Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 6
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 DÓMSMÁL Verjendur í lögmanna- stétt eru margir hverjir órólegir yfir símhlerunum lögreglu, sem kunna að beinast gegn skjólstæð- ingum þeirra og jafnvel þeim sjálfum. Framkvæmdastjóri Lög- mannafélags Íslands staðfestir að hafa fundið fyrir þessu undan- farin misseri. Innanríkisráðherra svaraði í fyrradag skriflegri fyrirspurn um símhleranir lögreglu sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram á þingi. Bjarni spurði meðal annars hversu oft samskipti grunaðs manns og lögmanns hefðu verið hleruð, hvernig farið væri með rannsóknargögnin og jafnframt hve oft samskipti verjanda við aðra en sakborninginn hefðu verið hleruð. Ráðherra leitaði til ríkis- saksóknara eftir upplýsingum en ríkissaksóknari taldi ekki unnt að svara þessum spurningum, enda væru gögn um símhleranir „ekki greind niður á þann veg að unnt sé að svara því sem þar er spurt um,“ eins og segir í svari ráðherra. „Tekur ríkissaksóknari fram að heimilt sé að framkvæma hlustun hjá lögmönnum eins og hverj- um öðrum, að uppfylltum laga- skilyrðum um úrskurð dómara o.s.frv. Hins vegar verði ekki séð hvaða tilgangi það þjóni að upp- lýsa sérstaklega um hlustanir sem beinast að þeirri starfsstétt, auk þess sem hér verði að hafa í huga þagnarskylduákvæði.“ Þó tekur ríkissaksóknari fram að í sakamálalögum sé kveðið á um að „eyða skuli þegar í stað gögnum sem hafa að geyma sam- töl eða önnur samskipti sak- bornings við verjanda sinn“. Ingimar Ingason, fram- kvæmdastjóri Lögmanna- félags Íslands, er ekki sátt- ur við þessi svör og segir að stjórn félagsins muni taka málið fyrir á næstunni. „Það skýtur svolítið skökku við að það sé ekki talin ástæða til að svara því hvort þarna sé um að ræða einhvern fjölda mála þar sem símar lögmanna eru hlerað- ir,“ segir hann. „Mér finnst eðlilegt að það sé skýrt frekar hversu stór hluti af þessum hlerunar úrskurðum snertir lögmenn beint, ekki sem viðmælendur við sína skjólstæðinga, heldur sem and- lag úrskurðanna.“ Í þeim tilfellum beri lögreglu ekki skylda til að eyða upptökum af símtölum lögmannanna við skjólstæðinga sína, sem geti verið mjög viðkvæms eðlis. stigur@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ? Bílabúð Benna - Notaðir bílar Opið alla virka daga frá kl. 10-18 Búnaður Verð: 5.590.000 CHEVROLET CAPTIVA Chevrolet Captiva NOTAÐIR BÍLAR 1. Hvað er talið að mikið af sjúkra- húsmáltíðum á Landspítalanum endi í ruslinu? 2. Hvar á Akureyri opnar Hamborgara- fabrikkan nýjan veitingastað? 3. Hvað hefur Daniel Day-Lewis oft hreppt Óskarsverðlaun fyrir leik í aðal- hlutverki? SVÖR 1. Um 40%. 2. Á jarðhæð Hótel KEA. 3. Þrisvar. Hleranir styggja verjendur Lögmenn grunaðra sakamanna óttast að trúnaðarsímtöl þeirra við skjólstæðinga kunni að vera hleruð. Ríkis- saksóknari svaraði ekki fyrirspurn ráðherra um málið og stjórn Lögmannafélagsins hyggst taka það fyrir. „Ég tel að það sé algjörlega fráleitt að líkja lögmönnum við hverja aðra starfsstétt í þessu sambandi,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem sinnt hefur verjenda störfum um árabil. „Þegar lögreglu er ljóst að viðkomandi er í trún- aðarsamtali við lögmann sinn þá hlýtur að vera eitthvað bókað um það. Ég tala nú ekki um í ljósi svars ríkissaksóknara um að þegar í stað beri að eyða viðkom- andi samtali, þá hlýtur að eiga sér stað einhver skrásetning um hvernig staðið er að eyðingunni og í hversu mörgum tilvikum slíkum samtölum hefur verið eytt.“ Vilhjálmur segir að það væri mjög alvarlegt ef hlerunin sem slík beindist í einhverjum tilvikum að síma lögmanns- ins. „Ég held að það þyrfti mikið að koma til til þess að slík hlerun yrði heimiluð. Hins vegar bendir svarið til þess að það breyti engu hvort menn eru lögmenn eða hjúkrunarfræðingar, það sé jafngreið leið að hlerunum á símum lögmanna og annarra. Það gefur þá augaleið hvílíkt gríðarlegt trúnaðarbrot það væri og röskun, því að ég mundi telja að nánast öll vinnusímtöl lögmanna væru trúnaðar- símtöl við skjólstæðinga.