Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 24
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 HELGIN 9. mars 2013 LAUGARDAGUR Við segjum oft að við séum „Youtube-lærðar á gítar-inn,“ segir Guðný Gígja Skjaldardóttir, önnur söng-kona Ylju, en hljómsveitina stofnuðu hún og Bjartey Sveinsdóttir á menntaskólaárunum. „Við kynntumst í kór Flensborgarskólans árið 2007. Þar sátum við hlið við hlið og sungum sömu röddina. Okkur datt svo í hug að taka þátt í söngkeppni Flensborgar saman, þrátt fyrir að þekkjast eiginlega ekkert. Ég var búin að fatta að við fíluðum sömu lögin og í kjölfarið fórum við að hittast og æfa. Upp frá því urðum við bara óaðskiljanlegar vinkonur,“ segir Guðný Gígja. Tónlistin virðist vera þeim stöllum í blóð borin en auk þess að vera sjálflærðar á gítarinn eru þær að mestu sjálfmennt- aðar í sönglistinni. „Við sóttum um í Söngskóla Reykjavíkur í fyrra og komumst báðar inn. En við komumst fljótlega að því að klassíski söngurinn var kannski ekki beint eitthvað fyrir okkur. Þetta var mjög skemmtilegt en við sögðum samt skilið við Söngskólann eftir mánuð,“ segir Bjartey. Fyrsta plata hljómsveitarinnar kom út í nóvember og segja stelpurnar stílinn vera eins konar þjóðlagapopp. Bjartey og Guðný fengu gítarleikarann Smára Tarf Jósepsson til þess að sjá um upptökustjórnun. „Þær báðu mig svo um að spila undir á „slide-gítar“ í einu laganna. Ég fékk svo ekkert að taka meira upp eftir það og gekk bara til liðs við þær,“ segir Smári og hlær. Platan var þó nokkuð lengi í vinnslu en í september 2011 var ákveðið að fara upp í sumarbústað og taka upp. „Við ákváðum að taka plötuna upp „live“ sem hentaði okkur alveg rosalega vel,“ segir Bjartey. „Þegar maður tekur upp eitt hljóðfæri í einu tapast ákveðin dýnamík. Þessi „live-fílingur“ er bara allt annar,“ segir Smári Tarfur, en plötuna gefa þau út sjálf. Þau segja fyrsta upplagið vera um það bil að klárast og gæla þau nú við þá hugmynd að gefa plötuna út á vínyl. „Við erum 100% sátt við þennan frumburð. Oft á tíðum er fyrsta plata hljómsveitar mjög erfið fæðing. Stelpurnar voru hvattar til þess að drífa í því að gera plötu margoft áður en tóku þá hárréttu ákvörðun að bíða. Þær myndu sjá eftir því í dag ef þær hefðu gefið plötuna út fyrir tveimur árum,“ segir Smári Tarfur. Smári er enginn nýgræðingur í tónlistinni en hann var meðal annars í hljómsveitinni Quarashi um tíma en segir það auðveldara að vinna með stelpum en strákum. „Ég er rosalega mjúkur og viðkvæmur drengur. Þar af leiðandi hentar samstarf með stelpum betur,“ segir Smári í léttum dúr. Þríeykið ákvað á dögunum að fá sér umboðsmann. „Við lentum nefnilega í því um daginn að mæta klukkutíma of seint á „gigg“ sem var náttúrulega mjög leiðinlegt, bæði fyrir þá sem bókuðu okkur og líka fyrir okkur sjálf. Við höfðum bara algjörlega misskilið tímasetninguna. Það var eiginlega þá sem okkur fannst kom- inn tími á að finna einhvern til að sjá um þetta með okkur,“ segir Guðný Gígja. En er stefnan sett á útrás? „Við myndum allavega ekki slá þann einstakling utan undir sem myndi segja „Hey, ég er með spennandi hluti fyrir ykkur í útlönd- um“,“ segir Smári, en bætir þó við að Ylja sé enn að fóta sig hér á landi og þau því enn með fæturna á jörðinni. Gerðum rétt með því að bíða Hljómsveitin Ylja gaf út sína fyrstu plötu í nóvember en platan hefur hlotið mikið lof. Það eru þau Guðný Gígja