Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 27. febrúar 2013 | SKOÐUN | 13
„Frelsið skiptir máli, að geta
haft þá tilfinningu að maður geti
vaknað á morgnana og gert hvað
sem mann lystir ef gangi maður
ekki á rétt annarra.“ Svo komst
Katrín Jakobsdóttir, nýkjörinn for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, að máli í hreint
afbragðsgóðri ræðu sem hún hélt
á landsfundi flokksins sem fram
fór um helgina. Með nýjum for-
manni blása ferskir vindar um
vinstri græn og af umræðum um
fundinn í fjölmiðlum að dæma
virðast þeir auk þess hafa feykt
„órólegu deild“ flokksins lengst
út á hafsjó þar sem hróp þeirra og
köll drukkna í öldugný.
Yfirvegun og öfgaleysi hafa
skinið úr málflutningi Katrínar
í viðtölum. Hún leggur áherslu á
nauðsyn málamiðlana og mikil-
vægi þess að fólk geti verið and-
stæðra skoðana án þess að allt
fari í bál og brand. Og hún virðist
ekki ætla að ýta undir þá loforða-
verðbólgu sem nú þegar hrjáir
kosningabaráttuna: „Ég hef lagt
áherslu á það að við getum ekki
gengið fram með alls konar fyrir
alla, eins og mér hefur þótt for-
menn Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokks gera núna,“ sagði hún í við-
tali við Fréttablaðið.
Ef bornar eru saman þær álykt-
anir landsfundar VG sem mesta
athygli fengu í fjölmiðlum um
helgina og ályktanir lands fundar
Sjálfstæðisflokksins sem fór fram
á sama tíma gætir óvæntrar hóf-
semdar í málefnastarfi VG en
nokkurs trúarhita í ályktunum
Sjálfstæðisflokksins. Nefna má
viðhorf til Evrópusambandsins
sem dæmi.
Öllum að óvörum samþykkti
landsfundur VG ályktun þess
efnis að ljúka skyldi aðildar-
viðræðum við Evrópu sambandið.
Jafnvel þótt flokksmenn séu upp
til hópa andvígir inngöngu virð-
ast þeir ekki styðja að gengið
sé frá hálfkláruðu verki. Sam-
þykktir lands fundar Sjálfstæðis-
flokksins voru aftur á móti furðu-
ofstækisfullar. Þær kváðu á
um að aðildar viðræðunum yrði
hreinlega hætt og að upplýsinga-
skrifstofu Evrópu sambandsins hér
á landi yrði lokað. Flokkurinn sem
kenndur hefur verið við ofstopa
virðist skyndilega hófsamur en
flokkurinn sem fjöldinn tengir
við skynsemi er orðinn heiftúðleg
skrumskæling í anda teboðshreyf-
ingarinnar í Bandaríkjunum.
Ein er þó sú ályktun sem sam-
þykkt var á landsfundi Vinstri-
hreyfingarinnar – græns fram-
boðs sem fer gegn ferskum
vindunum sem þar blása, gegn
þeim anda hófsemdar sem hvílir
yfir nýja formanninum og þeim
góðu orðum sem hann lét falla um
frelsi í ræðu sinni á landsfund-
inum.
Af melludólgum og glæpahyski
Í janúar í fyrra samþykkti Alþingi
þingsályktunartillögu um skipan
starfshóps sem semja átti frum-
varp sem heimilar staðgöngu-
mæðrun í velgjörðarskyni. Anna
Sigrún Baldurs dóttir, aðstoðar-
maður Guðbjarts Hannes sonar
velferðarráðherra, sagði hins
vegar í samtali við Fréttablaðið að
ljóst væri að ekkert yrði úr mál-
inu á þessu þingi. Enn mega konur
bíða sem ekki geta gengið með
börn sjálfar af ástæðum eins og
þeim að þær fæddust ekki með leg
eða misstu það.
