Fréttablaðið - 27.02.2013, Síða 60
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 16
BAKÞANKAR
Svavars
Hávarðssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. æsa, 6. einnig, 8. gras, 9. móðurlíf,
11. gangþófi, 12. kjöt, 14. þátttakandi,
16. strit, 17. goð, 18. hækkar, 20.
númer, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. í röð, 4. andlegt þróttleysi,
5. máttur, 7. matarlím, 10. þokki, 13.
arr, 15. sjá eftir, 16. ról, 19. gyltu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. örva, 6. og, 8. sef, 9. leg,
11. il, 12. flesk, 14. aðili, 16. at, 17.
guð, 18. rís, 20. nr, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. rs, 4. veiklun, 5.
afl, 7. gelatín, 10. geð, 13. sig, 15. iðra,
16. ark, 19. sú.
Við eigum
það allir!
Er ég ekki eldheitur aðdáandi?
Ég á allt sem þeir hafa gefið
út! Ég á plötur sem þeir vita
ekki einu sinni að þeir hafa
gefið út! Á DVD, CD,
MP3, vínyl, akrýl og
á kassettu!
Ég klifraði upp í gluggann á
hótelinu þeirra á áttundu hæð
og Ace Frehley talaði við mig!
„Étt‘ann sjálfur“ sagði hann!
En hann talaði við mig! Ég
keypti gömlu stígvélin hans
Gene á eBay og fékk
fótasvepp!
Ég er
með þá í
blóðinu!
Svakalegt! Sumar
okkar hafa húðflúrað
svartar stjörnur á
húðina okkar! Ég sé
enga svarta stjörnu
hjá þér félagi!
Ég skal sýna þér
svarta stjörnu
hálfvitinn þinn!
Nei, það
gerir þú
ekki!
Kemst, já.
Átt samskipti,
ég veit ekki.
Kemst hann
í símann?
Segðu henni að Beta hafi sagt
að Sigga hafi sagt að
Sara hafi sagt að henni sé sama
ef Diddu er sama.
Ella vill tala við þig.
Við höfum nú þegar
fengið símtöl frá
Landssambandi
píanóleikara og
Táknmálsfélaginu...
...Hún á afmæli hún Solla!
Hún á afmæli í daaaag!
Nú máttu
óska þér!
Skrýtið...
ég finn ekki
enn lykt af
hnakkaleðri...
Þú hefðir átt
að seg ja „Þú
mátt óska
þér alls nema
smáhests“.
Sætt
B
L
Á
Á
Á
Á
S!
Þef þef
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti þann 25. febrúar
2013 breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-
2018 og nýtt deiliskipulag vegna Krossholt/Langholt á
Barðaströnd í Vesturbyggð. Deiliskipulagssvæðið er
um 54 ha að stærð og innan þess eru þrjú svæði með
núverandi byggingum og áætlaðri viðbótar byggð.
Umhverfis byggðasvæðin er útivistarsvæði og land-
búnaðarland sem er óbyggt. Athugasemdir bárust á
auglýsingartíma við bæði aðalskipulagsbreytinguna og
deiliskipulagið og hefur þeim aðilum verið send
umsögn bæjarstjórnar. Vesturbyggð hefur sent aðal-
skipulagsbreytinguna og deiliskipulagið til Skipulags-
stofnunar og óskað eftir leyfi til þess að deiliskipulagið
öðlist samþykki með birtingu auglýsingar í b-deild
stjórnartíðinda. Hægt er að skjóta skipulaginu til Úr-
skurðanefndar umhverfis- og auðlindamála Skúlagötu
21, 101 Reykjavík. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í
B-deild Stjórnartíðinda.
Ásthildur Sturludóttir
Bæjarstjóri Vesturbyggðar
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Vesturbyggðar
2006-2018 og nýtt deiliskipu-
lag vegna Krossholt/Langholt
á Barðaströnd í Vesturbyggð
Bygging snjóflóðavarna neðan Klifs á Patreksfirði.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar
2013. umsókn Vesturbyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir
ofanflóðavörnum eins og þeim er lýst í framkvæmdaleyfis-
umsókn, greinagerð og umhverfisskýrslu með deiliskipu-
lagi. Bæjarstjórn hefur tekið rökstudda afstöðu til veitingu
leyfisins. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag
Vesturbyggðar 2006-2018 og deiliskipulag ofanflóðavarn-
anna. Framkvæmdaleyfið er bundið ákveðnum skilmálum,
sem byggja á bókun bæjarstjórnar.
