Fréttablaðið - 27.02.2013, Side 30
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR12 ● fréttablaðið ● fermingar
Nokkrir íslenskir krakkar fermast
í Lúxemborg í ár. Hópurinn sem
tekur þátt í fermingarfræðslunni í ár
er fjölmennur en flestir krakkanna
fermast heima á Íslandi. Minna stress
fylgir undirbúningnum og veislunni
ytra en heima á Íslandi.
Á hverju ári fermist hópur unglinga erlendis
enda er fjöldi Íslendinga búsettur víða um
heim. Einn þeirra er Stefán Broddi Sigvalda-
son, sem hefur búið í Lúxemborg síðast-
liðin átta ár ásamt fjölskyldu sinni. Ferm-
ingarundirbúningurinn í Lúxemborg er að
mörgu leyti með svipuðu sniði og á Íslandi
en hann er í höndum séra Sjafnar Mueller
Þórs. Stefán Broddi segir fermingarundir-
búninginn hafa verið mjög skemmtilegan
og þar skiptir miklu máli að hafa eytt tíma
með öllum íslensku krökkunum þar sem
þau leystu meðal annars ýmis skemmtileg
verkefni saman. „Síðan förum við í ferm-
ingarbúðir í Þýskalandi um næstu helgi
og hlakka ég mikið til þeirra. Þar bætast í
hópinn fermingarbörn búsett í Þýskalandi
og munum við gista í tvær nætur.“
Hópurinn sem undirbýr fermingu í
Lúxem borg í ár er óvenju stór að sögn
Dagnýjar Broddadóttur, móður Stefáns.
„Í ár fermast tólf krakkar. Þeir hafa hist
fimm sunnudaga með prestinum og tekið
þátt í messum á vegum íslenska safnaðarins
hér í Lúxemborg. Reyndar fermast ekki öll
börnin hér heldur munu flest þeirra fermast
á Íslandi. Stefán Broddi mun þó fermast í
Lúxemborg ásamt fjórum öðrum Íslend-
ingum um hvítasunnuhelgina. Við erum svo
heppin að séra Sjöfn var tilbúin að sjá um at-
höfnina fyrir okkur.“
Börn í Lúxemborg fermast samkvæmt
kaþólskri trú og fer athöfnin fram á vor-
dögum þegar þau eru á tíunda ári. Þann
vetur miðast kristinfræðikennslan í
skólanum við ferminguna og fræðslu sem
tengist henni. Einnig sækja börnin tíma utan
skólans og flest þeirra fara í fermingar búðir
að sögn Dagnýjar.
HEFÐBUNDIN VEISLA
Fjölskyldan heldur hefðbundna fermingar-
veislu í tilefni af fermingunni en heima-
menn halda gjarnan slíkar veislur á veit-
ingastöðum eða í heimahúsum. „Fólkið hér
heldur iðulega formfastar matarveislur í til-
efni ferminga þar sem allir sitja við dekkuð
langborð. Við munum hins vegar halda
hefðbundna íslenska fermingarveislu fyrir
Stefán Brodda. Nánustu ættingjar okkar
koma út og taka þátt í þessum stóra degi
með okkur. Síðan munum við halda veislu á
Íslandi seinna meir þar sem fleiri ætt ingjar
okkar og vinir geta tekið þátt.“
Minna stress er í kringum fermingar-
daginn sjálfan en heima á Íslandi. At höfnin
fer fram klukkan tvö í mótmælendakirkj-
unni og það er í raun það eina sem búið er
að ákveða varðandi daginn. „Það er ekk-
ert stress í kringum undirbúninginn hjá
okkur. Við erum ekki enn farin að huga að
því hvernig og hvar við ætlum að vera með
veisluna. Án efa verður þó fermingardag-
urinn afslappaður dagur í faðmi fjölskyldu
og vina þar sem Stefán Broddi og ákvörðun
hans verður miðpunktur dagsins.“
Fjölskyldan kann vel við sig í Lúxemborg.
Upphaflega ætluðu þau að dvelja þar í tvö til
þrjú ár en nú hafa átta ár liðið á augabragði.
Dagný kennir íslensku fyrir þýðendur hjá
Evrópusambandinu en maður hennar, Sig-
valdi Stefánsson, starfar hjá fjármálafyrir-
tæki þar í landi. Börnin eru þrjú, bræðurnir
Stefán Broddi 13 ára og Alexander Broddi
sem er níu ára. Einnig eiga þau dótturina
Auði sem er 18 ára og stundar háskólanám
í Englandi. Bræðurnir stunda nám í alþjóð-
legum skóla og æfir Stefán Broddi fótbolta
með skólaliðinu og frjálsar íþróttir með lúx-
emborgsku félagi. - sfj
Ekkert stress við undirbúninginn
Stefán Broddi tekur þátt í fermingarfræðslu í
Lúxemborg. Hér er hann með yngri bróður sínum,
Alexander Brodda. MYND/ÚR EINKASAFNI
Tíminn hefur liðið hratt hjá fjölskyldunni í Lúxem-
borg en hún hefur búið þar í átta ár. MYND/ÚR EINKASAFNI
Pastasalat er
þægilegt að gera
og það er
vinsælt á
hlaðborðum.
Salatið er hægt
að gera degi fyrr.
Einnig er hægt
að bæta út í það
eftirlætishráefni
sínu að vild. Hér
er uppskrift að
mjög góðu
pastasalati sem
er upplagt á
hlaðborðið.
Uppskriftin er
miðuð við fjóra.
Einfalt pastasalat
400 g pastaskrúfur
eða penne
50 g furuhnetur
3 skalottlaukar
2 stór hvítlauksrif
4 msk. ólífuolía
1 tsk. chili-flögur
2 eggaldin
1 kúrbítur
6 tómatar
50 g rúsínur
nýmalaður pipar
Sjóðið pasta eftir leið-
beiningum á pakkanum.
Þegar suðu er lokið setjið
þá strax í sigti og undir
kalt vatn til að stoppa
áframhaldandi suðu.
Ristið furuhnetur á þurri
pönnu á meðalhita en
takið síðan af pönnunni.
Skrælið lauk og hvítlauk
og saxið niður. Steikið
lauk og hvítlauk í ólífu-
olíu og setjið chili-flögur
út í. Steikið þar til laukur-
inn verður mjúkur. Takið
af pönnunni. Skerið egg-
aldin í litla bita og steikið
á sömu pönnu, því næst
kúrbít og tómata sem
einnig hefur verið skorið
niður. Öllu blandað
saman við pastaskrúf-
urnar. Setjið furuhnet-
urnar út í þegar pastað er
sett á borðið.