Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 66
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 22
Mér finnst ekki
vera við hæfi að ÍSÍ skuli
ekki vera áhugasamara
um íþróttalífið í landinu.
Haraldur Dean Nelson
1350
POTTURINN STEFNIR Í
Fyrsti vinningur stefnir í 120 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 1.230 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fimm í dag á
næsta sölustað eða á lotto.is
120.000.000
+1.230.000.000
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 27. FEBRÚAR 2013A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
82310000183296
SPORT
MMA Áhugi Íslendinga á Gunnari
Nelson er gríðarlegur og áhuginn á
blönduðum bardagalistum, MMA,
hefur aukist samhliða því. Enn
hefur ekki verið keppt í íþróttinni
á Íslandi og þess utan ekki víst að
það sé að öllu leyti löglegt.
„ Það væri frábært ef við gætum
verið með amatör-bardaga. Við
viljum gera það á réttan og fag-
legan hátt,“ sagði Haraldur Dean
Nelson hjá Mjölni, en hann er
einnig faðir og umboðsmaður
Gunnars Nelson.
„MMA er ekki bannað en við
viljum að það verði settar reglur
og reglugerðir um það hvernig á að
halda MMA-mót. Við viljum ekki
hafa einhverja vitleysinga í því að
setja menn saman í búrið þar sem
það verður ójafn leikur.“
Haraldur bendir á að Svíar hafi
gert hlutina á faglegan hátt. Þar er
annars vegar áhugamanna-MMA
og svo keppni atvinnumanna.
„Það voru sett lög í kringum
1950 en þau eru um hnefaleika.
Þar kemur lítið annað fram en að
hnefaleikar séu bannaðir. Það er
barn síns tíma. Síðan hefur karate
komið og þar er fullsnerting í
skrokk og aðeins í andlit. Svo er
líka taekwondo á Íslandi þar sem
menn eru rotaðir með háspörkum.
Svo eru alls konar köst í júdóinu.
Þessar íþróttir eru samt greinilega
ekki bannaðar hér á landi þrátt
fyrir þessa löggjöf. Það er því ekk-
ert sem bannar MMA sem slíkt.“
Ekki hefur verið stofnað íslenskt
MMA-samband og það er því utan
ÍSÍ eins og fleira.
„Við höfum reynt að koma brasil-
ísku jújitsú inn í ÍSÍ í mörg ár en
það hefur ekki gengið. Það er kapi-
tuli út af fyrir sig. Það er ótrúlegt
að ÍSÍ skuli sýna nýjum íþróttum
eins lítinn áhuga og raun ber vitni.
ÍSÍ er orðið þannig samband að
þeir eru meira í því að halda íþrótt-
um úti en fá þær inn. Það er þeim
ekkert keppikefli að fá inn helstu
vaxtarsprota í íslensku íþrótta-
lífi. Þeir hafa engan áhuga á að
fá okkur inn. Þetta er orðinn allt
að því lokaður klúbbur. Því hefur
verið haldið fram við mig að lottó-
peningarnir séu farnir að snúast
upp í andhverfu sína. Þeir áttu að
efla íþróttalífið en nú sitja menn
við kjötkatlana. Ég veit ekki hvort
það er rétt en ég veit að það er ekki
neinn áhugi né eftirleitan í því að
fá íþróttir eins og brasilískt jújitsú
inn. Samt eru hundruð að æfa
þessa íþrótt og um 200-300 manns
að keppa á Íslandsmóti. Mér finnst
þetta ekki vera Íþróttasamband
Íslands ef það hefur ekki áhuga
á íþróttum,“ segir Haraldur. En á
hverju stranda þessar umsóknir?
„Við höfum farið og hitt
forsvars menn ÍSÍ. Þá var okkur
tjáð að við yrðum að vera í
Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Við sóttum um þar og þá feng-
um við þau svör að við kæmumst
ekki þar inn því íþróttin væri
ekki viður kennd innan ÍSÍ. Þá tal-
aði ég aftur við Líneyju hjá ÍSÍ.
Hún sagði að þau væru búin að
kanna þetta í nágrannalöndunum
og þar væri brasilískt jújitsú ekki
hluti af íþróttasamböndunum þar.
Mér hefur síðan verið tjáð að það
sé hreinlega ekki rétt hjá henni.