Kannanir sýna að um 87%
landsmanna eru hlynnt staðgöngu-
mæðrun í velgjörðarskyni. Yfir-
gnæfandi meirihluti gesta lands-
fundar VG samþykkti hins vegar
ályktun þess efnis að leggjast gegn
staðgöngumæðrun hvort heldur
sem er í hagnaðar- eða velgjörðar-
skyni. Í ályktuninni segir: „Með
því að leyfa staðgöngumæðrun
í velgjörðarskyni væri verið að
samþykkja þá hugmynd að það sé
í lagi að nota líkama annarra sem
leið að eigin markmiði.“
Orðalag þeirra sem gagnrýnt
hafa staðgöngumæðrun undan-
farin misseri hefur verið heift-
úðugt. Hefur staðgöngumæðr-
un gjarnan verið líkt við vændi
og mansal. Staðgöngumæðrun í
hagnaðar skyni getur vissulega
leitt af sér að neyð kvenna verði til
þess að þær leiðist út í að „selja“
líkama sinn til meðgöngu og má
vel færa rök fyrir því að slíkur
gjörningur eigi ýmislegt skylt
við vændi. En að setja staðgöngu-
mæðrun í velgjörðarskyni undir
sama hatt og staðgöngumæðrun
í hagnaðarskyni eru hreinar og
klárar öfgar – þar er allsherjar
hugmyndafræði hafin ofar
raunsæi og mannúð.
Hvers vegna má kona ekki
ganga með barn fyrir systur sína
eða vinkonu sé hún reiðubúin til að
gera slíkt góðverk? Er það eitthvað
öðruvísi en ef manneskja vill gefa
annarri manneskju sem á þarf að
halda nýra? Og eigi að banna með
öllu að „nota líkama annarra sem
leið að eigin markmiði“ á þá ekki
einnig, auk líffæragjafar, að taka
fyrir blóðgjöf, sæðisgjöf og eggja-
gjöf?
Það er ótrúleg mannvonska að
nánast líkja þeim sem þrá að eign-
ast barn en geta ekki gengið með
það við melludólga og glæpahyski
sem stundar mansal. Enn þá meiri
mannvonska er að neita þeim um
þá einu von sem þeir hafa til að
öðlast það sem flestir taka sem
sjálfsögðum hlut.
Misnotkun á femínisma
Auður Alfífa Ketilsdóttir, ein
þeirra sem stóðu að ályktun VG
um staðgöngumæðrun, sagði í
fréttum Stöðvar tvö um helgina:
„Á meðan að samfélagið tryggir
ekki konum jafna stöðu á við karla
eða yfirráðin yfir eigin líkama, þá
sé ég ekki að það sé tímabært að
leyfa þetta.“
Sem gallharður femínisti fæ
ég ekki með nokkru móti séð að
það að kona gangi með barn fyrir
systur sína, frænku eða vinkonu
stefni stöðu íslenskra kvenna og
umráðum þeirra yfir eigin líkama
í nokkra hættu. Og mér gremst að
lögmæt baráttumál femínismans
séu misnotuð til að réttlæta ofan-
greinda mannvonsku, dulbúin sem
mannúð.
Reynir Tómas Geirsson,
prófessor í fæðinga- og kven-
sjúkdóma fræði og yfirlæknir á
Landspítalanum, skrifaði grein um
staðgöngumæðrun í Fréttablaðið
í desember 2011. Þar segir: „Hér
er um að ræða mjög fáar konur,
eina á eins eða tveggja ára fresti.
Rannsóknir sem varða börnin,
foreldrana, staðgöngumóðurina
og fjölskyldur þeirra benda til að
þetta gangi alla jafna vel … Tækn-
in er fyrir hendi til að aðstoða
þessar fáu konur við að eignast
barn með hjálp annarrar vel-
viljaðrar konu.“
Hvaða rétt hefur samfélagið til
að skerða frelsi þessara velviljuðu
kvenna til að láta gott af sér leiða?
