Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 15
NETIÐ Í FLUGI Fjögur af þeim sextán félögum sem fljúga til Íslands í sumar bjóða upp á nettengingu í flugvélum. Frá þessu greinir turisti. is. Flugfélögin eru Norwegian, SAS, Icelandair og Delta. Kaupmannahöfn stendur mér næst,“ segir Kristján Sigur-jónsson, útgefandi Túristi.is, þegar við forvitnumst um uppáhalds- borg hans í heiminum. Kristján hefur ferðast víða en er nú búsettur í Stokk- hólmi ásamt fjölskyldunni. Hann segir þó Kaupmannahöfn eiga hug hans og hjarta, enda bjó hann þar í sjö ár. „Ég flutti þaðan í fyrra. Bæði börnin mín fæddust í Kaupmannahöfn og hún skipar því sérstakan sess í fjölskyld- unni þó okkur líki lífið ljómandi vel í Stokkhólmi. Ég bjó öll árin á Norður- brú og myndi sennilega koma mér þar fyrir aftur ef ég flyt til borgarinnar á ný. Þar hafa alls kyns þjóðarbrot komið sér fyrir og fjölbreytileikinn er mikill. Þaðan er líka stutt í allar áttir og mörg græn svæði,“ segir Kristján og sam- þykkir að ljóstra upp um tvær leyni- perlur í hverfinu, Høkeren og Super- kaffeforsyningen. „Høkeren er lítil bjórbúð í kjallar- anum á Ravnsborggade 13, sem selur alls kyns öl sem gaman er að prófa. Af- greiðslukonan býður viðskiptavinum sínum nær alltaf upp á öl á meðan þeir skoða úrvalið. Superkaffeforsyningen er á Møllegade 3 og þar taka Robert og mamma hans vel á móti fólki með frábæru kaffi og sætabrauði.“ Til að kynnast ekta mannlífi Kaup- mannahafnar mælir Kristján með því að tylla sér á bekk við tjarnirnar eða Søerne og fylgjast með fólkinu sem á þar leið um. Á heitum sumarkvöldum megi þar sjá eldri konur að húlla, ung pör með tærnar ofan í skítugu vatninu og eldri hjón að borða kvöldmatinn á bekk. „Og svo menn eins og mig að skokka eða passa að börnin detti ekki ofan í vatnið,“ segir Kristján og ber Dönum vel söguna. Spurður um bestu búðirnar í bænum nefnir hann ekki Strikið, heldur Elmegade á Norðurbrú. „Það er ein skemmtilegasta gatan í borginni með nokkrum góðum sér- verslunum. Í miðbænum er Pilestræde einna fjölbreyttust. Svo er nýi matar- markaður borgarinnar við Nørreport skyldustopp fyrir sælkera.“ Og talandi um sælkera, hvar finnst honum best að borða? „Hakkabuffið á Toldbod Bodega er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og dró ég marga svanga Íslendinga með mér þangað.“ ■ heida@365.is HAKKABUFFIÐ BEST UPPÁHALDSBORGIN Kristján Sigurjónsson býr í Stokkhólmi en ber sterkar taugar til Kaupmannahafnar. Hann segir Norðurbrú hverfið sitt. BER STERKAR TAUGAR TIL KÖBEN Kristján Sigurjónsson, útgefandi Túristi.is segir Kaupmannahöfn þá borg sem standi honum næst eftir að hafa búið þar í sjö ár. MYND/KRISTJÁN SIGURJÓNSSON SØERNE Til að kynnast ekta Kaupmannahöfn mælir Kristján með því að fylgjast með mann- lífinu kringum Søerne. NORDICPHOTOS/GETTY DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara 15% AFSLÁTTUR Stærðir: 5-300 lítrar BLÖNDUNARLOKI FYLGIR NORSK FRAMLEIÐSLA Olíufylltir rafmagnsofnar Stærðir: 250W-2000W Gæða viftur fyrir baðherbergi, eldhús, vinnustaði o.fl. af OSO hitakútum, Wösab olíufylltum ofnum og Vortice loftræstiviftum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Hugsaðu vel um fæturna Sími 551 2070 Opið mán.-fös. 10-18 Opið laugardaga 10-14 Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig? Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór úr leðri með vönduðu innleggi. Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.