp buxnaskálmina svo hin andalúsíska æska fengi nú að líta afurðina. SVO illa vildi til að kennarinn, sem fram að þessu hafði þagað þunnu hljóði, var líka á rómantískri herferð. Þessi mið- aldra blómarós grípur nú inn í og segir hneyksluð: „Heyrðu, ert þú ekki frá ein- hverri eyju fast upp við norðurheims- skautið?“ Jú, það passaði. „Og ertu síðan í ullarsokkum? Veistu ekki að þú ert í hinni sólríku Andalúsíu.“ Síðan lítur hún til krakkanna og segir: „Krakkar, mér heyr- ist við verða að flytja honum Andalúsíu- ljóðið.“ Síðan þuldu þau andalúsískt ætt- jarðarljóð sem fjallaði aðallega um sólina og blómin sem hér eru upp um alla veggi. Síðan leit hún á mig eins og ég hefði verið dæmdur lopaklæddur lýðskrum- ari í sumarlandi. Ég maldaði í móinn og sagðist fá bæði hálsbólgu og kvef ef ég færi ekki í sokkana hennar Siggu sama hvað öllum sólskinsstundum og blóma- skrauti liði. Eftir það fór umræðan í rugl sem krakkarnir höfðu ekkert gagn af en mikið gaman. EFTIR þessa reynslu spyr ég mig hvernig fólk ætlist til þess að vitrænar umræður fari fram á Alþingi. Þar koma saman 63 kollar fullir af rómantískum hugmyndum um sjálfa sig, kjördæmið og síðan þjóðina. Á slíkum vettvangi hljóta umræðurnar að fara út um þúfur og út í þóf. Það þarf ekki einu sinni ullar sokka til. Íslenska útrásin stöðvuð Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is MAN. CITY CHELSEA Ensku meistararnir frá Evrópumeistarana í heimsókn á sunnudaginn. Það verður barist til síðasta manns því bæði lið þurfa sárlega á þremur stigum að halda! SUNNUDAG KL. 13.15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.