Deiliskipulagið er aðgengilegt á vef Skipulagsstofnunar
skipulag.is og vef Vesturbyggðar vesturbyggd.is ásamt
bókunum bæjarstjórnar.
Framkvæmdaleyfi bæjarstjórnar Vesturbyggðar er
kæranlegt til úrskurðanefndar umhverfis - og auðlinda-
mála, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík. Kærufrestur er einn
mánuður frá því að leyfið er auglýst.
Ásthildur Sturludóttir
Bæjarstjóri Vesturbyggðar
Auglýsing um veitingu
framkvæmdaleyfis
í sveitafélaginu
Vesturbyggð
Dagforeldranámskeið
Í lok mars mun Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði bjóða upp
á starfsréttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra.
Upplýsingar í síma 585-5860 og á simenntun@hafnarfjordur.is
nhms@hafnarfjordur.is
FYRIR svona fimmtán árum fékk ég
áhuga á hnefaleikum – á þeim tíma sem
beinar útsendingar hófust frá þessari vin-
sælu íþrótt í fyrsta skipti. Úr varð nýtt
æði á Íslandi. Ég, eins og tugþúsundir
annarra, sat við skjáinn og taldi mig hafa
fundið nýjan sannleika. Ég lagðist í trúboð
– vildi kveða niður gagnrýnisraddir sem
voru margar. Það má reyndar segja að
fleiri hafi fyllt hóp gagnrýnenda en þeirra
sem litu æðið jákvæðum augum, eins og
kom greinilega fram í samfélags-
umræðunni á þeim tíma.
MÓÐIR mín sá ekkert jákvætt
við hnefaleika. Hún sagði það
sprottið af blóðþorsta að horfa á
fullorðna menn berja hver annan
sundur og saman. Ég hélt nú ekki.
Íþróttin væri þvert á móti ein sú
fegursta og göfugasta í heimi.
Þetta taldi ég mig geta sannað;
ef hún vildi læra.
MÓÐIR mín er keppnis-
manneskja og hún sam-
þykkti að halda áfram rök-
ræðunum á meðan horft væri
á hnefaleikabardaga. Þetta
var árið 1997 og fram undan
var endurtekinn bardagi
um heimsmeistaratitilinn
í þungavigt á milli Mike
Tyson og Evander Holy-
field. Fullkomið.
ÉG lagði mikið í kvöldið; fékk lánaða góða
stóla og keypti bjór og aðrar nauðsynjar.
Strax í byrjun afþakkaði mamma kalt ölið
á þeim forsendum að hún þyrfti að klára
hælana á nokkrum ullarsokkapörum sem
hún hafði með sér. Ég drakk því bjórinn
sjálfur og hélt langan fyrirlestur um sögu
hnefaleika. Mamma sat við hliðina á mér,
prjónaði og kinkaði kolli öðru hvoru.
ÞÁ auðvitað, eins og flestir vita, ákvað
Tyson að gera tilraun til að éta andstæðing
sinn, og til að gera langa sögu stutta þá var
eyrað á Holyfield ekki lent í gólfinu þegar
mamma var staðin upp – augnatillitið sem
ég fékk þurfti engra skýringa við. Á þeim
tíma sá ég mína sæng upp reidda og lét
af frekari tilraunum til þess að sannfæra
gömlu konuna – eða ákvað öllu heldur að
leita færis síðar.
SVO birtist Gunnar Nelson eins og frels-
andi engill. Nýtt tækifæri gafst eftir allan
þennan tíma. Reyndar önnur íþrótt og
harkalegri, en samt. Svo fékk ég bakþanka
og hætti við – veit reyndar alveg hverju
hún hefði svarað hefði ég lagt í aðra kross-
ferð. „Svavar minn. Það breytir engu þótt
það sé Íslendingur sem er að ná árangri.
Íþróttin sú arna verður ekkert fallegri við
það.“
MAMMA hefur kannski töluvert til síns
máls. Þótt hún hafi reyndar ekkert sagt.
Mamma og afb itna eyrað