Skjaldar- dóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson sem skipa hljómsveitina. HUGGULEGT ÆFINGAHÚSNÆÐI Þau Guðný Gígja, Bjartey og Smári Tarfur hafa komið sér vel fyrir í æfingahúsnæði hljómsveitar- innar út á Granda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur Skáldskapur og KR „Helgin verður að einhverju leyti helguð fjáröflun fyrir 4. flokk KR í handbolta þar sem sonur minn er markvörður. Auk þess fer ég í matarboð og á laugardaginn ætti ég að hafa tíma til að vinna í skáld- sögu sem ég er að skrifa.“ Tryggvi Gunnarsson, leik- stjóri Fagnar með heims- byggðinni „Foreldrar mínir urðu sextugir í vikunni. Gjörvöll heimsbyggðin fagnar því auðvitað ákaft og verður veisla um helgina eftir því.“ Guðrún Lárusdóttir, fram- leiðslustjóri og hönnuður Bækur og leiksýning „Ég ætla að fara á bókamark- aðinn i Perlunni. Svo ætla ég á frumsýningu á Drekanum hjá leikfélagi Kvennaskólans á sunnudaginn þar sem Kormákur sonur minn stígur á stokk.“ Unnur Þóra Jökulsdóttir, rithöfundur Kósíkvöld, tónlist og göngutúrar „Byrja daginn á Wordpress námskeiði. Kíki svo inn á hljómsveitaræfingu hjá dóttur minni. Uppá- halds laugardagskvöld er í sófanum heima með teppi, prjóna, eld í kamínunni og eitthvað gott á skjánum. Sunnudagur: Hlusta á Öldu og félaga hennar spila á Töfrahurðinni í Salnum, síðan langur göngutúr í Heiðmörk með hundinum Karra. Og svo eru það bækurnar á náttborðinu...“ Þráðlausa tæknin tröllríður nú öllum okkar stöðlum og tölvuvæðing ótrúlegustu hluta er að verða að veruleika. Sjónvörp, rúður, gleraugu og úr eru engin undantekning því allt þetta hefur verið, eða er áformað, að tölvuvæða snilldarlega á næstu misserum. Tækninni fleytir svo fljótt fram að neytendur hafa ekki undan að uppfæra tækin. Apple hefur haft það að markmiði að uppfæra þráðlausu tækin sín með um það bil árs millibili. Sum tæki, eins og iPad, hafa jafnvel verið uppfærð á hálfs árs fresti. Tækin eru alltaf að verða minni og minni. Þau bjóða jafnframt upp á fleiri möguleika. Nú er svo komið að Apple hyggst senda frá sér tölvuúr sem lætur G-Shock-úrin líta út fyrir að vera ættuð úr grárri forneskju. - bþh Kjaft asögur um snjallúr frá Apple fá byr í seglin Nýjasta afurð Apple-tölvurisans verður líklega iWatch og fram eru komnar hugmyndir um hvernig það mun líta út. 1 2 3 ORÐRÓMURINN GEFUR TIL KYNNA AÐ iWATCH MUNI LÍTA EINHVERN VEGINN SVONA ÚT Willow-glerÞunnt eins og blað, sveigjanlegt og sterkt. Enn eru þó um það bil þrjú ár í að hægt verði að fjöldaframleiða það. Eiginleikar iWatch ■ Símtöl ■ Skrefamælir ■ Landakort og GPS ■ Heilsumælar og -skynjarar 1 Kringlótt skífa: Sterkasti orðrómurinn er sá að skífan verði kringlótt og hugbúnaðurinn muni byggja á Spiral-tækninni sem Apple hefur þegar tryggt sér einkarétt á. Hönnunin sé svo í anda Ikepod Geneve Horizon- armbandsúranna. 2 Fernings- löguð skífa: Hönnunin hentar betur fyrir snjall- símahugbúnað Apple, iOS-kerfið. Líftími rafhlöðunnar yrði vandamál með þann hugbúnað en markmiðið er að hún endist í fjóra til fimm daga milli endur- hleðslna. 3 Mjúkur skjár: Apple hefur sótt um einkaleyfi á armbandi með bugð- óttum skjá. Apple gæti notað sveigjanlegt Willow-gler sem framleiðir herta glerið framan á iPhone- símana. RAUNSTÆRÐ TEIKNINGAR: GRAPICNEWS Kristjana Arnarsdóttir kristjana@frettabladid.is Við erum 100% sátt við þennan frumburð. Smári Tarfur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.