Fréttablaðið - 23.02.2013, Síða 100
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
BÍÓ ★ ★★★★
A Good Die to Die Hard
Leikstjórn: John Moore
LEIKARAR: BRUCE WILLIS, JAI
COURTNEY, SEBASTIAN KOCH, YULIYA
SNIGIR, COLE HAUSER, MARY ELIZA-
BETH WINSTEAD.
Að setjast niður til þess að skrifa
illa um bíólögguna John McClane
er erfitt. Það er ekki ósvipað því
að bíða eftir rétta augnablikinu
til að segja góðum vini að hann
eigi við andfýluvandamál að
stríða. Helst vill maður fresta því
í lengstu lög, en illu er víst best
aflokið. Og það er ekki ósennilegt
að sá sem klippti A Good Day to
Die Hard hafi einmitt verið með
þá speki í huga þegar hann skil-
aði af sér myndinni, en myndin
er ekki nema rétt rúmlega ein og
hálf klukkustund, sem gerir hana
að langstystu mynd Die Hard-serí-
unnar.
Aðalmennirnir á bak við mynd-
ina, handritshöfundurinn Skip
Woods, leikstjórinn John Moore
og leikarinn Bruce Willis, sýna
fram á svo mikla vanþekkingu á
efniviðnum og því sem gerir Die
Hard að einni skemmtilegustu
hasarmyndaseríu allra tíma, að
eðlilegast væri að leggja fram
vantrauststillögu á hendur þeim.
Vissulega fataðist John McClane
flugið í bragðdaufri fjórðu mynd-
inni, en fimmta myndin hefði getað
bætt skaðann nánast að fullu.
Því miður ber myndin metnaðar-
leysisins skýr merki. John
McClane fer til Moskvu þegar
sonur hans kemst í kast við lögin
og fimm mínútum síðar erum við
stödd í leiðinlegasta bílaeltingar-
leik sem festur hefur verið á filmu.
Okkur á að finnast sniðugt að sjá
McClane mala hversdagslega við
dóttur sína í farsíma á meðan hann
eyðileggur Moskvu með ofurjeppa.
Við fyrirgáfum Willis kjánaskap-
inn í Hudson Hawk. Af hverju er
svona atriði í Die Hard-mynd?
Myndin nær sér aldrei á strik
eftir hörmungarnar í upphafi.
Sonurinn er leiðindatýpa og
það er aldrei sjáanlegur neisti á
milli feðganna. Áferðin er ljót og
myndatakan þreytandi. Það koma
augnablik í síðari hluta myndar-
innar sem eru sæmileg en það
dugir ekki til. Grunnurinn er of
veikbyggður og því hrynur þetta
allt saman.
Ég óttast að þessi mynd verði
banabiti seríunnar. Máske verða
gerðar fleiri myndir en John
McClane verður aldrei samur.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Ófyrirgefanleg
afskræming á klassískri seríu. Þetta
er búið.
Þetta er búið
A GOOD DAY
TO DIE HARD
„Sonurinn er
leiðindatýpa og
það er aldrei
sjáanlegur
neisti á milli
feðganna.“
Fjölmenni
á Borginni
Veitingastaðurinn Borg hélt veglegt
opnunarhóf á fi mmtudagskvöldið og
fj ölmargir prúðbúnir gestir mættu til
að berja herlegheitin augum. Það var
innanhússarkitektinn Hanna Stína
sem sá um að gefa staðnum andlits-
lyft ingu en matseðilinn var í hönd-
unum á Völundi Snæ Völundarsyni,
sem á staðinn ásamt Hauki Víðissyni.
STILLTU SÉR UPP Ási Baldursson, Helga og Halla. FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
SÁTTIR Óli, Greipur
og Jakob.
300 mín
300 SMS
300 MB
500 mín
500 SMS
500 MB
1000 mín
1000 SMS
1000 MB
3.490 kr./mán. 4.990 kr./mán. 7.990 kr./mán.
Sony Xperia Tipo
Verð 22.900 kr.
2.090 kr./mán. í 12 mán.
Apple iPhone 5 16 GB
Verð 149.900 kr.
8.990 kr./mán. í 18 mán.
Samsung Galaxy S III
Verð 114.900 kr.
6.690 kr./mán. í 18 mán.
*G
re
ið
sl
ug
ja
ld
3
40
k
r.
b
æ
tis
t v
ið
m
án
.g
ja
ld
.