Jújitsú sé inni hér og þar. Ég sagði
við Líneyju að einhver yrði að taka
fyrsta skrefið að því að taka nýjar
íþróttir inn. Annars yrði engin
nýjung. Þarna væri tækifæri fyrir
ÍSÍ að taka fyrsta skrefið,“ segir
Haraldur, en þá hafi umræðan
farið að snúast um lyfjamál.
„Ég sagði henni að það væri
velkomið að koma og lyfjaprófa á
mótum hjá okkur. Það myndi eng-
inn fagna því meira en við. Það
má svo benda á að Gunnar Nelson
var lyfjaprófaður af ÍSÍ er hann
tók þátt á Íslandsmeistaramótinu
í júdói. Það voru þrír teknir og
Gunnar einn af þeim. Ég hugsa
að það hafi ekki verið sérstök til-
viljun en samt fínt. Hann hefur
verið lyfjaprófaður margoft og
aldrei fallið. Hann er til í að fara
í próf hvenær sem er og hvar sem
er. Það má þess vegna prófa hann
út af fæðubótarefnum. Hann notar
þau ekki. Hann borðar íslenskan
mat og drekkur íslenskt vatn.“
Hver eru eiginlega næstu skref
hjá Mjölnismönnum í þessum
málum?
„Við erum að vinna í því að
komast inn í International MMA
Federation. Það samband stefnir
að því að halda HM 2013. Það
beitir sér algjörlega að áhuga-
manna-MMA. UFC er svo með
atvinnumanna-MMA. Við erum
að stofna íslenskt MMA-samband
sem mun svo ganga inn í alþjóða-
sambandið. Þeir eru að aðstoða
okkur við að koma okkar sam-
bandi á fót öfugt við það sem ÍSÍ
gerir. Eins og heyra má er ég ör-
lítið bitur út í þá. Mér finnst bara
ekki við hæfi að ÍSÍ skuli ekki
vera áhugasamara um íþrótta-
lífið á landinu. Mér finnst það ekki
vera ásættanlegt.“
henry@frettabladid.is
ÍSÍ hefur ekki áhuga á okkur
Haraldur Dean Nelson, stjórnarmaður í Mjölni og faðir Gunnars Nelson, vandar forystumönnum ÍSÍ ekki
kveðjurnar. Hann segir ÍSÍ vera allt að því lokaðan klúbb sem hafi ekki áhuga á íþróttum. Sambandið geri
meira af því að halda íþróttum úti en að fá þær inn. MMA-keppni á Íslandi verður ekki haldin á næstunni.
ÚTI Í KULDANUM Haraldur og sonur hans Gunnar hafa ekki komið brasilísku
jújitsú í ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
skoraði sitt fyrsta deildarmark
fyrir Tottenham þegar hann jafn-
aði metin í 2-2 í 3-2 sigri á West
Ham á Upton Park í fyrrakvöldi.
Þetta er jafnframt fyrsta
íslenska markið í ensku úrvals-
deildinni á þessu tímabili, sem
þýðir að Íslendingur hefur nú
skorað í ensku úrvalsdeildinni á
fjórtán tímabilum í röð.
Síðasta tímabil þar sem ekkert
íslenskt mark leit dagsins ljós var
1999-2000 en þá var Arnar Gunn-
laugsson eini íslenski leikmaður-
inn í deildinni. Arnari tókst þá
ekki að skora í níu leikjum sínum.
- óój
ÍSLENSK MÖRK Í ENSKU ÚRVALS-
DEILDINNI:
2012-2013 1 mark (Gylfi Þór Sigurðsson 1)
2011-2012 16 (Heiðar Helguson 8, Gylfi 7)
2010-2011 1 (Grétar Rafn Steinsson 1)
2009-2010 2 (Eiður Smári, Hermann )
2008-2009 4 (Grétar Rafn 2, Hermann 2)
2007-2008 7 (Hermann Hreiðars-
son 3)
2006-2007 8 (Heiðar 3, Brynjar Björn Gunn. 3)
2005-2006 10 (Eiður Smári Guðjohnsen 8)
2004-2005 13 (Eiður Smári Guðjohnsen 12)
2003-2004 8 (Eiður Smári Guðjohnsen 6)
2002-2003 13 (Eiður Smári Guðjohnsen 10)
2001-2002 16 (Eiður Smári Guðjohnsen 14)
2000-2001 15 (Eiður Smári Guðjohnsen 10)
1999-2000 7 (Heiðar Helguson 6)
1998-1999 0
Íslenskt mark
14. árið í röð
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON Skoraði í
sínum 23. deildarleik með Tottenham.
NORDICPHOTOS/GETTY