Fréttablaðið - 27.02.2013, Side 32
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR14 ● fréttablaðið ● fermingar
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Save the Children á Íslandi
Dröfn Vilhjálmsdóttir
er konan á bak við
Eldhússögur, eina
girnilegustu matarsíðu
landsins. Hún segist fyrst
og fremst vera húsmóðir
sem nýtur sín í eldhúsinu og
gefur lesendum uppskrift
að fermingarköku sem
auðvelt er að baka heima.
„Í upphafi hugsaði ég blogg-
ið sem eigin uppskriftabók og
sarp fyrir börnin mín að sækja
í mömmumat seinna meir.
Bloggið var mér líka hvatning
til að spreyta mig á nýjum upp-
skriftum heima í eldhúsi,“ segir
Dröfn, sem byrjaði að blogga
um mat í fyrrasumar og færir
lesendum sínum nær daglega
nýjar uppskriftir.
„Ég vanda mig mikið og set
ekkert inn sem ég vil ekki prófa
aftur. Það er heilmikið bjástur
að halda úti matarbloggi, búa
til uppskriftir, elda, baka, taka
myndir, setja þær á netið og
skrifa færslur en ég hef ánægju
af því öllu. Ég dunda mér við
það í eldhúsinu í stað þess að
liggja yfir sjónvarpinu á kvöld-
in,“ segir hún og hlær.
Dröfn segir heimilismatinn
hafa breyst eftir að hún fór að
blogga.
„Ég er með stóra og þakk-
láta fjölskyldu sem nýtur góðs
af matseldinni. Reyndar segj-
ast eldri börnin orðin spillt og
þykja eðlilegt að fá nýjan og
spennandi mat á borðið á hverj-
um degi.“
Dröfn hefur að eigin sögn
meira yndi af bakstri en elda-
mennsku. „Ég legg mikið upp
úr bragðgóðum kökum og
bakaði litlar súkkulaðitertur
fyrir fermingu dóttur minn-
ar, ekki ósvipaðar þeirri sem
ég gef uppskrift af. Þær féllu
vel í kramið enda heimilis-
legt og gómsætt kaffibrauð og
alveg eftir óskum fermingar-
barnsins.“
Sjá www.eldhussogur.com.
Heimilisleg hnallþóra
Dröfn Vilhjálmsdóttir er geislafræðingur, nýútskrifaður bókasafns- og upplýsingafræð-
ingur og fjögurra barna móðir. Hún er húsmóðir af gamla skólanum því henni vex aldrei í
augum að halda stór matarboð eða baka fyrir veislur. MYNDIR/VALLI
Kökubotnar
2 egg
2 dl sterkt kaffi
2½ dl súrmjólk
1,25 dl matarolía
200 g hveiti
420 g sykur
85 g kakó
1 tsk. lyftiduft
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
1 tsk. vanillusykur
Hitið ofn í 160 °C á blæstri.
Smyrjið þrjú bökunar-
form, 20 cm í þvermál.
Hrærið saman eggjum,
kaffi, matarolíu og súr-
mjólk í stutta stund.
Bætið því næst þurrefn-
unum út í og hrærið þar
til deig er jafnt og kekkja-
laust. Skiptið deiginu jafnt
í formin og bakið í um
35 mínútur. Athugið að
botnarnir munu líta út
fyrir að vera blautir. Látið
kólna. Hægt er að setja
botnana í frysti í 30 mín-
útur áður en krem er sett
á til þess að auðvelda
ásetningu.
Kirsuberjakrem
500 g mascarpone-
ostur
3 dl rjómi
2½ dl kirsuberjasósa
(t.d. frá Den gamle
fabrik)
120 g sykur
½ tsk. vanillusykur
Þeytið rjóma og geymið
í ísskáp. Þeytið saman
marcarpone-ost, sykur
og vanillusykur þar til
blandan er kekkjalaus.
Bætið þeytta rjómanum
varlega út í með sleikju,
ásamt kirsuberja sósunni.
Setjið einn kökubotn á
kökudisk og smyrjið með
kreminu. Gerið eins við
hina tvo botnana og
leggið saman. Smyrjið
kremi ofan á kökuna og
á hliðarnar. Kælið í ísskáp
meðan súkkulaðikrem er
búið til.
Súkkulaðikrem
175 g suðusúkkulaði
½ dl rjómi
1 msk. smjör
1 msk. síróp
Hitið súkkulaði, rjóma,
smjör og síróp saman í
potti við vægan hita þar
til blandan er slétt og
samfelld. Látið kólna þar
til passlega þykk. Hellið
kreminu yfir tertuna og
látið leka dálítið fram af
köntum. Skreytið með
jarðarberjum eða fersk-
um kirsuberjum með
stilknum á. Þetta er terta
sem bragðast best dag-
inn eftir!
● SIGNING Signingin er orð-
laus tjáning, játning og bæn.
Hún er minning þess að við-
komandi er skírður í nafni heil-
agrar þrenningar og Guðs eign
í lífi og dauða. Signingin fer
fram með þessum hætti:
Í nafni Guðs, föður (enni), og
sonar (brjóst) og heilags anda
(frá vinstri öxl til hægri axlar).
Amen.