Mannvonska dul-
búin sem mannúð
Sem gallharður
femínisti fæ ég ekki
með nokkru móti séð að
það að kona gangi með
barn fyrir systur sína,
frænku eða vinkonu stefni
stöðu íslenskra kvenna og
umráðum þeirra yfir eigin
líkama í nokkra hættu.
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
www.tskoli.is
Bættu við
eða breyttu til
Skráning og nánari upplýsingar:
www.tskoli.is/namskeid | endurmenntun@tskoli.is
Sími 514 9602
Fjölbreytt úrval námskeiða við allra hæfi.
Endurnýjun vélstjórnarréttinda
Hefst 8. mars.
GMDSS ROC/GOC
Hefst 4. mars.
Hásetafræðsla
Aðstoðarmaður í brú. Hefst 6. mars.
IMDG endurnýjun
Haldið 8. mars.
Skemmtibátanámskeið
Kennt í fjarnámi. Hefst 11. mars.
Smáskipanámskeið
Kennt í fjarnámi og staðarnámi. Hefst 11. mars.
Smáskipavélavörður - vélgæsla
Hefst 4. mars.
Tölvur og upplýsingatækni
App fyrir Android
Hefst 13. apríl.
BIM fyrir verktaka
Hefst 12. mars.
Bæklingagerð í InDesign
Hefst 12. mars.
Inventor grunnnámskeið
Hefst 8. apríl.
iPhone | iPad námskeið
Grunnur. Hefst 4. mars.
Framhald. Hefst 13. mars.
Ljósmyndanámskeið
Hefst 4. mars.
Lýsing og rendering
Fyrir hönnuði og arkitekta. Hefst 16. mars.
Margmiðlunarnámskeið
After Effects. Hefst 15. apríl.
Hljóðsetning f. vídeó og leiki. Hefst 2. mars.
Maya grunnnámskeið. Hefst 8. apríl.
Retro tölvuleikjagerð. Hefst 6. mars.
Photoshop CS6
Fyrir byrjendur. Hefst 16. mars.
Revit Architecture
Grunnur. Hefst 2. maí.
Rendering. Hefst 21. maí.
Skattaframtalsgerð og vsk
Hefst 19. mars.
SketchUp þrívíddarvinnsla
Hefst 5. mars.
Umhverfi og útivist
GPS námskeið
Staðsetningartæki og rötun. Hefst 18. mars.
Laugavegurinn
og Þórsmörk
Haldið 4. maí.
Greinaskrif
Hagnýt skrif
Að koma hugsunum á blað. Hefst 11. mars.
Hönnun og handverk
Bókagerð – handgerðar bækur
Hefst 12. mars.
Handunnin snið
Sambygging og útfærslur. Hefst 7. mars.
Heklnámskeið
Fyrir byrjendur. Hefst 4. mars.
Mósaíknámskeið
Hefst 16. mars.
Skrautskrift fyrir byrjendur
Hefst 4. apríl.
Taulitun og tauþrykk
Hefst 2. mars og 20. apríl.
Vatnslitanámskeið
Fyrir byrjendur. Hefst 4. mars.
Málmur og tré
Hannað og smíðað
Hefst 3. apríl.
Húsgagnaviðgerðir
Hefst 2. apríl.
Málmsuða
Hefst 18. mars.
Járnrennismíði
Fyrir byrjendur. Hefst 8. apríl.
Trésmíði fyrir konur
Hefst 5. mars.
Tölvustýrð
rennismíði CAM
Hefst 11. mars.
Raftækni
Rafeindatækni fyrir byrjendur
Hefst 8. mars.
Uppbygging tölvunnar
og nýjungar
Hefst 5. mars.
Skipstjórn – vélstjórn
ARPA ratsjárnámskeið
Grunnur. Hefst 6. maí.
Endurnýjun. Hefst 8. maí.
ECDIS
Rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi.
Hefst 17. apríl.
Endurnýjun skipstjórnarréttinda
Hefst 13. maí.