Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 92
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. mats, 6. tveir eins, 8. fálm, 9. papp-
írsblað, 11. fíngerð líkamshár, 12. aka,
14. faðma, 16. karlkyn, 17. tala, 18.
drulla, 20. til, 21. skjótur.
LÓÐRÉTT
1. viðureign, 3. hróp, 4. land í SA-Asíu,
5. arinn, 7. súgur, 10. stofn, 13. letur-
tákn, 15. eyðimörk, 16. kóf, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dóms, 6. tt, 8. pat, 9. örk,
11. ló, 12. keyra, 14. knúsa, 16. kk, 17.
níu, 18. aur, 20. að, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. átök, 3. óp, 4. malasía,
5. stó, 7. trekkur, 10. kyn, 13. rún, 15.
auðn, 16. kaf, 19. rá.
Þetta er það sem við högum talað
um, Ívar! Engar snöggar hreyfingar
fyrir mann á þínum aldri!
Ég var bara
að standa
upp!
Hættu
því!
Þetta er ég.
Gætirðu komið með
flögur og salsasósu
fyrst þú ert í
eldhúsinu?
Ókei, ég (HIKK!) skal koma með
þér, en bara af því að ég er
umkringdur!
H
ve
r,
ég
?
Þ
ú
he
fu
r
væ
nt
an
le
ga
e
kk
i
sé
ð
h
in
n
so
kk
in
n
m
in
n?
Þegar ég var á fullu að slíta barns-skónum vestur á Bíldudal kom frú
Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti,
þangað í heimsókn. Gróðursetti hún tré
með okkur krökkunum eins og hennar
var háttur. Mér er sérstaklega minnis-
stætt þegar hún fór með fríðu föruneyti
upp í Tungu, svokallaða, og stoppaði við
styttuna af Muggi. Ég fékk hálfgert sjokk
þegar hún fór að faðma styttuna og hálf-
partinn kjassa hana og sagði svo með
bros á vör að hún hefði alltaf haft dálæti
á góðum listamönnum.
UNGI daladrengurinn fór hjá sér.
„Hvað er hún eiginlega að hugsa?“
spurði ég sjálfan mig, enda alinn
upp við að framámenn hegðuðu
sér með sviplausari hætti. Þing-
menn kjördæmisins hefðu til
dæmis aldrei leyft sér slíkt lát-
leysi. Seinna áttaði ég mig á að
þessi manneskja, sem er með
þeim almerkilegustu sem ég
veit um, var að búa okkur
undir breytta tíma þar sem
bindisklæddir landsfeður
færu ekki einir með tögl og
hagldir.
MÉR varð hugsað til þess-
arar uppákomu í Tungunni
mörgum árum síðar þegar
ég króaði Katrínu Jakobs-
dóttur af á blaðamanna-
vaktinni og spurði hvað verðandi
menntamálaráðherra ætlaði að gera. Öll
framkoma hennar bar þess merki að ég
væri að ræða við gamla bekkjarsystur
frekar en verðandi ráðherra. Ekki vott-
aði fyrir hinu gamaldags og hvimleiða
landsföðurfasi sem hrjáir margar konur
og menn sem nálgast hæstu metorð.
Þar fékk ég því aftur að finna fyrir blæ
breyttra tíma.
SÍÐAN þá hefur reyndar blásið byrlega
í þessum efnum með nýju og ólíku fólki
sem lætur til sín taka í stjórnmálum og
gefur lítið fyrir landsföðurinn. Svei mér
þá ef þetta er ekki stormur á við þann
sem Hannes Hafstein orti um á sínum
tíma.
NÚ velta sjálfstæðismenn því fyrir sér
hvernig standi á því að fylgi flokksins
hafi dalað eftir landsfund. Eflaust er
einhver kjarnakona á við þær Katrínu
og Vigdísi að benda þeim á að samkoma
bindis- og kjólklæddra „landsfeðra-
vonnabís“ sé ekki vænleg til árangurs
árið 2013. Sérstaklega ef fjallað er um
fósturjörðina á sömu nótum og langafi
gerði, þar sem hin kristna og einsleita
þjóð býr sig undir hættuna sem steðjar
að utan frá, rétt eins og skaðinn sem við
völdum okkur sjálf sé skaðlaus. Eflaust
eru þær að benda á erindisleysi flokks
sem er að búa þjóðina undir framtíð sem
fyrir löngu er liðin.
Þær sem elska storminn
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
MAN. UTD.
CHELSEA
SUNNUDAG KL. 16:15
BARIST UM
BIKARINN!
Toppliðið Úrvalsdeildarinnar fær Evrópumeistarana í
heimsókn í átta liða úrslitum elstu bikarkeppni í heimi.
ALLIR LEIKIRNIR Í 8 LIÐA ÚRSLITUM Í BEINNI!