Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 50
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR32 ● fréttablaðið ● fermingar
Á veisluborðið er gott að setja eitthvað
matarkyns sem börnum þykir gott að maula.
Það er góður siður að fá sér fyrst eitthvert
brauðmeti af veisluborðinu áður en ráðist er í
sætindin. Oft brennur þó við að krakkar fúlsa við
þeim réttum sem eru á boðstólum á borð við brauð-
tertur með majonesi og rækjum og heita rétti með
sveppum og aspas. Þá getur verið gott að hafa eina
eða tvær tegundir af „krakkamat“. Uppskrift að
nokkrum slíkum má finna hér.
Krakkamat á
veisluborðið
Ekki er úr vegi að bjóða
upp á ávexti á veislu-
borðinu enda fúlsa
fæstir krakkar við
fallegum
vínberjum
og öðru
fersku
góðgæti.
Pylsur í felum
2½ dl hveiti
2 dl heilhveiti
2½ tsk. þurrger
1 tsk. sykur
1 dl mjólk
½ dl heitt vatn
6-8 pylsur eða pakki af kokteil-
pylsum
Hitið ofninn í 200°C. Blandið þurrefn-
um í skál. Blandið mjólk og soðnu/
heitu vatni saman við. Hnoðið deig-
ið. Skerið hverja pylsu í fjóra hluta (ef
ekki eru notaðar kokteilpylsur). Vefjið
deiginu utan um hvern pylsubita. Setj-
ið bökunarpappír á ofnplötu og raðið
pylsu bitunum á plötuna. Bakið í 10-15
mínútur.
Smápitsur
Botn
7 dl hveiti
3 dl volgt vatn
1 pk. þurrger
1 msk. olía
Öllu blandað saman og
hnoðað. Láið hefast í um
15-20 mínútur. Mótið litla
pitsubotna og setjið álegg-
ið á. Látið ímyndunaraflið
ráða í áleggsvali enda úr
nægu að velja: sósa, skinka,
pepperóní, hakk, laukur, papr-
ika svo mætti lengi telja. Bakist við
180°C hita þangað til að osturinn er orð-
inn gullinbrúnn.
Skinkuhorn
100 g smjör
900 g hveiti
60 g sykur
½ tsk. salt
½ l mjólk
1 pk. þurrger
1 egg til að pensla hornin með (líka hægt að nota mjólk)
Fylling:
2 pakkar skinkumyrja (einnig má setja ost og skinku og
jafnvel einhvern annan smurost)
Smjörlíkið brætt og mjólkin sett saman við. Blandið geri og sykri
saman við, pískið létt. Látið standa í 10 mín. Þá er hveiti bætt við og
allt hnoðað saman. Deigið látið lyfta sér undir rökum klút. Því er
síðan skipt í nokkra minni búta. Hver bútur er flattur út í hring og
skorinn í geira. Fylling sett í hvern geira og síðan rúllað frá breiðari
endanum. Hornin eru pensluð með eggi og látin lyftast í korter. Þau
eru síðan bökuð við 225°C í 8-10 mínútur eða þar til þau eru orðin
gullinbrún. - sg
30 fallegar fermingargjafir
á tilboði fyrir hann & hana
Sendum frítt úr vefverslun