Fréttablaðið - 23.02.2013, Page 98
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
Hinn sextán ára Prince
Michael Jackson, sonur
poppstjörnunnar sálugu
Michaels Jackson, er
orðinn fréttamaður hjá
afþreyingarsjónvarps-
stöðinni Entertainment
Tonight. Hann hyggur á
feril sem framleiðandi,
leikstjóri, handrits-
höfundur og leikari.
Í fótspor foreldranna
Börn fræga fólksins reyna mörg hver að feta í fótspor foreldranna og koma sér
á framfæri í skemmtanabransanum. Dæmi um það eru Prince Michael Jackson,
Romeo Beckham og Maude Apatow sem öll virðast elska sviðsljósið.
Jaden, sonur Wills Smith og Jada Pinkett-
Smith, leikur á móti föður sínum í myndinni
After Earth í leikstjórn M. Night Shyamalan.
Jaden, sem er fimmtán ára, hefur áður leikið
aðalhlutverkið í endurgerð The Karate Kid.
Daniellynn Birkhead, sex
ára dóttir Anna Nicole Smith
og Larrys Birkhead, er strax
byrjuð að feta í fótspor
móður sinnar, sem var fyrir-
sæta og leikkona. Birkhead
er nýtt andlit Guess Kids.
Romeo
Beck-
ham, tíu
ára sonur
fótboltatöffar-
ans Davids Beckham og
Victoriu Beckham, leikur
í auglýsingu fyrir vor- og
sumarlínu Burberry.
Riley Keough, 23 ára
dóttir Lisu Marie
Presley og barnabarn
söngvarans Elvis
Presley, er leik-
kona og fyrir-
sæta. Næsta
mynd hennar
er Mad Max:
Fury Road.
Þrjú af börnum Brads
Pitt og Angelinu Jolie
leika lítil hlutverk í
væntanlegri mynd
Jolie, Maleficent.
Hin fjögurra
ára Vivienne
leikur prinsessuna
Auroru.
Hin fjórtán ára Maude Apatow, dóttir
leikkonunnar Leslie Mann og leikstjór-
ans Judds Apatow, fer með hlutverk
í This Is 40 ásamt móður sinni. Leik-
stjóri myndarinnar er að sjálfsögðu
Apatow. Maude hefur einnig leikið í
Knocked Up og Funny People í leik-
stjórn föður síns.
Scott Eastwood
er 26 ára sonur
goðsagnarinnar Clints
Eastwood. Fyrsta
myndin sem hann
lék í var Flags of Our
Fathers í leikstjórn
föður síns, sem var
að hluta til tekin upp
á Íslandi. Hann leikur
næst í Texas Chainsaw
3D.
Setning ráðstefnu Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri í atvinnu og nýsköpunarráðuneyti
Sjávarhverfill Valdimar Össurarson, framkvæmdastóri Valorku ehf.
Jarðhitaleit við Hoffell og verkefni RARIK Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK.
Vindtúrbínur fyrir íslenskar aðstæður Sæþór Ásgeirsson, verkfræðingur IceWind.
Repjutilraunir í Austur Skaftafellsýslu Sveinn Rúnar Ragnarsson, verkefnisstjóri.
Gagnaver á Hornafirði, áætlun GGD Eymundur Sigurðsson, verkfræðingur, VJI
Aðgerðir í loftlagsmálum Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri umhverfis og auðlindaráðuneyti.
Tilraun með varmadælur Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæ.
Orkubóndinn Jón Snæbjörnsson, verkfræðingur Verkís.
Orkusetur Landbúnaðarins Eiður Guðmundsson, Landbúnaðarháskóli Íslands.
Umræður og samantekt Ásgerður Gylfadóttir, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar.
Ráðstefnustjóri, Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri Hornafjarðar.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
1 kr.
sendingargjal
d ti l 25. febrú
ar