Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 2
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 MENNING 66➜81 FRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜22 HELGIN 24➜56 SPORT 82➜84 FYRIR FÓLKIð Í LANDINU Raunhæfir kostir í húsnæðismálum almennings Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Fjölbreytt úrræði í húsnæðismálum - engar töfralausnir Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG. Mikilvægi félagslegs húsnæðis og húsaleigubóta Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi VG. Úr viðjum vanans - nýjar lausnir á húsnæðismarkaði Elín Sigurðardóttir, félagsfræðingur. ÞAK YFIR HÖFUðIð STEFNUMÓT UM HÚSNÆðISMÁL Þriðjud. 12. mars, kl. 20 - 22 í Nema Forum, Hafnarstræti 20 ALLIR VELKOMNIR SKIPULAGSMÁL „Litið er til að Hótel Borg er eitt elsta og virtasta hótel landsins og talið mikilvægt að það fái að dafna,“ segir í umsögn sem skipulagsráð Reykjavíkur sam- þykkti og felur í sér að reisa má viðbyggingu við Hótel Borg. Rífa á lágreistar byggingar á baklóð Hótels Borgar að mestu leyti. Í staðinn rís viðbygging með kjallara, tveimur hæðum og tveimur rishæðum á þeim hluta sem snýr að Lækjargötu 4 en fjór- um hæðum á þeirri hlið sem snýr að gamla hótelinu. Fást eiga 43 ný hótelherbergi til viðbótar við 52 herbergi sem fyrir eru. Húsfélögin í Pósthússtræti 13 og Lækjargötu 4 segja mjög halla á íbúa reitsins og opin rými ætluð almenningi; garð Hressingar- skálans, verönd Tes & Kaffis og útitorg sem að mestu sé á lóð Lækjar götu 4. „Að þessum rýmum yrði þrengt að öllu leyti, það er með auknu skuggavarpi, minnkun á útsýni og með mikilli nánd húsa á milli,“ segir í bréfi húsfélaganna til skipulagssviðs borgarinnar. Þá óttast húsfélögin skemmd- ir á framkvæmdatímanum. Ein versta breytingin verði þó pers- ónuleg röskun íbúanna. „Ekki síst vegna þess að hún er viss innrás í friðhelgi einkalífs. Innsýn í íbúð- ir þeirra verður verulega meiri vegna nándar,“ segja húsfélögin í mótmælabréfi sínu. „Forsendur breytinganna byggja ekki á neinni hugmyndafræði heldur hagsmun- um eins aðila á kostnað annarra.“ Knút Kützen frá Færeyjum, sem fyrir þremur árum eignaðist íbúð á þriðju hæð í Pósthússtræti 13, vill skaðabætur. „Ég mun tapa baðherbergisglugganum,“ skrif- ar Knút skipulagssviðinu. Hann kveðst munu þurfa að leggja í tölu- verðan kostnað vegna nýrrar loft- ræstingar ef byggt verði að veggn- um hans. Skipulagsfulltrúi svarar að baðherbergislugginn sé ekki á samþykktum teikningum og bætur því ekki í myndinni. Varðandi skuggavarp segir skipulagsfulltrúi það helst munu aukast síðdegis, næst Hótel Borg. Litið hafi verið til þarfa hótels- ins eins og segir hér í upphafi. „Þó var leitast við að finna til- lögu sem gengi ekki um of á hags- muni nágrennisins og var tillagan minnkuð talsvert,“ segir skipu- lagsfulltrúi, sem setur það skilyrði að viðbyggingin sé unnin í samráði við Húsafriðunarnefnd og Minja- stofnun Íslands. Ekki liggur fyrir hvenær fram- kvæmdir hefjast. gar@frettabladid.is Hótel Borg stækkar þótt íbúar mótmæli Þrátt fyrir mótmæli tveggja húsfélaga vegna skuggvarps og ónæðis og ósáttan íbúðareiganda sem missir baðherbergisglugga heimilar skipulagsráð að bætt verði allt að 43 herbergjum við Hótel Borg, fyrst og fremst í viðbyggingu á baklóð. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins. Hans fyrsta verk var að ítreka að ljúka skyldi aðildarviðræðum við ESB. Menn áttu ekki endilega von á því frá fyrrverandi formanni LÍÚ. Sunneva Sverrisdóttir er ekki nema 21 árs en er þegar farin að ræða fjálglega um BDSM-kynlíf í fjölmiðlum. Það skýrist af því að hún er annar stjórnenda sjónvarpsþátta um kynlíf sem hófu göngu sína á Popptíví í vikunni. Bændasamtökin hafa eignast nýjan formann. Hann heitir Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson og er líka varaþingmaður Framsóknarflokksins. Sindri, eins og hann er kallaður, sat fyrir svörum í Kastljósi í vikunni og kvaðst ekki mjög hræddur við sjúkdóma úr hráu, erlendu kjöti. Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra Evrópusinna, er ekki par hrifinn af andstöðu Sjálfstæðisflokksins við ESB. Hann segist ekki einu sinni vera viss um að hann geti kosið flokkinn sinn í vor. Þar hljóta menn að skjálfa á beinum. HIN HLIÐIN 16 Þorsteinn Pálsson um stjórnmál og fj ármál. KONUR VÆLA– KARLAR DEYJA 18 O. Lilja Birgisdóttir um vinnuumhverfi . ANDLEGT OFBELDI Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM 19 Þórir Stephensen um stjórnmál. GRAFFAÐI Í SVEITINNI 66 Sara Riel sýnir í Listasafni Árnesinga. RUSLAHAUGUR Á ENDASTÖÐ SÖGUNNAR 68 Viský Tangó er nýtt útvarpsleikrit Jóns Atla. ÞAKKAR TRÚNNI FYRIR AÐ VERA Á TOPPNUM 76 Mark Wahlberg leikur í fj órum myndum á þessu ári. VIÐBYGGING VIÐ HÓTEL BORG Svona verður svipmót baklóðar Hótels Borgar ef áformuð viðbygging verður reist. MYND/THG ARKITKETAR BAKLÓÐ HÓTEL BORGAR Lágreistar byggingar á baklóð Hótels Borgar víkja fyrir stærra húsi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FIMM Í FRÉTTUM EVRÓPA, BÆNDUR OG BDSM ➜ Kvenfélag SÁÁ hefur verið lagt niður eftir skærur við formann- inn Gunnar Smára Egilsson, að sögn kvennanna. Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir var hluti af kvenfélaginu– sem nú heitir Rótin – og telur brýna þörf á kynjaskiptri afeitrun. SLITASTJÓRN GLITNIS HÖFÐAR SKAÐABÓTAMÁL GEGN TVEIMUR FYRRVERANDI STARFSMÖNNUM BANKANS 4 HUGO CHAVEZ KVADDUR HINSTU KVEÐJU 6 BANKARNIR HAFA HAGNAST UM 260 MILLJARÐA KRÓNA 8 „Það er fyrir neðan allar hellur að ætla að halda þessu debatti um Evrópusambandið áfram næstu 30 ár í viðbót.“ 10 Heiða Kristín Helgadóttir, formaður Bjartrar framtíðar. GERÐUM RÉTT MEÐ ÞVÍ AÐ BÍÐA 24 Hljómsveitin Ylja slær í gegn EINFALT AÐ AFNEMA VERÐTRYGGINGU 32 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson BESTU MYNDIRNAR 2012 44 Ljósmyndarar Fréttablaðsins HVAÐ VARÐ UM ARABÍSKA VORIÐ? 46 Fyrir tveimur árum fagnaði heimsbyggðin arabísku vori en nú er vorhret. HVERGI NÆRRI HÆTTUR 50 Guðmundur E. Stephensen og allir titlarnir. KRAKKASÍÐAN 54 KROSSGÁTAN 56 BJÖRGUN Karlmaður var fluttur með þyrlu ofan úr Hvalfirði í gær, en hann hafði fótbrotnað illa í miklum bratta uppi við Botnsúlur í Hvalfirði. Langur vegur var fyrir björgunarsveitir að manninum, en menn komu að honum rúmum tveimur tímum eftir að hann hringdi á hjálp. Að sögn talsmanns Landsbjargar var maðurinn nokkuð kaldur þegar að var komið en hann var þokkalega vel búinn til útivistar. Aðstæður voru nokkuð erfiðar þar sem hvassviðri var og skafrenningur auk þess sem hann var í bratta. Um 40 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem og menn úr sérsveit ríkislögreglustjóra sem voru við æfing- ar í nágrenninu. Þurftu þeir að slaka hinum slasaða í börum niður í björgun- arbíl sem flutti hann þangað sem þyrl- an beið, en hún gat ekki athafnað sig á slysstað. Var maðurinn svo fluttur þaðan á sjúkrahús í Reykjavík. - þj Björgunarsveitir sótti slasaðan mann upp að Botnsúlum í Hvalfirði: Fótbrotinn í tvo tíma á fjalli ÞYRLAN BÝÐUR Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti björgunarsveitir upp í Hvalfjörð en gat ekki athafnað sig á slysstað. Hún flutti svo hinn slasaða á sjúkrahús. MYND/LANDSBJÖRG SPÁÐ Í BIKARHELGINA 82 Undanúrslit kvenna í dag og úrslitaleik- irnir á morgun. GYLFI ÖFLUGUR Í MARS 84 Mars virðist vera mánuður Gylfa Þórs Sigurðssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.