Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 48

Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 48
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR30 ● fréttablaðið ● fermingar Því heyrist stundum fleygt að fermingar séu leiðinlegar en af hverju skyldi það vera? „Í guðs bænum ekki bjóða mér í fermingar. Ég skal mæta í öll barna- afmæli en ég get ekki fermingar,“ stundi miðaldra einhleypur frændi, nýfluttur til landsins eftir margra ára viðburðarríkt stór borgar líf handan Atlantshafsins. „Prúð búnir fjölskyldumeðlimir við hvítdúkuð hringborð með kaffibolla og kransa- köku í hönd. Flestir í tilgerðar- legum samræðum um helstu at- burði liðinna missera og ára. Vissu- lega fær maður gott að éta en þarf líka að borga fyrir sig; helst með nokkrum bláum. Ég þakka pent!“ bætti hann fussandi við. En þurfa fermingarveislur að vera svona leiðinlegar? Það vill einhvern veginn loða við. Af hverju? Hvað er verið að halda upp á? Jú, að barnið sem um ræðir sé komið í fullorðinna manna tölu og að það vilji staðfesta þá játningu sem aðrir fóru með fyrir þess hönd í skírninni. Kannski ekki svo stór- kostlegt í hugum einhverra en flest börn á fermingaraldri vilja nú engu að síður fermast og hví ekki að gleðjast, gera barninu hátt undir höfði og njóta um leið sam- vista við sjaldséða ættingja? SKIPIÐ VEISLUSTJÓRA Það sem gjarnan vantar er um- gjörð og veislustjórn. Veitingarnar skipta vissulega máli en eru þó ekki allt. Oft er framvindan í fermingarveislum nokkuð fyrir- sjáanleg. Fólk safnast saman við borð og er svo boðið upp á mat og kræsingar. Það skrafar eitthvað saman, skrifar í gestabók, skilur eftir gjöf og kveður. Stöku sinnum sýnir barnið listir sínar á ein- hverju sviði og vekur það yfirleitt mikla lukku. En það eru þó ekki nærri því allir unglingar sem vilja koma fram og margir geta varla hugsað sér að stynja upp: „gjörið svo vel!“ ÚTBÚIÐ MYNDBAND Með smá fyrirhyggju má þó hæglega brjóta veisluna upp og skemmta gestum. Hinir tækni- væddu gætu til að mynda útbúið myndband með hápunktum úr lífi barnsins en margir luma á skemmtilegum myndbrotum sem gaman er að klippa saman við skemmtilega tónlist og sýna gestum. Við þetta má svo jafn- vel bæta nokkrum laufléttum við- tölum við ættingja, vini og aðra sem þekkja barnið. Hægt er að fara með myndbandsupptöku- vélina á milli fólks og biðja það um að lýsa fermingarbarninu og segja nokkur vel valin orð. Þetta er svo hægt að klippa saman á skemmti- legan hátt og koma barninu og veislugestum á óvart. SÝNIÐ MYNDIR OG UNDIRBÚIÐ SKEMMTIATRIÐI Þá er um að gera að búa til mynda- sýningu með myndum af barninu og varpa upp á vegg. Ef til eru myndir af því með veislugestum vekur það án efa enn meiri lukku. Eins er um að gera að leita til hæfi- leikafólks í fjölskyldunni og biðja það að troða upp eða taka til máls. Allt brýtur þetta upp hefð bundið veisluformið; það losnar um mál- bein gesta og gerir stundina ánægjulegri og eftirminnilegri fyrir alla. - ve Umgjörð veislunnar skiptir sköpum Leitið til hæfileikafólks í fjölskyldunni og biðjið það að troða upp eða taka til máls. Það brýtur upp veisluna, losar um málbein gesta og gerir stundina eftirminnilegri. Ef fermingarbarnið er tilbúið til að koma fram og sýna listir sínar vekur það án efa lukku. NORDICPHOTOS/GETTY Hannaðu persónulega myndabók á oddi.is Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is NÝR END URB ÆTT UR VEF UR VERÐ FRÁ 6.990 KR. EINTAKIÐ Fermingartilboðin hafin Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.