Fréttablaðið - 09.03.2013, Page 82

Fréttablaðið - 09.03.2013, Page 82
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 54 ARON BLÆR Dýralíf heitir þessi mynd eftir Aron Blæ Bergmann, níu ára Hafnfirðing. Ertu fæddur rokkari? „Já, klárlega. Ég gat setið endalaust fyrir framan plötuspilarann og hlustað á The Beach Boys, The Shadows, Crosby, Stills, Nash & Young og fleiri. Svo fékk ég að kaupa plötur snemma, ætli ég hafi ekki verið sjö ára þegar ég kaupi fyrstu Kiss-plötuna. Alltaf þegar ég komst nálægt hljóðfærum langaði mig að prófa að spila – fikta mig áfram og í mínum huga hljómaði þetta auðvitað stórkostlega. Já, rokkið náði mér strax.“ Hvað er svona skemmtilegt við þungarokk? „Krafturinn. Mér líður rosalega vel þegar ég hlusta á þungarokk. Öll streita líður úr mér og ég fyllist orku. Yndisleg tilfinning.“ Hvað ertu búinn að vera lengi í hljómsveit? „Ég stofnaði hljómsveit með Ölla vini mínum mjög snemma, við vorum líklega í 3. eða 4. bekk í grunnskóla. Síðan þá hef ég alltaf verið í hljóm- sveit eða hljómsveitum, misvirkum að sjálfsögðu.“ Hvaða hljómsveitum? „Fyrsta skal nefna hina stórkostlegu Pain en sú hljómsveit lifði því miður ekki lengi eftir að grunnskólagöngu minni lauk. Ég hef spilað í Skálmöld í fjögur ár og ég hef verið heppinn að fá að spila með mörgum frábærum tónlistarmönnum í hinum og þessum verkefnum í gegnum tíðina.“ Hvernig og hvar lærðir þú á hljóðfæri? „Ég lærði á píanó í nokkra mánuði þegar ég var ellefu eða tólf ára en skipti yfir í trommurnar og lærði á þær í tvö ár. Mamma átti gítar sem ég byrj- aði snemma að fikta á og strax eftir ferm- ingu fór ég að læra skipulega á gítar hjá Villa í Tónlistarskóla Húsavíkur. Þaðan fór ég til Bjössa Thor í F.Í.H. og lærði hjá honum í þrjú ár. Svo lærði ég á klassískan gítar hjá Snorra Erni Snorrasyni, einnig í F.Í.H. Að auki hef ég tekið hin og þessi námskeið í gegnum tíðina.“ Hvað þarf að gera til að komast í hljómsveit? „Fyrst og fremst áhuga. Ef þú vilt vera í hljómsveit þá stofn- ar þú hljómsveit og ef þú vilt verða góð/ ur á hljóðfæri þá æfir þú þig. Þetta er ekki flókið!“ Semur þú textana sem Skálmöld syngur? „Nei, Snæbjörn, bassaleikari Skálmaldar, semur alla textana. Ég fengi örugglega að gera texta fyrir Skálmöld ef ég gæti gert jafn góða texta og hann en ég bara get það ekki, hef kannski ekki æft mig nægilega mikið.“ Ert þú hrifinn af forníslensku? „Mjög. Ég les Íslendingasögurnar, Snorra-Eddu og Völuspá reglu- lega, þetta er allt svo skemmtilegt. Við eigum líka að hlusta meira á afa og ömmu, læra skrýtnu orðin sem þau nota, er það ekki stundum hálfgerð forníslenska?“ Hvað vinnur þú annað en að spila í Skálmöld? „Ég kenni nemendum í Norðlingaskóla og reyni að virkja þá í tónlistinni. Sumir nemendur mínir vilja aðallega spila á rafmagnsgítar en aðrir vilja bara helst semja tónlist í tölvum. Hvort tveggja er stórgott.“ Átt þú einhver börn? „Ég á tvær dætur, Elísabetu sem er sex ára og Brynhildi sem fæddist 10. janú- ar síðastliðinn.“ - gun Rokkið náði mér strax Alltaf þegar Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari í Skálmöld, komst nálægt hljóðfærum langaði hann að prófa að spila. ÞRÁINN ÁRNI BALDVINSSON Bóndinn við hinn bóndann: Hvað átt þú margar kindur? Hinn bóndinn: Ég veit það ekki – í hvert sinn sem ég tel þær þá sofna ég. Læknir, læknir! Ég held ég sé orðinn blindur! Já, það held ég líka, þetta er pósthúsið. Af hverju hætti tannlæknirinn störfum? Hann reif kjaft. Ég heyrði nýjan brandara um daginn. Var ég búinn að segja þér hann? Ég veit það ekki. Er hann fyndinn? Já. Þá hefur þú ekki sagt mér hann. Brandarar GEgGJ AÐAR Samsung 32“ LCD D404 sjónvarp Glæsilegt tæki á ótrúlegu verði Ti lb oð g ild a til o g m eð 1 7. 03 .1 3 og á m eð an b ir gð ir e nd as t. B ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi llu r og m yn db re ng l. Stóra tölvu- orðabókin 7.499 kr 7.999 kr 4.699 kr Aðeins 79.900 kr. GrifFilL sími: 533-1010 - wWw.grifFilL.is - skeifunNi 11 - Bt sími: 550-4444 - wWw.bt.is Ti lb oð g Teikningar og texti: Bragi Halldórsson 34 „Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með tölu- stöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni. „Mér sýnist þetta vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna þrjú tákn eru ekki standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við. svo dæmin gangi upp? @  7 6 6 6 6 1 1 4 3 @ @ @  
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.