Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 42
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR24 ● fréttablaðið ● fermingar
Fermingin er varla fullkomin nema fermingarbarnið sé fest á filmu.
Sumir kjósa hefðbundna uppstillingu í fermingarkyrtli eins og tíðkast
hefur um áratuga skeið en síðustu ár hefur þó færst í vöxt að ferm-
ingarmyndatökur séu frjálslegar og á forsendum fermingarbarnanna
sjálfra. Þá er oft og tíðum tekið mið af áhugamálum fermingar-
barnanna, þau jafnvel mynduð í fótboltabúningum, ballettbúningum
eða á skíðum.
Fyrir kemur að myndatökur fara fram utandyra enda geta tré og
fjöll myndað frábæran bakgrunn. Gæludýr hafa einnig slæðst inn á
myndir auk þess sem fjölskyldan grípur oft tækifærið og skellir sér í
fjölskyldumyndatöku um leið.
Hin stafræna tækni hefur einnig opnað marga möguleika. Hægt
er að taka fleiri myndir, sem eykur líkurnar á að einhverjar þeirra
heppnist vel. Þetta gefur krökkunum lengri tíma til að aðlagast og
losna við feimni en fyrri hluti myndatöku fer oft í að láta börnunum líða
vel og losna við kvíða. Ein leið sem sumir ljósmyndarar nota til að láta
fermingarbörnum líða vel er að spila tónlist meðan á tökunni stendur.
Til dæmis geta krakkarnir komið sjálfir með sína uppáhaldstónlist.
Frjálslegar fyrirsætur
Færst hefur í vöxt að fermingarmyndatökur séu frjálslegar og á forsendum ferm-
ingarbarnanna. Oft er tekið mið af áhugamálum þeirra og þau mynduð með fótbolta
eða ballettskó svo dæmi séu nefnd.
Hanna María Karlsdóttir ólst
upp í Keflavík og fermdist þar.
Fermingarveislan var þó nokkuð
sérstök og haldin í Hveragerði. Hún var
í senn fermingarveisla Hönnu Maríu
og Bergþóru Árnadóttur söngvaskálds
ásamt því að vera brúðkaupsveisla
systkina þeirra sem giftust sama dag.
Á heiðskírum og sólríkum degi um páskana
fyrir um 50 árum gekk leikkonan Hanna
María Karlsdóttir inn í kirkjuna í Keflavík
og staðfesti skírn sína ásamt um þrjátíu jafn-
öldrum sínum. „Ég fékk þarna í fyrsta skipti
á ævinni sviðsskrekk þar sem við þurftum
að fara með ritningartexta utanbókar. Ég
var alveg að deyja úr stressi og hnén á mér
skulfu þar sem ég sat á kirkjubekknum,“
segir Hanna Maja um þennan eftirminni-
lega dag.
Séra Björn Jónsson sá um að ferma og
fræða börnin um veturinn. „Mig minnir að
við höfum verið í fermingarfræðslunni í
alveg heilan vetur. Þetta var bara hefð bundin
fermingarfræðsla.“
Eftir ferminguna í kirkjunni var ekið
sem leið lá til Hveragerðis þar sem veislan
skyldi haldin á Hótel Hveragerði. „Ég man
ekki hvernig það atvikaðist en bróðir minn
og hálfsystir Bergþóru Árnadóttur söngva-
skálds voru par og höfðu ákveðið að gifta sig
sama dag og við Bergþóra fermdumst. Því
var slegið saman í eina stóra veislu fyrir
okkur öll. Þetta var því tvöföld fermingar-
veisla og brúðkaup í senn.“ Veitingarnar voru
hefðbundnar kaffihlaðborðsveitingar þess
tíma. „Þarna var flatbrauð með hangikjöti,
kaffi og kökur og að sjálfsögðu rúllutertur
í löngum röðum. Það sem mér er minnis-
stæðast er þó hve þetta var fallegur og sól-
ríkur dagur og hve allir voru glaðir.“
Hanna Maja var dæmigerður unglingur og
útlitið skipti miklu. „Það sést nú kannski á
fermingarmyndinni hve fýld ég var. Ég var
rauðhærð og freknótt með alveg hræðilega
skakkar tennur og mjög viðkvæm fyrir út-
litinu. Svo ég var ekkert sérlega hress með
það að fara í myndatöku.“ Fermingarkjólinn
saumaði Dagrún, móðir Hönnu Maju, sem
var klæðskeramenntuð frá Kaupmannahöfn.
„Þetta er ægilega fínn kjóll og ég á hann enn
hangandi upp í skáp. Passa reyndar ekki í
hann en ég gerði það lengi vel.“
Á fermingardaginn var Hanna Maja í
fyrsta sinn á háum hælum og í fyrsta sinn
í brjóstahaldara. „Ég man meira að segja
stærðina,“ segir hún og skellir upp úr. „32A
og það var troðið smá bómull inn í til að það
sýndist vera meira í skálunum en var. Svo var
ég með túperað hár og gríðarlega mikið magn
af hárlakki svo þetta var eins og hjálmur.“
Hanna Maja segir aldrei neitt annað hafa
komið til greina en að fermast enda alin upp
á trúræknu heimili og sótti kirkju framan af.
„Ég var mjög trúuð og er enn. Þótt ég fari
ekki oft í kirkju í dag þá fór nokkuð reglu-
lega í kirkju þegar ég var lítil stelpa. Ég veit
ekki hvort það var út af trú eða út af Jesú-
myndunum sem við fengum og söfnuðum og
voru ægilega fallegar.“
Móðir Hönnu Maju var trúuð og vandi
hana af því að blóta á unglingsárum. „Ég
blótaði alveg svakalega mikið um tíma. Ég
fékk vinnu í frystihúsinu í Keflavík og þar
lærði ég alls kyns blót og aðra ósiði. Mamma
náði blótinu þó úr mér og í dag er ég henni
mjög þakklát fyrir það.“
Sólríkur og fallegur gleðidagur
Ég var rauðhærð og freknótt með alveg hræðilega
skakkar tennur og mjög viðkvæm fyrir útlitinu.
Svo ég var ekkert sérlega hress með það að fara í
myndatöku, sem kannski sést á myndinni,“ segir
Hanna Maja um fermingarmyndatökuna.
Leikkonan Hanna María
Karlsdóttir fékk í fyrsta skipti
sviðsskrekk þegar hún þurfti
að fara með ritningartexta
utanbókar á fermingardaginn.