“ Þá kveðst hann telja að mjög vandlega þurfi að fara í saumana á málinu. „Þetta sýnir bara þær ógöngur sem við erum í með þessar hlerunarheimildir, leyndina sem hvílir yfir þessum málum og mikil- vægi þess að skipaður sé málsvari þess sem er hleraður– hlutlaus þriðji aðili sem gætir hagsmuna hins hleraða. Ef ríkis- saksóknari er ekki að fylgjast með því að þessum trúnaðarsamtölum sé eytt, hver er þá að fylgjast með því? Enginn?“ Lögmenn ekki eins og hver önnur stétt VILHJÁLMUR H. VILHJÁLMSSON Mér finnst eðlilegt að það sé skýrt frekar hversu stór hluti af þessum hlerunarúrskurðum snertir lögmenn beint. Ingimar Ingason framkvæmdstjóri Lögmannafélags Íslands DÓMSMÁL Fjórar konur, nítján til 27 ára, sem ákærðar eru fyrir hrottalega líkamsárás á þá fimmtu, fengu frest til að taka afstöðu til sakarefnisins þegar ákæran var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Konurnar fjórar huldu andlit sín við komuna í héraðsdóm í gærmorgun. Þeim er gefið að sök að hafa fyrir rúmu ári ráðist að þeirri fimmtu, þar sem hún lá sofandi í íbúð í Mosfellsbæ, sleg- ið hana ítrekað í andlitið, rakað af henni nánast allt hárið og neytt hana til að afklæðast undir hótunum. Stúlkan sem ráðist var á lagði í gær fram bótakröfu sem nemur 1,3 milljónum króna. - sh Ákærðar fyrir rakstur: Fá frest til að svara fyrir árás DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir Styrmi Þór Bragasyni í Exeter-málinu til Hæstaréttar. Styrmir var ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvik- um Jóns Þor- steins Jónsson- ar og Ragnars Z. Guðjóns- sonar, fyrrver- andi stjórn- enda Byrs, sem Hæstiréttur dæmdi í fyrrasumar í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Þætti Styrmis var vísað aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur, sem sýknaði hann. Málið snýst um rúmlega eins milljarðs lán sem Byr veitti félaginu Exeter Holding síðla árs 2008 til að kaupa stofnfjárbréf í Byr, meðal annars af MP banka og stjórnarmönnum Byrs. - sh Ríkissaksóknari áfrýjar: Þáttur Styrmis til Hæstaréttar STYRMIR ÞÓR BRAGASON SAMKEPPNI Fyrirtækið Loga- land ehf. hefur kært innkaupa- deild Landspítalans (LSH) til Samkeppniseftirlitsins vegna vinnubragða í innkaupum á heil- brigðisvörum. Ástæðan er tölvu- póstssamskipti LSH við fyrir- tækið Hátækni, þar sem verð samkeppnisaðilans er borið saman við verð Hátækni og eru forsvarsmenn Hátækni beðnir um lækka verðið til að LSH kaupi af þeim. „Getur þú ekki pressað þetta eitthvað meira niður fyrir okkur?“ segir meðal annars í einu bréf- anna frá innkaupadeild spítalans til Hátækni. Þann 17. október 2011 sendi starfsmaður innkaupasviðs LSH forsvarsmanni Hátækni töflu með verðsamanburði á vörum fyrir tækisins og Logalands. Þar sést að tilboð Logalands er rúm- lega 220 þúsund krónum lægra en það frá Hátækni. Í tilkynningu frá Heilbrigðis- vörum, sem rekur Logaland ehf., segir að vinnubrögð innkaupa- deildar standist að mörgu leyti hvorki ákvæði samkeppnislaga né ákvæði laga um opinber inn- kaup og skerði því samkeppni með alvarlegum hætti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem innkaupadeild spítalans er gagn- rýnd fyrir vinnubrögð sín. Nýlega féll úrskurður þar sem stöðvuð voru kaup á tækjum til nýrrar kjarnarannsóknarstofu fyrir meira en sex hundruð milljónir og lagt fyrir Ríkiskaup að auglýsa innkaupin að nýju. - sv „Getur þú ekki pressað þetta eitthvað meira niður fyrir okkur?“: Landspítalinn kærður vegna samskipta TIL SAMKEPPNISEFTIRLITSINS Logaland telur samskipti LSH við samkeppnis aðilann ekki standast lög. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.